Morgunn - 01.12.1944, Page 81
M O R G U N N
175
1 grein MORGUNS sagði m. a. svo: „Að fráskildum
nokkrum góðum greinum, einkum eftir séra Svein Víking,
er bláðið (Kirkjublaðið) að miklu leyti orðið fremur lélegt
fréttablað um allt og ekkert, þar sem ekki ber hvað minnst
á lofsamlegum fréttaummælum um nýstofnaða kirkjukóra,
sem útvarpshlustendur eru flestir orðnir fullsaddir af að.
heyra um, löngu áður en fréttirnar eru prentaðar". Þessi
ummæli tekur séra Sv. Víkingur sérstaklega til athugunar
og telur þau ómakleg í garð þess starfs, sem nú sé unnið
til að bæta kirkjusönginn í landinu. Þessi orð áttu engan
veginn að vera niðrandi um starf söngmálastjóra, heldur
áttu þau að benda á það, að á þessum tímum, þegar hugs-
andi menn sjá mikla vá fyrir dyrum kirkjunnar og áhrif
hennar eru stöðugt að þverra, mætti ætla, að hinu dýrmæta
rúmi í málgagni kirkjunnar væri betur til annars varið
en til allt of mikils flutnings á fréttum, sem útvarpið er
áður búið að bera hlustendum í eyru. Ef menn hafa yfir-
leitt eitthvað að segja, á að láta hið þýðingarmeira sitja i
fyrirrúmi fyrir því, sem hefir minni þýðing. Nú vita allir,
að kirkjusöngurinn er engan veginn þýðingarlaus, en hann
getur aldrei orðið aðalatriði kirkjulífsins. Dæmin eru nær-
tæk. í kirkjum höfuðstaðarins er nú sennilega betur sung-
ið en nokkuru sinni fyrr. Guðsþjónusturnar eru fásóttari
en áður engu að síður. Þar er oft fluttur söngur, sem ver
gæti sæmt. sér á góðum hljómleikum, fólkið kemur bara
ekki til kirkjunnar til að hlusta á þann söng. Kirkjusöng-
or úti um hinar dreifðu byggðir landsins getur vitanlega
hvergi jafnazt á við sönginn í kirkjum höfuðstaðarins, að
því liggja eðlilegar ástæður, en þó er gott verk, að fegra
hann svo sem unnt er. En ef hinn fágaði söngur í kirkjum
Reykjavíkur lokkar fólkið ekki til kirknanna, halda menn
þá, að miklu lélegri söngur úti um landið muni fyila kirkj-
urnar þar? Og þó hann gerði það, yrði það skammgóður
vermir, ef ekki verður fyrsta áherslan lögð á þá endurnýj-
un, þá
innri nýsköpun kirkjunnar, sem hugsandi menn 1
°hum löndum eru farnir að þrá.