Morgunn


Morgunn - 01.12.1944, Side 47

Morgunn - 01.12.1944, Side 47
MORGUNN 141 lifandi, ég er lifandi! Þegar hún kom heim, var hún orðin gjörbreytt og hefir verið örugg og hughraust síðan. Jafnskjótt og konan mín hafði gengið út úr herberginu. fann ég, að sonur minn var hjá mér, eins og kippti í ermi mina og sagði: Þú átt að komast í samband við mig, pabbi. Ég veit að þú veizt um þetta (hvernig á að fara að því að ná sambandi). Ég leitaði í gömlum lista yfir miðla og símaði til eins, sem býr skammt frá mér. Hann kom til mín næsta dag og féll í trans. Andastjórnandi hans fór þegar að tala um pilt í flugmannsbúningi. Hann talaði heilmikið, sem var óskiljanlegt og mér leiddist, en þá fór hann að tala um flugvél, sem hefði bilað, og að flugmaðurinn, sem hefði verið þessi piltur, sem væri hjá okkur, hefði stýrt henni til jarðar. Einhver hefði séð þetta. Andastjórnandinn hélt áfram: ,,Ég skil þetta ekki. Það er eins og hann hafi komið rétt niður, en hann er eitthvað að sýna mér, að vængirnir á vélinni hafi rekizt í sand- hrúgur, eitthvað hafi rekizt í hnakkann á sér og að þá hafi hann samstundis farið yfir“. Þessari lýsing af dauða hans bar eltki saman við það, sem okkur hafði verið sagt, en tveim dögum síðar fengum við staðfesting á því, að þetta hefði raunverulega gerzt með þessum hætti, þegar við hittum liðsforingjann, sem séð hafði flugvélina hrapa. Sandhrúgurnar var mölin í jaðri flugvallarins, þar sem vængirnir lágu þá enn. Þá sagði andastjórnandinn, að piltinum væri mjög annt Um að láta okkur vita, að hann hefði ekki getað umflúið slysið og ekki átt sök á dauða gæzlumannsins, sem hann Væri mjög leiður yfir. Þá var okkur sagt, að hann væri leiður yfir því, að hann hefði ekki átt neina mynd af sér 1 flugbúningi sínum, sem móður hans hefði langað til að eiga, en nú yrði hún að láta sér nægja síðustu myndina af sér, augnabliks-hópmynd, þar sem hann væri óein- hennisbúinn. Staðnum, þar sem slysið gerðist, var nákvæmlega og

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.