Morgunn - 01.12.1944, Blaðsíða 13
M O R G U N N
107
En hvert á þjónusta vor þá að ná? Hún á að ná til vorra
jarðnesku bræðra og systra, en dagurinn í dag, Allra sálna
messa, á þó sérstaklega að minna oss á, að þjónusta vor á
einnig að ná til þeirra, sem af jörðinni eru farnir. Hönd
vor nær svo skammt, oft svo miklu skemur en hjartað vildi,
en hugurinn nær miklu lengra. I skeytunum að handan er
stöðugt verið að minna oss á, að þeir framliðnir, sem ná-
lægt eru jarðarsviðinu enn, séu miklu opnari fyrir hugs-
unum vorum, góðum og illum, en vér gerum oss ljóst. Og
hvílík ábyrgð hvílir ekki á oss, ef svo er? 1 sambandi við
hinar margvíslegu reimleikasögur frá fyrri tímum kemur
mér oft til hugar, að hinn illi hugur, sem menn af mis-
skilningi og hleypidómum báru til þessara fyrirbrigða eða
veranna, sem ollu þeim, hafi magnað hið illa í andaheim-
inum, og þess vegna hafi þessi fvrirbrigði tekið á sig þær
tröllslegu myndir, sem raun varð á. Er það ekki hugsan-
legt, að sú mildi hugarfarsins, sem tvímælalaust hefir vax-
ið mjög á síðari tímum, ásamt þekkingunni á þessum efn-
úm, sem þrátt fyrir alla andstöðu er að breiðast út meðal
manna, sé orsök þess, hve reimleikafyrirbrigði nútímans
bera oftast á sér mildari blæ en áður var, meðan harð-
neskja manna var meiri en nú, bæði þeirra, sem nýlega
voru komnir af jörðinni og hinna, sem voru þar enn? Ef
vér getum eignast hlutdeild í því, að efla hið góða í tilver-
unni, er tvímælalaust ómaksins vert að reyna það. Og jafn-
vel sérstaklega þegar svo stendur á sem nú, að þúsundir
manna hverfa oft daglega af jörðinni í haturshug, formæl-
andi þeim, sem hafa steypt þeim í glötun, væri það yndis-
tegt, að mega taka þátt í starfi þeirra helgu þjóna, sem
undir merkjum hans, sem forðum steig og stígur enn niður
fil heljar, vinna að því, að færa þeim frið. sem vor frið-
lausa jörð bjó þjáning og böl. Það er raunalegt til þess að
Vlta, að sumir svo nefndir kristnir menn skuli ekki rækja
betta mikilvæga starf af eins mikilli alvöru og sumir hinna,
sem ekki teljast kristnir. 1 heimsstyrjöldinni síðustu var
dnnið merkilegt starf austur í Kína. 1 Búddhaklaustrun-