Fréttablaðið - 02.10.2010, Page 36

Fréttablaðið - 02.10.2010, Page 36
36 2. október 2010 LAUGARDAGUR Í dag verður gengið til góðs á vegum Rauða krossins í sjötta sinn. Í söfnuninni í ár er litið til langtíma samstarfsverkefna Rauða kross Íslands sem eiga undir högg að sækja varðandi fjármögnun, en þar sem þörfin er engu að síður eins aðkallandi og brýn og þar sem náttúruhamfarir og átök geisa. Verkefni félagsins í Malaví fyrir börn og ungmenni sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis og í Síerra Leóne sem snýst um stríðshrjáð börn og endurhæfingu barnahermanna eru á oddinum í söfnun dagsins. „Stærstu verkefnin okkar í Afríku eru þessi í Malaví og Sierra Leone og söfnunarféð fer í þau,“ segir Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða krossi Íslands. „Í Malaví erum við að byggja leikskóla og athvörf fyrir börn fram að skólaaldri sem hafa misst foreldra sína úr alnæmi. Við styðjum líka við eldri börn en alls hefur Rauði kross Íslands hjálpað til við að byggja sjö atvhörf þar í landi. Í Sierra Leone snýst verkefnið um að aðstoða ungmenni við að sjá sér farborða og að veita sálrænan stuðning vegna borgarastyrjaldarinn- ar sem þar hefur geisað.“ Dagurinn í dag snýst ekki eingöngu um að leita eftir fjárstuðningi heldur einnig til að fá fólk til að sýna samstöðu í verki með því að gerast sjálfboðaliðar eina dag- stund. Þannig geta allir tekið þátt í söfnuninni – ýmist með því að ganga eða gefa. Sólveig segir yfirleitt hafa gengið vel að fá sjálfboðaliða. Flestir skrái sig samdægurs í einni af söfnunarstöð Rauða krossins sem settar hafa verið upp um allan bæ og allt land. Í gærmorgun höfðu þó ríflega 700 skráð sig á netinu en markmiðið er að fá um þrjú þúsund sjálfboðaliða. Söfnunin fer fram milli klukkan tíu og sex í dag. Sjálfboðaliðar fá afhentan bauk í söfnunarmiðstöðinni sinni og við tekur svo um klukkutíma ganga í hverfinu. Sólveig bendir á að gott sé að vera búinn að taka til smámynt eða seðla til að stinga í bauk sjálfboðaliðanna. ■ GENGIÐ TIL GÓÐS FYRIR BÖRN OG UNGMENNI C aroline Seyani er fædd í ágúst 1987. Hún ólst upp hjá móður sinni en frétti það fyrst eftir andlát hennar að faðir hennar var kaþ- ólskur prestur sem hafði verið í sambandi við móður hennar um skeið, þrátt fyrir skírlífisákvæði kaþólsku kirkjunnar. Á æskuárum hennar voru sjö manns á heimil- inu: móðir hennar, Clara og Doreen systur hennar og frændsystkinin Josephine, Catherine og Edward, börn móðursystur hennar sem dó árið 1998. Þegar Caroline var ell- efu ára gömul varð móðir hennar að flytja með fjölskylduna frá borg- inni Blantyre, þar sem hún vann fyrir sér sem saumakona, í þorp- ið Chiradzulu til að sjá um móður sína. Eldri systir móður hennar var þá dáin. Móðirin fékk krabbamein „Það má gera sér í hugarlund hvaða merkingu lífið hafði fyrir mig, systkini mín og frændsyst- kini eftir að hafa misst svo marga nákomna ættingja. Svo veiktist mamma í ársbyrjun 2001, eftir nokkurra mánaða þjáningu greind- ist hún með leghálskrabbamein. Þrátt fyrir krabbameinsmeðferð breiddist meinið út og hún lést 20. nóvember 2002 vegna