Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 73
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2010 41
Íslendingar standa vel á mörgum sviðum, en þurfa að gæta að fjárfestingu innan-
lands sem ekki stuðlar beint að aukinni
framleiðni. Hérna er allt of mikið af bygg-
ingarkrönum,“ sagði Michael Porter í erindi
sínu í Reykjavík í októberbyrjun árið 2006
þegar hann kynnti niðurstöður rannsóknar
sinnar á samkeppnishæfni Íslands.
Í erindi hans kom þá fram að misrétti í sam-
félögum græfi undan framleiðni og að lykilat-
riði væri fyrir þjóðir sem ætluðu að standa sig
í samkeppni við aðrar að hafa bæði mennta- og
heilbrigðiskerfi í lagi.
Þá benti Porter líka á að kostnaðurinn við að
halda úti krónunni væri meiri en næmi ávinn-
ingnum af henni og hvatti til frekari umræðu
innanlands um framtíðarskipan peningamála.
Sú umræða er enn í gangi án niðurstöðu eftir
hrun gjaldmiðilsins í ársbyrjun 2008.
Í viðtalinu hér til hliðar segist Porter ekki
viss um að þjóðin sé nú, svo nærri hruni, reiðu-
búin til að leiða málið til lykta. Árið 2006 velti
hann hins vegar upp spurningunni um hvort
hagkerfið á Íslandi væri ekki svo sveigjan-
legt hvort eð er, að ekki þyrfti að koma til
sveigjanlegur gjaldmiðill líka.
Porter er höfundur fjölda bóka og ótal fræði-
greina og nýtur óhemjuvirðingar um heim
allan fyrir störf sín. Porter er samfélags-
lega þenkjandi og lítur svo á að fyrirtæki beri
samfélagslega ábyrgð. Markaðs- og velferð-
arsjónarmið útiloki ekki hvort annað heldur
séu þau þættir í að byggja upp skapandi og
betra samfélag.
Auður til
framtíðar
Opinn kynningarfundur
– sá síðasti á árinu
Borgartúni 29 | S. 585 6500 | www.audur.is
Auður býður til kynningarfundar þriðjudaginn
9. nóvember. Þar verður farið yfir þær leiðir sem
Auður býður í sparnaði og eignastýringu.
• Séreignarsparnaður – Ávöxtun viðbótarlífeyris
eftir 6 mismunandi ávöxtunarleiðum
• Sparnaður – Stýring sparnaðar á bilinu 1–15 milljónir
• Eignastýring – Eignastýring fyrir stærri eignasöfn
Verið velkomin til okkar í Borgartún 29,
þriðjudaginn 9. nóvember kl. 17.15.
Fundurinn er öllum opinn og um það bil
klukkutíma langur.
Auður – ábyrg arðsemi
Óháð staða, áhættumeðvitund og
gagnsæi hafa skilað viðskiptavinum
Auðar góðum árangri.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
02
16
9
VERÐUM AÐ TAKA TIL HENDINNI „Tækifærin eru núna
og þau verður að grípa,“ segir prófessor Michael
Porter um vaxtarmöguleika íslenska þekkingarklasans
í jarðvarmaiðnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VAR HUGSI YFIR BYGGINGARKRÖNUM ÁRIÐ 2006
auðlindir landsins verði notaðar til
að laða að annars konar fjárfest-
ingu. „Ég styð mjög fjárfesting-
ar í gagnaverum. Ég held að það
sé fjárfesting sem hentar landinu
vel. Störfin sem fylgja þeirri starf-
semi falla vel að landinu. Landið er
langt á veg komið hvað upplýsinga-
tækni varðar. Hér er ýmis önnur
starfsemi á sviði upplýsingatækni.
Ég held að gagnaver styrkji klasa
upplýsingatækninnar á Íslandi.
