Morgunn - 01.12.1944, Side 54
148
MORGUNN
er sú stórfellda þróun möguleg, þeirra sálrænu hæfileika,
sem nú eru smánaðir, fyrirlitnir og látnir þjóna auðvirði-
legum markmiðum.
Hver er þá þessi sálræni hæfileiki? Er það nýr hæfileiki,
sem kom í ljós hjá Fox-systrunum fyrir meira en 90 árum?
Fjarstæða! Það er hæfileiki, sem hefir verið förunautur
mannkynsins frá eilífð, frá því áður en sögur hófust. Hann
er einn af þáttum mannlegs eðlis. Ég hygg, að oss beri að
skoða hann sem það tæki, er skaparinn hafi gefið oss til
að afla oss með þeirrar þekkingar á lífi sálarinnar, sem er
grundvallarskilyrðið fyrir andlegri þróun.
Hvað er sálin? Sálin er sálarlíkaminn, sem er innibyrgð-
ur í efnislíkamanum, sálarlíkaminn, sem er bústaður and-
ans, sjálfsins, aflsins, sem stjórnar líkamanum, hugans.
Samkvæmt hyggju spíritistanna er þessi sálarlíkami eter-
líkami, sem gegnsýrir efnislíkamann eins og eterinn gegn-
sýrir loftið og rúmið. Og er það ekki eftirtektarvert að
minnast þess, að þessi ætlun spíritistanna nú á tímum, að
eterinn sé uppistaða sálarinnar, staðfestir trú þá, sem
Pythagoras boðaði á 6. öldinni f. Kr.? Pythagoras, hinn
mikli andlegi leiðtogi og heimspekingur, fullyrti, að sálin
væri hálf-efniskennd, eterísk, og væri aðsetur andans,
sjálfsins, hins stjórnandi máttar. Hann kenndi ennfremur,
að sálin væri lík útlits og jarðneski líkaminn og að í dauð-
anum flyttist andinn burt úr efnislíkamanum í sálarlíkam-
ann. Pythagoras trúði ennfremur því, að skapandi eter-
efni gegnsýrðu alla sýnilega hluti og að í gegnum þetta
eterefni, eða með það sem millilið, verkaði hinn guðlegi
hugur á hinn sýnilega heim. Eterefnið væri þvi hinn mikli
milliliður milli hins sýnilega og hins ósýnilega, milli anda
og efnis.
Ég geri ráð fyrir, að yður sé það öllum kunnugt, að sá
nútímamaðurinn, sem haldið hefir fastast fram svipaðri
skoðun á eternum og hlutverki hans í alheiminum, er Sir
Oliver Lodge.