blóðmissis. Við tóku erfiðir tímar hjá mér og ættingjum mínum. Ég var í gagn- fræðaskóla. Clara var gift og Dor- een dáin. Einungis börn voru eftir á heimilinu, ég, frændsystkinin Josephine, Catherine og Edward og Dennis sonur Doreen. Áfallið var hræðilegt. Sorgin var að buga ömmu, sem lést ári síðar. Það var eins og himnarnir hefðu hrunið yfir okkur. En við urðum að bjarga okkur. Vinnusemin sem móðir mín hafði innrætt mér veitti mér þann styrk sem ég þurfti til að komast af. Við unnum hörðum höndum á maísakrinum okkar og uppsker- an var tíu pokar, sem dugði okkur fram á næsta ár. Þorpshöfðinginn tók eftir iðjusemi okkar og var svo vænn að gefa okkur áburð á akur- inn okkar. Stærsta vandamálið fyrir mig var hvernig ég gæti haldið áfram skólagöngu án þess að eiga fé fyrir skólagjöldum. Á meðan á regntím- anum stóð lifðum við á einstaka verkum sem okkur buðust, sem aðallega fólust í að reyta arfa í görðum nágrannanna. Peningana notuðum við fyrir nauðþurftum heima og til að greiða skólagjöldin. Á hverju misseri var ég rukkuð um skólagjöldin, sem lagðist þungt á mig. Ég seldi að lokum nokkur hús- gögn til að eiga fyrir þeim. Gjöld- in voru um 34 dollarar [andvirði um 3.800 íslenskra króna] og var þá skólabúningur innifalinn. Það var stórfé fyrir munaðarleysingja eins og mig. Ég held að einkunnirn- ar mínar hefðu orðið miklu betri hefði lærdómsumhverfi mitt verið betra. Sem betur fer voru Cather- ine og Josephine enn í barnaskóla á þessum tíma en í þá þarf ekki að greiða skólagjöld. Stóðst gylliboð karla Gagnfræðaskólaárin voru mjög erfið en móðir mín lést rétt eftir að ég hafði tryggt mér pláss í skólan- um. Fjárhagsvandræðin gerðu það að verkum að ég hefði getað látið freistast til þess að taka upp sam- band við menn til að safna pening- um fyrir skólanum og nauðþurft- um. Talsverður þrýstingur var á mér í þessum efnum, einn vinur minn sagði mér meira að segja frá því að nokkrir ungir menn væru að gefa mér auga og ég ætti að slá til. Ég sagði nei! Einhverjir vinir mínir hljóta að hafa hvatt þessa menn því ég fékk mörg ástarboð upp úr þessu og lét næstum undan. En mér tókst að minna mig á systur mínar og frænkur sem höfðu orðið mæður allt of ungar og ekki einu sinni gifst feðrum barna sinna. Allt vegna þess að þær voru sviknar í sambönd við menn sem vildu bara setja þær á lista yfir konur sem þeir hefðu náð í!“ Caroline lauk námi en fékk ekki nægilega góðar einkunnir fyrir háskóla. Hún dró fram lífið við sult og seyru en ákvað svo að læra blaðamennsku í eitt ár í Blantyre og fékk aðstoð við það frá systur sinni og manni hennar. Hún flutti svo til þorpsins Nkalo í ársbyrj- un 2009 en þar hafði móðurarfur hennar orðið uppspretta deilna sem hún vildi ekki taka þátt í. Hún fór út í rekstur með frænku sinni og þær opnuðu verslun í Blantyre. Starfar fyrir Rauða krossinn Þar komst hún á nýjan leik í kynni við Rauða krossinn en hún hafði fengið heimsókn frá starfsfólki hans skömmu eftir að móðir henn- ar lést. Þau höfðu gefið henni og frændsystkinum hennar áburð og henni dagbók til þess að hún gæti setið við skriftir eins og hana