Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 4
4 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR LÖGREGLUMÁL Tveimur mönnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á 270 milljóna króna svikum á virð- isaukaskatti var sleppt í gær. Ekki var lögð fram krafa um framleng- ingu á varðhaldinu. Annar mannanna sem sleppt var í gær er fyrrverandi starfs- maður ríkisskattstjóra. Hinn er karlmaður á fertugsaldri, sem úrskurðaður var í gæslu- varðhald í október. Hann hlaut fyrr á þessu ári sex mánaða fangelsis dóm fyrir hlutdeild sína í kannabisræktun. Samtals hafa sjö manns setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins. - jss Virðisaukaskattsvikin: Tveimur mönn- um sleppt úr gæsluvarðhaldi SJÁVARÚTVEGUR Evrópusambandið undirbýr nú samevrópskt eftir- lit með hafsvæðum aðildarríkja, og hefur Noregi og Íslandi verið boðið að taka þátt í samstarfinu, að því er segir á vef sölusam- taka norskra síldarframleið- enda. Markmiðið er að samhæfa vöktun á höfunum þannig að upplýsingar á vaktkerfi einnar þjóðar verði aðgengilegar nágrannaríkjunum. Stefnt er að því að tölvukerfin verði að fullu samhæfð árið 2014. Með samhæfingunni verður auðveldara að bregðast við umhverfisslysum, hryðjuverk- um og glæpum á hafi. - bj Undirbúa samevrópskt eftirlit: Samhæfa vökt- un á höfunum LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu handtók í fyrra- kvöld fimm unga menn vegna fíkniefnasölu. Í húsleitum vegna rannsóknar málsins lagði lög- regla hald á fíkniefni og fjár- muni. Mennirnir sem handteknir voru eru allir um tvítugt. Þegar lögregla hafði afskipti af einum þeirra kom í ljós að hann var með talsvert magn af hassi í söluum- búðum, um fimmtíu grömm. Það leiddi til þess að lögregla ákvað að athuga málið nánar. Farið var í tvær húsleitir og voru fjórir aðrir handteknir. Rúmlega hundr- að grömm af hassi fundust, svo og rúmlega 200 þúsund krónur í peningum, sem talið er vera sölu- ágóði. Málið er upplýst. - jss Fundu peninga og fíkniefni: Lögreglan handtók fimm unga dópsala SAMFÉLAGSMÁL Forseti Norður- landaráðs kallaði forseta Norður- landaráðs æskunnar á sinn fund á fimmtudagsmorgun til þess að ræða framkomu eins þingfulltrúa við bar- þjón á Ölstofunni í Reykjavík. Eins og Fréttablaðið sagði frá í gær veittist ungur liðsmaður Sví- þjóðardemókrata (SD) að barþjóni af palestínskum uppruna með rasískum fúkyrðum og kastaði í hann glasi. Fréttir af þessu voru meðal fimm mest lesnu frétta á frétta- vefum sænsku dagblaðanna DN, Aftonbladet og Expressen í gær. Aftonbladet segir að niðurstaða fundar forseta Norðurlandaráðs og Norðurlandaráðs æskunnar hafi orðið sú að barþjóninum hafi verið send opinber afsökunar- beiðni Norðurlandaráðs æskunnar. Þar hafi atvikið verið harmað en um leið áréttað að ráðið tæki ekki ábyrgð á framkomu einstaklinga úr hópi þingfulltrúa og áheyrnar- fulltrúa. Sænsku fjölmiðlarnir nefna unga Svíþjóðardemókratann. Hann heitir William Hahne og er átján ára fjölmiðlafulltrúi ungliðahreyf- ingar SD, sem er þjóðernissinnað- ur hægriflokkur sem var einn af sigurvegurum þingkosninganna í Svíþjóð fyrr á þessu ári. „Við í Norðurlandaráði æsk- unnar flækjumst inn í þetta hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ segir Minna Lindberg, formað- ur Norðurlandaráðs æskunnar, í samtali við vefsíðuna E í gær. Hún var kölluð til fundar með forseta Norðurlandaráðs vegna málsins. Hún var á stödd Ölstofunni eins og fjölmargir aðrir þingfulltrúar en segist í samtali við Express- en ekki hafa séð hvað gerðist þótt hún hafi orðið vör við átök og segir að einn af félögum Hahnes í Norðurlandaráði æskunnar hafi tekið þátt í að róa menn niður. „Við höfum lagt mjög hart að okkur í samstarfi Norðurlanda- ráðs æskunnar og Norðurlanda- ráðs,“ segir Minna og kveðst vona að framkoma Williams Hahne á Ölstofunni í Reykjavík hafi ekki skaðleg áhrif á stöðu Norður- landaráðs æskunnar gagnvart