Morgunn - 01.06.1950, Blaðsíða 66
60
MORGUNN
En þar með er það ekki sagt, að málið sé einfalt. Það
er öðru nær en að það sé einfalt. Sumar þær gátur, sem
orðið hafa á vegi sálarrannsóknanna, kann ennþá enginn
að ráða. Og það er viturlegt að láta okkur sífellt hafa
fyrir augum óráðnu gáturnar og þær torráðnari. Það
kennir okkur lítillæti og hófsemi, og að gæta allrar var-
úðar. Við skulum varast að telja okkur vita of mikið,
því öll eigum við efalaust eftir að sanna orð Gríms Thom-
sens, er sjálfur virðist hafa séð flestum mönnum lengra
inn í dularheiminn:
Hérvistar drambið frá mér fer,
ég finn, er kemur þar,
að allir vöðum villu hér,
vitrir og heimskingjar.
Það er eins og Páll sagði, að nú sjáum við, svo sem í
skuggsjá í óljósri mynd. En þar fyrir ber okkur eigi að síð-
ur að skerpa sjónina eftir því sem unnt er.
Eitt er það, sem Light hefur ávallt vakað yfir (með
þeirri skammvinnu undantekningu er áður getur), en það
er, að spíritisminn sé ekki gerður að trúarbrögðum. Það
má hann aldrei verða, og í seinni tíð er það ýmislegt, er
til þess bendir, að gegn þeirri hættu þurfum við Islend-
ingar að vera vel á verði. Tilhneiging greindarlítils fólks
til þess að tileinka sér hann á þann hátt, er ofur skiljan-
leg. Þarna hallar því undan fæti. En stoð undir kenningu
kirkjunnar getur hann verið, og það er allt annað mál.
Light er gefið út af London Spiritualist Alliance (Spír-
itista-bandalagi Lundúna), efalaust einhverjum hinum
merkasta félagsskap spíritista sem til er. Lengst af hefir
það verið vikublað, en á stríðsárunum var það gert að
mánaðarriti og er svo enn. Var það mikið tjón. En þess-
ari ráðstöfun olli í fyrsta lagi pappírseklan, en víst líka
fjárskortur. Áskriftargjaldið er nú sem næst eitt sterlings-
pund. Ritið mundi efalaust hver sá bóksali útvega, sem við
England skiptir, þ. e. a. s. ef hann ræður yfir ensku fé til
þess. Sn. J.