Morgunn


Morgunn - 01.12.1943, Side 72

Morgunn - 01.12.1943, Side 72
166 M 0 R G U N N frú Butler, með mikilli geðshræring: „Guð komi til! Þetta er húsið, sem ég hefi séð í draumum mínum!“ Svo nauðþekkti hún draumahúsið sitt, að þegar verið var að sýna henni það, nam hún staðar við dyr nokkrar, sem hún kvaðst alls ekki muna eftir. En þá kom úr kaf- inu að dyrnar höfðu verið settar í vegginn fáum mánuð- um áður, og eftir að hana hafði dreymt draumana! Þetta virtist nægja til þess að sanna, að hún hefði raunverulega komið á þennan ókunna stað, meðan líkami hennar svaf í írlandi, en þó er það furðulegasta eftir: Þegar húsvörðurinn sá frú Butler, brá honum mjög, og hann hrópaði: „Hvað er þetta! Þér eruð þá draugurinn okkar!“ Síðar fengu Butlershjónin að vita það hjá leigusalan- um, að ástæða þess hve húsið var leigt vægu verði, var sú, að draugagangur hefði verið í húsinu. „Draugurinn“ var enginn annar en frú Butler sjálf, er hún hafði farið sálförum í svefni, án þess að vita hvað af þeim ferðum átti að hljótast! Frásögn þessi virðist vera ákjósanlega trygg að sann- leiksgildi, þótt hún sé fimmtíu ára gömul, því að gætnir höfundar nota hana hiklaust sem örugga heimild, og hún er furðuleg að ýmsu leyti. Ekki um það að sálin ferðist til fjarlægra staða, meðan líkaminn sefur, því að af dæm- um þess mætti fylla heila bók, og hana stóra. Ileldur ekki fyrir það, að sálfarinn verður sýnilegur á þessu ferðalagi sínu, þótt hann sjái sjálfur engan mann; dæmi þess eru einnig mörg og ákjósanlega vottfest. 'Furðuleg þykir mér sagan einkum fyrir það, að frúin skuli einmitt fara að venja komur sínar í það hús, sem ári síðar verður heimili hennar, sem hún hefur enga hug- mynd um að sé til, þegar hana fer að dreyma draumana. Hvernig stendur á því? Ilver ræður þessum ferðum henn- ar? Forlagatrúarmenn munu segja, að þetta hús hafi af máttarvöldunum verið ákvarðað sem framtíðarheimili
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.