Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 5
MORGUNN
99
Þó verður naumast sagt, að hér hafi verið um for-
vitni eina eftir nýmælum að ræða. Þúsundir og aftur
þúsundir bóka er þegar búið að gefa út um málið. Mikill
fjöldi tímarita um það er gefinn út um allan hinn mennt-
aða heim, og í félögum og félagasamböndum spíritista
víðsvegar um löndin eru milljónir og aftur millj. manna.
Nei, hér var ekki um einskæra forvitni eftir nýmælum
að ræða. Þótt geysilega mikið efni fyrirbrigðanna sé
órannsakað enn, hafa þó ekki fáir af hinum ókrýndu kon-
ungum í ríki jarðneskra vitsmuna og vísinda lagt þanr,
grunn, sem hleypidómalausir menn vita, að öruggt er að
treysta, ef mannlegri dómgreind og mannlegu viti og
vitniíburði má trúa yfirleitt. Staðreyndirnar eru svo
máttugar, að sigurför þeirra verður ekki stöðvuð.
Boðberi þessa málefnis hefir Sálarrannsóknafélag ís-
lands leitast við að vera með íslenzku þjóðinni í 25 ár,
en það var stofnað hér í Reykjavík 19. des. árið 1918.
Um félagið sjálft ætla ég ekki að fara mörgum oröum.
Fyrsti forseti þess var Einar II. Kvaran, rithöfundur, og
stýrði hann því frá stofnun þess og þangað til hann livarf
af vorum heimi vorið 1938, eða um nærfellst 20 ára skeið.
Fyrsti varaforseti þess var prófessor Ilaraldur Níelsson
frá byrjun og unz hann andaðist tæpum tíu árum síðar,
en varaforseti er síðan prófessor Þórður Sveinsson lækn-
ir. Félagsböndin eru svo frjálsleg, að félagi verður hver,
sem kaupir ársskírteini á fundarstað, og félagi hættir
hann að vera af sjálfu sér, þegar hann kaupir ekki skír-
teini lengur. Þetta er sennilega meðal annars orsök þess,
að félagið hefur aldrei verið ákaflega fjölmennt, en oss,
sem veitum félaginu forstöðu og vitum hversu mikið er
óunnið af því, sem mesta nauðsyn er til að unnið verði,
finnst, að allir, sem málinu unna og áhuga hafa fyrir
því, ættu að vera félagar, hvort sem þeir geta sótt fund-
ina eða ekki. Með því er unnt að veita málefninu mikils-
verðan stuðning. Auk þess, sem félagið hefur rekið til-
raunafundi, þegar um góða miðla hefur verið að ræða,