Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 86
54 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
Ljóðakvöld
Bókabúðar Máls og menningar
Ljóðakvöld nr. 3.
Sunnudaginn 7. nóvember
kl.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. mælieining, 6. 999, 8. framkoma,
9. sólunda, 11. átt, 12. tími, 14. þrátta,
16. tímabil, 17. angan, 18. næði, 20.
hljóm, 21. málmhúða.
LÓÐRÉTT
1. öruggur, 3. hvort, 4. skordýr, 5.
kæla, 7. andstaða, 10. for, 13. neitun,
15. formóðir, 16. stefna, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. desí, 6. im, 8. fas, 9. sóa,
11. na, 12. stund, 14. þrefa, 16. ár, 17.
ilm, 18. tóm, 20. óm, 21. tina.
LÓÐRÉTT: 1. viss, 3. ef, 4. sandfló, 5.
ísa, 7. mótþrói, 10. aur, 13. nei, 15.
amma, 16. átt, 19. mn.
Hæ Frikka!
Hvað ertu
að gera?
Hæ‘skan!
Ég er bara
að marin-
era mig í
baðkerinu!
Hljómar vel!
Eigum við
að fleska
okkur upp í
dag?
Heyr-
irðu...
Það eru
tilboð í...
Bíddu
aðeins‘
skan!
ÚFF!
Þá hljótum
við að vera í
Meistaradeild-
inni.
Það eru skýr merki um að þú
sért að gera eitthvað rétt ef þú
veldur börnum
þínum
vonbrigðum.
Gleðileg jól
kveðja ...
Hugs-
aðu
fljótt!
Ég verð að viðurkenna að
hún var fljót að hugsa.
Erfðavísindamaðurinn Dr. Þurrlunga
og fjölskylda hans á jólunum...
Glæsi-
legt!
Fingrafara-
settið mitt
Fátt er meira gefandi en að detta í safa-ríkan sleik. Athöfnin er flókin, en á
sama tíma ofureinföld og frumstæð. Flestir
hófu að þróa tæknina sem hormónasturlað-
ir unglingar, en fæsta grunaði að athöfnin
gæti verið eins margslungin og hún er. Ég
lærði til dæmis snemma að ef það er hægt
að líkja aðferðinni við hrærivél, loftpressu
eða ryksugu er maður á villigötum.
EN sleikurinn á sér myrkar hliðar. Þörf-
in tekur sig nefnilega stundum upp á
almannafæri, en þá neyðast viðstaddir til
að horfa upp á opinberan forleik án þess
að geta nokkuð að gert. Varnarleysið
er algjört og margir hafa líkt aðferð-
um para sem fremja slík myrkraverk
við pyntingaraðferðir Rauðu khmer-
anna.
FJÖLMARGAR tegundir af opinberri
ástleitni eru þekktar og eru þær
hver annarri ógeðslegri; leik-
hússleikurinn er aðeins til
þess fallinn að draga athygli
leikhúsgesta frá verkinu og
gera upplifun þeirra óþægi-
lega. Matarboðssleikurinn
getur gert safaríkustu nauta-
steik seiga svo ég tali nú ekki
um göngutúrssleikinn sem
er beinlínis hættulegur, enda
lokar flest fólk augunum á
meðan það kyssist.
FLUGVÉLASLEIKURINN er ógeðfelldasta
tegund opinberrar ástleitni sem til er. Lendi
maður við hliðina á pari sem hagar sér eins
og graðir unglingar á grunnskólaballi er
engin undankomuleið. Maður svífur óskilj-
anlega (ég er ekki verkfræðingur) í 20.000
feta hæð, tjóðraður niður í allt of þröngt
sætið og þrátt fyrir að hljóðhimnurnar séu
komnar að því að springa heyrir maður
sleftaumana blandast saman í hrærivél
frygðarinnar. Allra verst er þegar atlotin
stökkbreytast í forleik sem enginn á skilið
að verða vitni að. Sérstaklega ekki í flugvél-
um, eða dauðahólki eins og ég kýs að kalla
þær.
AF öllum tegundum opinberrar ástleitni er
skemmtistaðasleikurinn sá ásættanlegasti.
Það er að vissu leyti skiljanlegt enda eru
líkurnar á því að detta í sleik yfirgnæfandi
þegar fólk ráfar örvinglað af áfengisvímu
um sódómíska skemmtistaði. Það er auðvelt
að fyrirgefa þegar maður er í sama ástandi
og gerendurnir, en hvers eiga þeir sem
eru edrú að gjalda? Ég dáist að fólki sem
drekkur ekki, en vorkenni því á sama tíma.
Undankomuleiðirnar eru nefnilega fáar
þegar sleforgían hefst upp úr korter í þrjú.
BLYGÐUNARKENND mín er ekki auðveld-
lega særð, en fólk sem hagar daglegu lífi
sínu eins og það sé á þjóðhátíð í Eyjum ætti
að vera sektað – rétt eins og þeir sem míga
utan í veggi og keyra yfir á rauðu ljósi.
Opinber ástleitni