Norðurlandaráði. peturg@frettabladid.is Norðurlandaráð bað barþjón afsökunar Frétt af árás ungliðaforingja Svíþjóðardemókrata á barþjón í Reykjavík var meðal mest lesnu frétta sænskra vefmiðla í gær. Norðurlandaráð æskunnar bað barþjóninn afsökunar eftir fund forseta þess með forseta Norðurlandaráðs. STÓRFRÉTT Fréttin um framkomu ungliðaforingjans í SD á Ölstofunni í Reykjavík var ein af mest lesnu fréttum nokkurra af helstu vefmiðlum Svíþjóðar í gær. LÖGREGLUMÁL Ríkislögreglustjóri varar við því að netföngum hjá þjónustuaðilum á borð við Hot- mail, Gmail og fleirum hafi verið stolið. Þau hafa síðan verið notuð til að senda út fjöldapóst á öll netföng í netfangaskrá viðkomandi. Netföngum er stolið með þeim hætti að eigandi netfangs fær tölvupóst sem virðist vera frá þjónustuaðilanum þar sem spurt er hvort hann ætli að nota net- fangið sitt áfram. Sé svo er hann beðinn um að staðfesta það með því að senda aðgangsorð og lykilorð til baka. Með þessar upplýsingar undir höndum getur sendandinn skráð sig inn á póstþjónustuna eins og um eigandann væri að ræða. Breyti hann um lykilorð er hann búinn að yfirtaka netfang viðkomandi með öllu sem því til- heyrir, innkominn og útsendan póst og tengiliðaskrá. - js Varar við nýrri tegund svika: Svikarar stela nú netföngum VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 16° 11° 8° 13° 16° 9° 9° 24° 11° 22° 10° 18° 3° 13° 17° 4°Á MORGUN Gengur í nokkuð stífa NA-átt síðdegis. MÁNUDAGUR 5-10 m/s. 1 0 -3 -1 -5 1 1 4 2 2 -6 5 7 8 7 5 6 4 3 2 4 4 2 4 5 -4 0 0 -3-1 0 2 HLÝNAR LÍTILLEGA á land- inu í dag með vax- andi suðvestanátt og slyddu eða rign- ingu um vestanvert landið. Síðdegis á morgun gengur í stífa norðaustan- átt með úrkomu, einkum suðaustan til en norðanlands annað kvöld. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður INDÓNESÍA, AP Tugir manna létu lífið þegar mikil sprenging varð í eldfjallinu Merapi í fyrrinótt, og er tala látinna nú komin yfir 120. Fjölmargir brenndust illa þegar logandi lofttegundir þeytt- ust niður yfir byggðina í hlíðum fjallsins. Allan daginn hélt fjall- ið áfram að þeyta frá sér ösku, sem barst allt upp í 480 kílómetra leið. Björgunarfólk vann hörðum höndum að því að koma særðu fólki undir læknishendur, en stundum þurfti að gera snögglega hlé á björgunarstörfunum þegar heitar gufur bárust frá fjallinu. Þetta er versta sprenging sem orðið hefur í fjallinu í heila öld. Hún virðist hafa komið jarð- fræðingum á óvart, því þeir höfðu reiknað með að tugir minni sprenginga sem orðið hafa síðan gosið hófst hinn 26. október hefðu minnkað þrýstinginn í fjallinu. Hættusvæðið við fjallið hefur verið stækkað og nær nú í tuttugu kílómetra fjarlægð frá gíg fjallsins. Íbúum innan þess hrings hefur verið gert að yfir- gefa heimili sín. - gb Sprenging varð í eldfjallinu Merapi á Indónesíu ellefu dögum eftir að gos hófst: Íbúar flúðu eldana í ofboði BJÖRGUNARSTARF Í HLÍÐUM FJALLSINS Tugir manna létust í gær og hafa þá meira en 120 látið lífið síðan gosið hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVISS Julian Assange, stofnandi síðunnar Wikileaks, íhugar að sækja um hæli í Sviss. Hann segir starfsemi Wikileaks aðeins vera óhætt á Íslandi og í Sviss. Þetta kom fram í viðtali við Assange á svissnesku sjónvarps- stöðinni TSR. Þar sagði hann það raunhæfan möguleika að hann settist að í Sviss og hýsti starfsemi Wikileaks þar. Assange sótti um atvinnu- og dvalarleyfi í Svíþjóð en var hafn- að. Þar hefur hann verið sakaður um kynferðisbrot. - þeb Stofnandi í viðtali í Sviss: Segir Wikileaks óhætt á Íslandi AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is GENGIÐ 05.11.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 205,2034 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 109,29 109,81 176,72 177,58 154,33 155,19 20,701 20,823 18,956 19,068 16,561 16,659 1,3523 1,3603 173,12 174,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.