Morgunn - 01.12.1943, Side 13
M 0 R G U N N
107
get ég þess enn, því að það verður aldrei of oft endur-
tekið, að líkamningarnir fóru ævinlega fram fyrir augum
mínum og ég athugaði upphaf þeirra og alla þróun“.
TILFLUTNINGA- OG LYPTINGA-FYRIRBRIGÐI
Þá er önnur tegund hinna líkamlegu fyrirbrigða, lypt-
ingafyrirbrigðin svo nefndu: sú staðreynd, að hlutir hefj-
ast í lopt upp og berast um tilraunaherbergið, án þess
nokkur mannleg hönd snerti þá, eða séð verði, að nokkur
vísvitandi mannlegur máttur sé þar að verki. En sama
lögmálinu lúta sennilega að nokkru leyti hin svo nefndu
tilflutninga fyrirbrigði, sem í því eru fólgin, að inn í
lokað tilraunaherbergið berast hlutir, sem sannanlega
voru þar ekki, heldur á allt öðrum stað, stundum í óra-
fjarlægð, þegar fundurinn hófst.
Af lyptingafyrirbrigðunum eru þau stórfelldust, þegar
miðillinn er sjálfur hafinn í lopt upp í transinum og
svífur þannig yfir höfðum fundarmanna. Dæmi eru mörg
og með „infra“-rauðu ljósi hafa verið teknar myndir af
miðlunum í þessu furðulega ástandi. I viðurvist þriggja
kunnra manna á sinni tíð, þeirra lávarðanna Adare og
Lindsay og Wynnes herforingja, hófst miðillinn frægi,
D. D. llome í lopt upp, og láréttur sveif hann í loptinu út
um einn glugga og inn um annan, á þriðju hæð í húsinu,
sem þeir voru staddir í. Ilin alkunna frú Guppy, sem
andaðist árið 1918 í Englandi, barst einu sinni í transi
á fáum mínútum úr heimili sínu og inn til kunningja
sinna., sem voru að halda tilraunafund á öðrum stað í
Lundúnaborg, Þar sem öllum dyrum og gluggum var
vandlega læst, og miðillinn Jack Webber, sem andaðist
ungur fyrir þrem árum í London, hófst margsinnis í lopt
upp í transinum, sveif yfir höfðum fundarmanna og kom
rólega niður fyrir utan liringinn, sem um hann hafði
setið í transinum. Hjá honum gerðust fyrirbrigði þessi í
myrkri og mér er ekki kunnugt um að af þeim hafi náðst