Morgunn


Morgunn - 01.12.1943, Side 62

Morgunn - 01.12.1943, Side 62
156 M 0 R G U N N Athyglisverð lækning. í erlendum tímaritum um sálræn efni eru stöðugt birtar frá- sagnir af lækningaundrum, og úr einu þeirra (Light, 19. ág. 1943) er tekin frásögn sú, er hér fer á eftir. Slík fyrirbrigði gerast vafalaust einnig hér á landi og hafa mér verið sögð nokkur dæmi þess af trúverðugu fólki, sem engin leið er til að rengja. En það er svo um þessi sem önnur svo nefnd „dularfull fyrirbrigði“, að þar sem hver þekkir annan, er fólk tregt á að birta opinberlega reynslu sina, og er það að vissu leyti skiljanlegt, þótt hins vegar sé slæmt, að slíkir hlutir séu látnir í þagnargildi. Kjósi fólk að halda n’afni sinu leyndu, má birta slíkar sögur undir dulnefnum. eins og enski presturinn gerir,. sem þessa sögu birti. Einn af prestum landsins, séra Jón Guðjónsson í Holti undir Eyjafjöll- um, hafði þá drengilegu einurð að leyfa Kirkjuritinu á liðnu ári að birta frásögn af merkilegri lækning, sem kona hans hafði fengið. Vakti þessi frásögn mikla athygli og var til sæmdar, bæði prestinum og próf. Asmundi Guðmundssyni. Væri einkum æskilegt að trúmálablöðin hefðu meira af slíku efni að flytja lesendum sínum, svo ói'ækan vott bera þessi fyrirbrigði þeim andlega veruleika sem kirkjan er að boða, en fjölmargir tregð- ast þó við að trúa, vegna þess að kenningin er ekki studd þeim ytri staðreyndum, sem mörgum mönnum eru nauðsynlegar og frumkristnin var svo auðug að, að menn stóðust ekki trúboð hennar. Ritstj. Enskur prestur, sem raunar notar dulnefnið séra F. T. Tristram, segir þannig frá: „Um mörg ár hafði konan mín borið miklar þjáningar af illkynjuðum taugasjúkdómi og til allrar óhamingju hafði læknirinn hennar vanið hana á að nota kókain. Þeir sem verða fórnardýr þessa ægilega eiturlyfs, verða ótrú- lega slungnir í að dylja ástand sitt fyrir öðrum, og það hafði konunni minni tekizt svo vel, að lengi hafði ég enga hungmynd um það en taldi sjúkdóm hennar eiga allt aðrar orsakir. Eins og margar aðrar konur í hennar stétt hafði hún slitið sér út í ýmiskonar starfi fyrir söfnuðinn okkar og lagt hart að sér til þess að láta hinar litlu tekj-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.