Og við erum nokkuð vel staðsett
með tilliti til frekari vaxtar að því
gefnu að ljósleiðaratengingar við
umheiminn séu fullnægjandi.“
En Porter segir álið annars
ágætt og hann telur að landið hafi
hagnast á þróun sem hér hafi átt
sér stað í þeim geira: „En ég held
það væru mistök ef áliðnaðurinn
væri enn að nota 80 prósent af
orkuframleiðslu landins eftir tíu
ár héðan í frá. Ég held við verð-
um kannski að auka álframleiðslu
aðeins, en ég held við verðum líka
að auka starfsemi á öðrum svið-
um þar sem fæst hátt orkuverð og
meiri virðisauki af orkusölunni.“
Stöðu krónunnar segir Porter
aftur flókið mál og hann er með-
vitaður um hversu mikið hitamál
hún sé hér á landi. „Það verkar
eins og öryggisloki að hafa fljót-
andi gjaldmiðil sem getur hækk-
að og lækkað og hjálpað landinu að
laga sig að aðstæðum. Á hinn bóg-
inn gerir smæð landsins að verk-
um að gengi gjaldmiðilsins getur
brenglast af ytri þáttum sem ekk-
ert hafa að gera með það sem er
að gerast í landinu,“ segir hann
og kveður nokkrar lausnir í boði,
svo sem upptöka evru með aðild að
Evrópusambandinu. Önnur lausn
væri dollaravæðing hagkerfis-
ins. „Allar hafa þessar leiðir kosti
og galla, en mín tilfinning er að
Íslendingar séu ekki alveg tilbúnir
til að gera þetta upp við sig,“ segir
Porter og bætir við að trúlega sé of
skammt liðið frá hruni.
Vinnur líka með Rúanda
Michael Porter segir Ísland vera
áhugavert af því að draga megi
lærdóm af þeirri þróun sem í land-
inu á sér stað. „Mitt fag snýst um
að leysa þau flóknu vandamál sem
þjóðir standa frammi fyrir. Og í
þessu tilviki er það samkeppnis-
hæfni og efnahagsþróun. Ég leita
alltaf að löndum þar sem ég held
að eitthvað áhugavert og mikil-
vægt kunni að eiga sér stað. Ef við
getum sýnt framfarir og sigra þá
býr það til tækifæri og þann sann-
færingarkraft sem þarf til þess að
hafa áhrif á aðra.“
Porter kveðst hugfanginn af ein-
stökum eiginleikum íslenska hag-
kerfisins, sem þrátt fyrir smæð
sína hafi náð undraverðum árangri
á ákveðnum sviðum, svo sem á
sviði jarðvarmavirkjana. „Svo
þegar ég heimsótti landið komst
ég að því að Íslendingar hlusta á
mann. Ég fundaði með fólki, hélt
fyrirlestra og hitti háskólafólk og
fann hversu fólk var móttækilegt
fyrir hugmyndum og möguleg-
um breytingum. Síðan náttúru-
lega kynntist ég fólki og mynd-
aði tengsl,“ segir hann og kveðst
finna til sérstakrar velvildar í garð
landsins. „Ég vinn svona náið með
örfáum löndum öðrum. Ætli nær-
tækasta dæmið sé ekki Rúanda í
Afríku, sem er frekar lítið land
þótt það sé stærra en Ísland, og
á sér mjög erfiða stöðu. Þar hef
ég eignast vini í stjórnkerfinu og
finn að þeir hlusta og vilja koma á
breytingum til batnaðar.“
Sum önnur lönd segir Porter að
séu ekki jafnmóttækileg, þótt ekk-
ert vanti upp á kurteisi og góðar
móttökur. „Þar heyra menn en
hlusta ekki og það getur verið erf-
itt. Maður er kannski búinn að eyða
þremur eða fjórum vikum starfs-
ársins í að reyna að hjálpa landi
og ekkert er gert. Þetta er spurn-
ing um að finna fordæmisgefandi
aðstæður í löndum sem vilja grípa
til aðgerða og af því dreg ég lær-
dóm og efnivið í fræði mín. Mitt
helsta markmið er að hafa áhrif,“
segir hann og telur áhugavert að
sjá þann árangur sem náðst hefur
á Íslandi. „Fjármálakreppan, sem
vel að merkja er utan míns sér-
fræðisviðs, hefur hins vegar tafið
þróunina. Líklega hefur nokkurra
ára vinna tapast.“