dreymdi um. „Ég er mjög þakklát Rauða krossinum í Malaví fyrir að hafa uppi á mér og hvetja mig til dáða. Ég tek núna þátt í starfi þeirra. Eftir að ég sagði þeim frá lífi mínu og baráttunni vildu þau fá mig til starfa fyrir sig. Ég tek nú þátt í starfi sem miðar að því að styrkja ungar stúlkur og upplýsa þær um hætturnar sem fylgja ótímabær- um þungunum og giftingum og alnæmi. Vegna þess að ég er sprottin úr sama umhverfi og þær getur lífs- hlaup mitt orðið þeim hvatning. Þó að ég sé flutt til Blantyre hitti ég stúlkur í Nkalo hálfsmánaðarlega ... Ég er þakklát Rauða krossinum fyrir að leyfa mér að deila reynslu minni. Ég vona að þessi stutta saga um baráttu okkar hér muni einnig nýtast Rauða krossinum á Íslandi til að safna fé fyrir starfið hér.“ Himnarnir hrundu Caroline Seyani missti móður sína þegar hún var fimmtán ára gömul. Föður sinn þekkti hún aldrei. Hún er einn skjólstæðinga Rauða kross Íslands í Malaví og Fréttablaðið birtir hér brot úr sögu hennar. Sigríður Björg Tómasdóttir tók saman. URÐUM AÐ BJARGA OKKUR Caroline Seyani segir vinnusemi sem móðir hennar innrætti henni hafa veitt sér styrk til að bugast ekki eftir að móðir hennar lést og börnin þurftu að sjá um sig sjálf. Mynd/Þorkell Þorkelsson Gorgelhátíð Guðríðarkirkju Sunnudagur 3. okt kl 20.00FERÐASAGA GUÐRÍÐAR Ævi og ævintýri hinnar víðförlu og mögnuðu víkingakonu Guðríðar Þorbjarnardóttur sem sigldi alla leið til Ameríku í kringum árið 1000. Leikkona: Þórunn Erna Clausen // Leikstjóri: María Ellingsen NÚ ER ÞAÐ SVART Mánudagur 4. okt kl. 20:00 Karlakórinn Fóstbræður, KK og Davíð Ólafsson syngja tregatónlist úr öllum áttum. Gestasöngvari: Stefán Helgi Stefánsson. Þriðjudagur 5. okt. kl. 20:00SÍGILDIR SÖNGVAR FJÖRKVÖLD OG TÖÐUGJÖLD STÓRTENÓRAKVÖLD SKEMMTIKVÖLD FEMINSKAR ENGLARADDIR Diddú og Drengirnir ásamt Páli Óskari og Moniku Abendroth. South Riverband fagnar hausti með krafti og kæti. Stórtenórakvöld með ottustu tenórum landsins. Fram koma Gunnar Guðbjörnsson, Gissur Páll Gissurarson, Snorri Wium, Garðar Thór Cortes, Hlöðver Sigurðsson og Einar Clausen. Við píanóið situr Helga Bryndis Magnúsdóttir. Miðvikudagur 6. okt kl. 20:00 Fimmtudagur 7. okt kl. 20:00 Föstudagur 8. okt. kl. 20:00 Skemmtikvöld með hljómsveit Magga Kjartans. Fram koma Bjarni Ara, Raggi Bjarna, Óperuídívurnar Davíð og Stefán og Karlakór Kjalnesinga. Sunnudagur 10 okt. kl. 14:00 Stúlknakór Reykjavíkur og stúlknakórfrá Berlín syngja. VIÐ SÖFNUM FYRIR ÍSLENSKU KIRKJUORGELI Í GUÐRÍÐARKIRKJU Guðríðarkirkja í Grafarholtinu fékk Björgvin Tómasson til að smíða orgel í kirkjuna. Við þessa smíði hafa 4 menn fulla atvinnu en nú er verkið stopp og verkstæðinu verður lokað ef ekkert verður að gert. Kirkjan blæs til menningarviku 3. til 10. október sem kallast Gorgelhátíð Guðríðarkirkju. (Vísar í Gormánuð og orgelhátíð). Miðasala v ið innganginn eða í síma 577 7770 frá kl. 10 – 16 alla daga. Kirkjustétt 8, í Grafarholti. Miðaverð 2.500 kr. Gjafapípur til sölu.Söfnunarsími 903 3030 styrkir verkefnið um 3000 kr. Sjá nánar á www.grafarholt.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.