Morgunn - 01.06.1929, Blaðsíða 99
MORGUNN
89
með að skýra á annan hátt en ]>ann, að þar hafi verið um
að ræða áhrif frá meistara, honum sjálfum snjallari.
Nú er þess að geta, hvernig þau v. Reuter og móðir
hans náðu sjálfstæðu sambandi, svo að þau gátu haldið
áfram rannsóknum sínum upp á eigin spýtur. Þau náðu
í einskonar stafaborð með hreyfanlegum vísi, og kom
það í ljós að frúin gat ósjálfrátt hreyft þennan vísi
með hendinni, þannig að hann benti á stafi, sem mynd-
uðu læsileg orð. Þau höguðu þessu nú svo, að frúin sat
með bundið fyrir augun og benti hönd hennar með vís-
inum á stafi, sem hún sá ekki sjálf, en sonur hennar sat
með blýant og blað og skrifaði orðin, sem út komu. Síðar
hepnaðist v. Reuter sjálfum að láta nota hönd sína bæði
við þetta stafaborð og einnig við ósjálfráða skrift. Áður
en ég skýri stuttlega frá því sem stærst, alment sönn-
unargildi bar með sér af þessum skriftartilraunum, ])á
vil ég, til þess að halda sambandinu við það sem komið
er, segja frá því, hvernig Paganini gerði þarna vart við
sig. —
Kona nokkur, sem fékst við ósjálfráða skrift, hafði
komið til v. Reuter með þá fregn, að andar hefðu sagt
sér, að hann (v. Reuter) væri Paganini endurborinn.
Þessi kona, sem var í góðum kunningsskap við þau mæðg-
in, var sjálf mjög trúuð á endurholdgun. Lét hún fylgja
þá tilgátu, að ástæðan til þess að Paganini væri þarna
endurborinn í líki v. Reuters, væri sú, að hann þyrfti
að bæta fyrir slark sitt og illan lifnað og alast upp við
&óða siðu.
Nokkru síðar, þegar frú v. Reuter var við stafaborðið,
dettur þeim í hug að vita hvað andinn, sem kallaði sig
Paganini, segði um þennan einkennilega boðskap. Hann
svaraði og kvað það vera ósvífna móðgun að kalla sig
slarkara og siðleysingja og lofaði að gefa réttar upplýs-
mgar, ])egar þau hefðu tíma næst.