Morgunn - 01.12.1944, Qupperneq 33
MORGUNN
127
Þegar hann vandist nýja lífinu í andaheiminum, varð
Geoffrey fyrir mörgu, sem honum fannst skemmtilegt og
merkilegt. Eitt af því var veruleiki alls þess, sem hann sá.
Þetta var ekkert skuggaland, heldur var það staður, sem
var miklu fyllri, bæði fyrir sál og líkama, en sá staður, sem
hann fór frá. Já, sál og líkama, því að hann komst að raun
um, að andlegi líkaminn er samstæða efnislíkamans, að
því undanskildu, að hann hefur enga löngun í þá hluti og
þær framkvæmdir, sem eiga eingöngu við efnislíkamann,
en láta engin merki eftir sig í huganum eða móta skap-
gerðina að neinu leyti, og hann hafði heldur enga freist-
ingu til að gera neitt, sem gat meitt aðrar verur. Hann
fann, að honum var ekki meinað að hafa gaman af ýmsum
einföldum, líkamlegum skemmtunum, svo sem göngum og
ferðum og hinni töfrandi hreyfingaraðferð, sem helzt líkt-
ist því, að renna sér og líða yíir jörðina. Líkami
hans varð aldrei þreyttur, þótt hann yrði stundum var við
andiega þreytu, þegar hann heimsótti jörðina í þeim er-
indum, að hjálpa einhverjum, en hann varð fljótt afþreytt-
ur aftur, þegar hann kom á sitt eigið svið. Hann sá, að störf
og áhugamál voru mörg og margvísleg og náðu yfir flest
það, sem þekktist á jörðunni, nema það, sem orsakaði þján-
ingar annara, hvort sem það voru menn eða dýr.
Þeir menn, sem höfðu listgáfur hér á jörðinni, svo sem
hljómlistarmenn, málarar og myndhöggvarar, svo að ég
uefni aðeins fáa, héldu áfram við störf sín og þeir, sem
hneigðir voru fyrir störf þessi á jörðinni, en voru útilok-
aðir frá þeim, af jarðneskum erfiðleikum eða tilliti til
annarra, urðu þess nú varir, að þeir gátu fylgt tilhneigingu
sinni og gefið fegurðarþrá sinni útrás í því, sem þeim var
eðlilegast. Geoffrey elskaði hljómlist og liti, en hann gat
ekki að öllu leyti útilokað úr huga sínum þjáningar sviðs-
ins, sem hann var nýhorfinn frá. Hann mundi eftir auðn-
inni og eyðileggingunni, sem hann hafði svo oft orðið sjón-
arvottur að eftir loftárásir, og hinum drepnu og særðu.
Hann mundi líka eftir, hve ruglaður hann hafði verið,.