Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2010 19
Nú eru tæpir tveir mánuðir þangað til sveitarfélög taka
yfir þjónustu við fatlaða frá ríkinu.
Einu svörin sem ég heyri þegar ég
ræði við fólk um þessa grundvall-
arbreytingu á málefnum fatlaðra,
hvort sem er hjá starfsmönnum
sveitarfélaga eða ríkis, á meðal
þeirra sem sinna þjónustu við fatl-
aða og ekki síst á meðal fatlaðra
sjálfra eru „líklega fínt“ eða „lík-
lega slæmt“. Í raun eru þetta mjög
eðlileg svör þar sem enginn veit
hvað gerist eftir áramót. Ekki er
enn búið að birta lögin sem taka
eiga gildi um áramót, ekki er búið
að semja við sveitarfélög og hvað
þá ræða við hina fötluðu sjálfa eða
þá sem þeim þjóna.
Það eina sem virðist vera öruggt
er að þessu kerfi verður umturn-
að hvað sem hver segir, þó ekkert
sé orðið ljóst um afleiðingar breyt-
inganna. Öll þjónusta er í óvissu
en hættan er áberandi á meðal
sjálfseignarstofnana eins og Skála-
túns, Sólheima og fleiri, sem við
fyrirhugaðar breytingar falla inn
undir væng sveitarfélaga sem eru
misburðug til að þjóna svo stór-
um þjónustukjörnum fyrir fatl-
aða. Sem dæmi á Árborg að þjóna
43 einstaklingum frá Sólheimum
en þjónar í núverandi kerfi 23 ein-
staklingum. Þessir einstaklingar
sem búa á Sólheimum eru fæddir
út um allt land og hafa búið mis-
lengi á staðnum. Margar spurning-
ar brenna á starfsfólki Sólheima
vegna þessara breytinga en sú
fyrsta er einfaldlega hvort Árborg
treystir sér yfir höfuð til að standa
á bak við rekstur Sólheima, en
eins og fram hefur komið í frétt-
um er sveitarfélagið síður en svo
fjárhagslega burðugt.
Staðan fyrir íbúa á Sólheimum
er í dag alger óvissa. Það eru svo
sem ekki nýmæli því ef rýnt er í
söguna má sjá að misvitrir emb-
ættismenn hafa allt frá stofn-
un Sólheima fyrir 80 árum haft
ýmislegt á hornum sér gagnvart
því starfi sem þar er unnið, hvort
sem það snýr að mataræði íbúa,
blönduðu samfélagi fatlaðra og
ófatlaðra, tískusveiflum í aðferða-
fræði varðandi þjónustu við fatl-
aða eða bara einföldum hrepparíg.
Færri virðast gefa því raunveru-
legan gaum hvernig íbúar staðar-
ins dafna og þroskast, eða hvernig
þeim líður.
Verði af flutningum á málefnum
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
óttast íbúar Sólheima að örfáir
einstaklingar innan lítils sveitar-
félags geti með geðþóttaákvörð-
unum rústað þeirri uppbyggingu
sem þar hefur verið unnin í anda
Sesselju Sigmundsdóttur, stofn-
anda Sólheima.
Þjónusta við fatlaða í sveitarfélögum
Sólheimar
Erlendur
Pálsson
forstöðumaður
atvinnusviðs Sólheima
Færri virðast gefa
því raunverulegan
gaum hvernig íbúar stað-
arins dafna og þroskast
AF NETINU
Finnska kerfið
Þegar kemur
að þrískiptingu
valdsins getum við
Íslendingar dregið
lærdóm af öðrum
ríkjum. Við gætum
til að mynda tekið finnska kerfið
okkur til fyrirmyndar. Í Finnlandi er
svokallað „hálf“ forsetaræði. Það
þýðir að forsetinn er mun valda-
meiri en sá íslenski en þó ekki á
við þann franska eða bandaríska.
Þannig er finnska kerfið ólíkt þing-
ræðisríkjum vegna valda þjóðhöfð-
ingjans en á sama tíma sker það
sig frá forsetaræðisríkjum vegna
þeirrar ábyrgðar sem framkvæmdar-
valdið ber gagnvart þinginu, þrátt
fyrir að vera aðskilið því.
Vísir.is
Margrét Cela
Tilgangur líknarfélaga
Formaður ÖBÍ
sagði tillöguna hafa
verið fellda vegna
þess að hún væri
„ekki viðeigandi og
samræmdist ekki
baráttumálum bandalagsins …“ Ef
lífskjör öryrkja og aðbúnaður kemur
ÖBÍ ekki við þá spyr maður sig um
tilgang og starf samtakanna?
vísir.is
Guðjón Sigurðsson
ÍS
LE
N
S
K
A
S
IA
.IS
A
R
I
5
2
0
7
5
1
1
/1
0Ráðgjafaþjónusta í skuldamálum einstaklinga
— fyrir einstaklinga í greiðsluvanda
Við opnum sérhæfða
ráðgjafa þjónustu
Ráðgjafaþjónusta Arion banka í skuldamálum einstaklinga er opin alla virka daga klukkan 9:00–16:00. Viðskiptavinir
geta komið í heimsókn, hringt í 444 7000 eða sent okkur tölvupóst á netfangið radgjafathjonusta@arionbanki.is
Opið verður í dag, laugardaginn
6. nóvember, kl. 11:00- 15:00.
— Verið velkomin
Við munum á næstu mánuðum hringja í þá viðskiptavini sem eiga í verulegum greiðslu -
vanda vegna húsnæðislána og vinna að lausn þeirra mála með Ráðgjafaþjónustu Arion banka
í Garðabæ. Þegar hefur Arion banki aðstoðað um 14.000 viðskiptavini í greiðsluvanda.
Til að koma til móts við viðskiptavini okkar í greiðsluvanda höfum við nú opnað ráðgjafa-
þjónustu í skuldamálum einstaklinga. Þar höfum við safnað saman á einn stað helstu
sérfræðingum úr öllum útibúum okkar á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðgjafaþjónusta Arion banka í skuldamálum
einstaklinga er á 2. hæð við útibú bankans
við Garðatorg 5 í Garðabæ.
Hver viðskiptavinur fær sinn eigin ráðgjafa
sem vinnur með honum allt ferlið og fylgir
málum hans eftir.
Við ætlum að leggja okkur fram við að finna
lausn sem hentar hverjum og einum
og hrinda henni í framkvæmd.
Okkar markmið er að allir, sem við getum
hjálpað, hafi fengið lausn sinna mála innan
nokkurra mánaða.
Viðskiptavinir geta eftir sem áður einnig
farið í útibú bankans og fengið ráðgjöf
um þær lausnir sem í boði eru.