Morgunn - 01.06.1950, Blaðsíða 85
MORGUNN
79
teljast til hinna svokölluðu líkamlegu fyrirbrigða, og hafa
einkum verið fólgin í dularfullum lyftingum dauðra hluta,
sem ekki varð séð, að mannleg hönd snerti við, höggum,
sem ekki var unnt að skýra með venjulegu móti, dular-
fullri skrift, og öðru þessháttar, sem alkunnugt er úr sögu
sálarrannsóknanna.
Réttilega hefur verið á það bent, að á engum þessara
fyrirbæra byggi spíritisminn þá staðhæfing sína, að sannað
sé að látinn lifi, og að þessvegna hvorki standi né falli
spíritisminn með þessum fyrirbrigðum, enda hafi frúin
aldrei starfað á vegum danskra spíritistafélaga og yfirleitt
ekki staðið í sambandi við danska spíritista.
Sum blöðin hafa í sambandi við þetta svikamál birt við-
töl við forystumenn danska sálarrannsóknafélagsins, sem
hafa lýst yfir því, að vegna grunsemda, sem þeir hafi
haft á frúnni, hafi þeir ekki leitað aðstoðar hennar um tíu
ára skeið. 1 viðtali við Berlingske Aftenavis segir rithöf-
undurinn Jakob Paludan, sem er alkunnur fyrir áhuga sinn
á vísindalegum sálarrannsóknum: ,,Það er bezt að svikin
séu afhjúpuð. Þá fyrst getum vér snúið oss að málinu og
gengið úr skugga um, hvort ósvikin sálræn fyrirbrigði eru
til .... Sálarrannsóknirnar eru ekki hið sama og Melloni-
hjónin.“
Danska dagblaðið Ny Tid skrifar skynsamlega um þetta
svikamál, sem varð að sjálfsögðu æsifregnaefni fyrir flest
blöðin, en þar segir svo: „Vissar hliðar á þessu máli hefðu
Þurft að koma Ijósar fram en raun varð á. Hér er um að
ræða það, að svik Melloni-hjónanna hafa verið afhjúpuð,
en ekki svik sálarrannsóknanna, sem vitanlega halda hik-
laust áfram sinni rás, þrátt fyrir þetta mál. Menn hafa
ekki gert nógu skarpan greinarmun á starfsemi Melloni-
hjónanna og því, sem sálarrannsóknirnar hafa eftir öðrum
teiðum leitt í ljós.“
I danska blaðinu Spiritisk Tidende er eðlilega skrifað
rækilegar um málið. Þar skrifar Emil Borkfelt á þessa leið:
„Vegna þess, sem útvarpið hefur flutt oss um svikastarf-