Morgunn - 01.12.1944, Síða 50
144
MORGUNN
eldra sinna um efni, sem okkur var gersamlega ókunnugt
um. Á leiðinni heim komum við við hjá þessum vinum okkar,
og sögðum þeim orðsendinguna. Faðirinn þar kannaðisf
þegar við, að hún væri rétt.
Þessi þekking hefir gersamlega breytt lífi okkar. Hún
hefir skapað þýðing fyrir tilveru, sem áður var gersam-
lega þýðingarlaus, og hún hefir skapað alheiminum til-
gang, sem við sáum ekki áður. Hún hefir gjört kristin-
dóminn raunverulegan og birt okkur hinn dulda sannleik,
sem er á bak við alla helgisiði og táknmál kirkjunnar, sem
við höfum játazt til.
En öllu fremur vitum við nú, að það, sem við höfum
gert fyrir drengina okkar, eða öllu heldur hjálpað þeim
til að gera fyrir sjálfa sig, var ekki til ónýtis. Og að það,
sem þeim varð sjálfum úr lífi sínu, flytja þeir með sér yfir
í annað líf, — að vísu ekki alveg óbreytt, því að snerting-
in við hið sanna líf hlýtur að breyta mönnunum. Þó ekki
meira en svo, að þeir eru auðþekkjanlegir, enda þótt þeim
sé örðugt, að koma til vor, með hjálp miðlanna.
Kr. Daníelsson þýddi úr Ps. News.
Plútark,
sagnfræðingurinn gríski (50—h.u.b. 125 e. Kr.), sem fræg-
astur er fyrir hinar merkilegu ævisögur grískra og róm-
verskra mikilmenna, kenndi, að þeir, sem ná vilja sam-
bandi við æðri vitsmunaverur, verði að afneita jarðnesk-
um hégóma og leggja stund á sjálfstamning til þess að
veita hinum æðri hæfileikum vald yfir hinum lægri.