Morgunn - 01.06.1929, Blaðsíða 75
M0R6UNN
65
Warrick hefir skrúfað saman tvö reikning-sspjöld, lagt
þau á borð, en hendur frú Deane hefir hann bundið
saman og fest þær með taug við borðið. Síðan hefir hún
stutt þeim ofan á spjaldið efra á borðinu, og hefir
þá verið komið mannsnafn innan á annað spjaldið, er
spjöldin voru tekin sundur. Þetta er ekki nýtt, því að
samskonar þekkja eldri rannsóknamenn, en það sýnir
það, að frú Deane hefir einhvern kraft, eða veitir einhver
skilyrði til þess að atvik gerist umhverfis hana, sem ekki
verða skýrð með venjulegum hætti. Hún hefir oft tekið
ljósmyndir, að viðhöfðum ströngum varúðarreglum, og
hafa henni algerlega óþektir menn fengið hjá henni auka-
myndir á ljósmyndaplötur sinar, er þeir telja óvéfengj-
anlega af ættingjum sínum, sem frú Denae gæti ekki með
nokkru móti hafa þekt eða kunnað nokkur skil á.
í Edinborg eru bræður tveir, er heita Falconer, sem
hafa fengist við myndatöku. Hafa þeir fengið aukamynd-
ir á ljósmyndaplötur. En ekki eru þeir svo nafnkunnir
sem William Hope og frú Buxton eða frú Deane. Á
vopnahlésdaginn (11. nóv.) var gerð tilraun í Edinborg,
og komu á plötu myndir af mörgum mannshöfðum,
ósýnilegum þeim, er við voru staddir. En ekki munu þar
hafa verið við hafðar neinar varúðarráðstafanir, svo að
*nynd sú hefir hætt við ekkert gildi að skoðun þeirra,
sem halda, að allar sálrænar myndir sé fram komnar
fyrir svik og pretti.
IV.
Þó að svo ríkar varúðarráðstafanir hafi fjölmörg-
um sinnum verið viðhafðar, þegar dulrænar myndir hafa
komið á ljósmyndaplötur, svo ríkar, að eftir almennri
reynslu sé óskiljanlegt, hvernig unt hefði verið að koma
svikum við, þá er við búið, að ýmsir verði til þess að
segja eitthvað á þessa leið: Því verða engin takmörk sett,
hverjum brögðum sjónhverfingamenn og loddarar geta
beitt. Og er rétt að gera ráð fyrir því, að allir miðlar sé
af því sauðahúsi. Og sé því tryggast að ætla, að ljós-
5