Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 90
58 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 06. nóvember 2010
➜ Tónleikar
21.00 Björn Thor og félagar verða með
gítartónleika í kvöld í Salnum, Kópavogi.
Miðaverð er 2.900 krónur og hefjast tón-
leikarnir klukkan 21.
22.00 Sverrir Stormsker og Kalli
Bjarni verða með sameiginlega tónleika
á Sódóma Reykjavík í kvöld. Tónleikarnir
hefjast klukkan 22.00 og er aðgangseyrir
1000 krónur.
22.30 Hljómsveitin Gæðablóð heldur
tónleika á Bar og gallerý 46, að
Hverfisgötu 46, í kvöld. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 22.30.
➜ Opnanir
15.00 Guðrún Hadda Bjarnadóttir
opnar sýninguna Snagar línur á vegg á
Café Karólínu, Akureyri, í dag klukkan
15. Sýningin stendur til 3. desember og
eru allir velkomnir.
16.00 Davíð Örn Halldórsson opnar
einkasýningu sína Faunalitir í Gallerí
Ágúst, Baldursgötu 12. Sýningin hefst
klukkan 16, en hún mun standa til 23.
desember.
17.00 Myndlistarmaðurinn Ingirafn
Steinarsson opnar sýningu sína Functi-
us/Fungus/Funnus í Kling & Bang í dag.
Sýningin verður opnuð klukkan 17.
➜ Sýningar
14.00 Í leikhúsinu Brúðuheimar í Borg-
arnesi verður frumsýnt leikritið Gilitrutt
í flutningi Bernds Ogrodnik. Sýningar
bæði laugardag og sunnudag klukkan 14.
➜ Dansleikir
20.30 Skvettuball FEBK verður í félags-
heimilinu Gullsmára, að Gullsmára 13
í Kópavogi í kvöld. Ballið hefst klukkan
20.30 og stendur til 23.30. Haukur Ingi-
bergsson leikur og syngur fyrir dansi.
1000 krónur inn.
23.00 Rokksveit Jonna Ólafs leikur
fyrir dansi ásamt gesti á Rökkurdögum
í Grundarfirði á Kaffi 59. Dansleikurinn
hefst kl. 23 og er aðgangseyrir 1500
krónur.
23.30 Hljómsveitin Á móti sól heldur
sinn fyrsta dansleik í langan tíma á
skemmtistaðnum Spot í Kópavogi í
kvöld. Dansleikurinn hefst klukkan 23.30.
➜ Markaðir
11.00 Í Langanesbyggð verður mark-
aðsdagur í íþróttamiðstöðinni. Opið frá
11-17.
11.00 Götumarkaðsstemning verður í
göngugötunni á Garðatorgi í Garðabæ í
dag frá klukkan 11-16. Kór eldri borgara í
Garðabæ syngur á markaðnum klukkan
14.
Níu metra hár skúlptúr eftir Stein-
unni Þórarinsdóttur myndlistar-
mann var afhjúpaður fyrir framan
Íþróttamiðstöð Háskólans í Aber-
deen í Skotlandi á miðvikudag og
mun standa þar til frambúðar.
Verkið var pantað sérstaklega
í tilefni af byggingu nýju íþrótta-
miðstöðvarinnar.
„Forstöðumaður borgarlista-
safnsins hafði samband við mig
vorið 2008,“ segir Steinunn um
tilurð verksins. „Hún er ráðgjafi
listanefndar háskólans og bað mig
um að koma og hitta fulltrúa skól-
ans. Þau voru sem sagt að leita að
listaverki sem átti að standa fyrir
utan íþróttamiðstöðina, sem er
samvinnuverkefni borgarinnar
og háskólans.
Verkið ber heitið „Waves“ eða
„Öldur“ og trónir níu metra upp
í loft á hæsta punkti. Það sam-
anstendur af „verum“, sem Stein-
unn er orðin þekkt fyrir, sem
standa ofan á tveimur súlum sem
bylgjast. Steinunn tók mið af nýju
byggingunni og umhverfinu við
hönnun skúlptúrsins.
„Formið tekur mið af formi
íþróttamiðstöðvarinnar og svo auð-
vitað hafinu, sem liggur þarna að,“
segir hún. „Aberdeen er stundum
kölluð „granítborgin“ því hún er
öll úr gráum granítsteini og litur
verksins kallast á við það.“
Chris Gane, varaforseti menn-
ingar- og félagsdeildar Háskólans
í Aberdeen, segir að skólinn gegni
mikilvægu félagslegu, menning-
arlegu og efnahagslegu hlutverki
í borginni og að uppsetningin á
verki Steinunnar sé liður í við-
leitni skólans til að auka lífsgæði
í borginni. - bs
Skúlptúr eftir Stein-
unni risinn í Skotlandi
SKÚLPTÚRINN Skúlptúrinn tekur mið af formi byggingarinnar sem hann stendur við,
granítsteininum sem einkennir Aberdeen og hafinu.
STEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR
Velkomin á sýningu
Péturs Más
Reykjavík Art Gallery Skúlagötu 30, 101 Reykjavík
Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-17.