Morgunn - 01.06.1950, Blaðsíða 53
MORGUNN
47
hér birtist, til indversku þjóðarinnar í útvarpið í Delhi.
MORGUNN birtir þetta ávarp til þess að kynna lesendun-
Um að nokkru, hvernig Indverji talar til Indverja um
málið.
★
.Æðsta þrá mannsins er að læra að þekkja eitthvað af
leyndardómum lífsins, bæði hins jarðneska lífs og þess,
sem fer á eftir. Munurinn á heimspekingnum og hvers-
dagsmanninum á götunni er einkum í því fólginn, hve
misjafnlega sterk þessi þrá hans er. Enginn kynflokkur
°g engin trúarjátning neitar tilveru andlegs alheims. Þús-
undir alvarlegra rannsóknamanna eru önnum kafnir við
að reyna að rífa niður þann þunna hjúp, sem aðskilur
hinn komanda heim frá heimi vorum.
Eftir heimsstyrjöldina jókst stórkostlega áhugi manna
fyrir dulfræðum. Viðurkenndir vísindamenn í Evrópu og
Ameríku hafa beint athygli sinni og áhuga að þessum
efnum. Þeir hafa allir verið einhuga um þann skilning,
að trúarbrögðin eigi ekki að byggja á erfikenningum eða
úreltum kennisetningum, heldur eigi þau að byggja á
raunhæfri þekkingu á lögmálum þeim, sem ráða í anda-
heiminum og lífsaðstæðum þar. Af ótta við þekkingar-
leysi ofstopamanna vinna margir þessara vísindamanna i
kyrrþei að hinum sálrænu úrlausnarefnum .Þessi áhugi
er gleðilegt tímanna tákn. Það er ástæða til að vona, að
þegar þekking er fengin á grundvallaratriðunum, muni
reynast mögulegt að leysa mörg af hinum raunhæfu vanda-
málum jarðlífsins, og að unnt verði að afstýra margs-
konar böli með því að þiggja ráð hjá þroskuðum öndum
í ósýnilega heiminum.
Hindúar trúa yfirleitt á tilveru andaheims. Á síðari
tímum hafa samt menntamennirnir vor á meðal ekki
fengizt við rannsóknir á birtingum andanna. Þessir menn
htu yfirleitt þannig á, að tækin til að framkalla ójarðn-
eska anda væri að mestu leyti í höndum manna, sem