Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 104
6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR72
sport@frettabladid.is
WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í Futsal eða innanhússknattspyrnu.
Ísland sendir lið til keppni í undankeppni EM í Futsal í fyrsta sinn í janúar næstkomandi og fer riðill Íslands fram í
íþróttahúsinu á Ásvöllum frá 21. til 24. janúar. Með í riðlinum verða lið Grikklands, Armeníu og Lettlands.
HANDBOLTI Tölfræðin sem Björg-
vin Páll Gústavsson landsliðsmark-
vörður skildi eftir sig í tveimur
síðustu landsleikjum er sláandi. Á
þeim 28 mínútum sem hann lék í
leikjunum gegn Lettland og Aust-
urríki í undankeppni EM 2012 varði
hann ekki eitt einasta skot af þeim
tuttugu sem hann fékk á sig. Hann
segir í samtali við Fréttablaðið að
næstu 2-3 dagar eftir tapleikinn
gegn Austurríki hafi verið erfiðir.
„Þetta var algjörlega nýtt fyrir
mér – að lenda svona á vegg. Ég
kom sjálfum mér mikið á óvart
þar sem ég hef verið að standa mig
vel með mínu félagsliði. Í síðustu
þremur leikjum fyrir landsleik-
ina var ég með 50 prósenta mark-
vörslu. Þetta var mikið áfall fyrir
mig, þar sem mér hefur yfirleitt
gengið mjög vel með landsliðinu,“
segir Björgvin Páll.
Hann segir að leikirnir hafi
þó verið ólíkir. Gegn Lettum var
vörnin slök og hann komst aldrei
í takt við leikinn. „Hreiðar [Guð-
mundsson] kom þá inn og varði
mjög vel og mikið af skotum úr
dauðafærum,“ segir hann.
„En gegn Austurríki var allt
annað uppi á teningnum. Þrátt
fyrir góðan varnarleik fann ég mig
aldrei. Ég var búinn að liggja lengi
yfir austurríska liðinu en fyrsta
skotið sem ég fékk á mig var frá
manni sem skaut á stað sem hann
var óvanur að skjóta á. Það kom af
stað óöryggi hjá mér. Ég hef aldrei
misst sjálfstraustið í leik á ævinni
en það gerðist í þessum leik. Það
var ný tilfinning fyrir mig.“
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari kippti honum af
velli eftir aðeins tíu mínútur. „Ég
er aldrei sáttur þegar ég er tek-
inn út af og yfirleitt er ég brjál-
aður út í þjálfarann. En ekki þá.
Ég vissi upp á mig sökina og var
landsliðstreyjunni til skammar,“
segir Björgvin.
Hann ætlar þó að nota þetta
mótlæti til að efla sig. „Það var
kannski ágætt að lenda í þessu
núna. Ég get lært af þessu. Síðasta
vika hefur verið besta æfingavika
mín á ferlinum og vonandi mun
þetta hjálpa mér í framtíðinni.
Þetta voru 28 slæmar mínútur
með landsliðinu og nú hef ég tæki-
færi til að bæta fyrir þetta í næsta
leik. Það versta er að það er langt
á milli landsleikja og það er erfitt
að bíða.“
Ísland er nú með tvö stig í riðlin-
um í undankeppninni, einu á eftir
Austurríki og Þýskalandi. Björg-
vin segir þó enga ástæðu til að
örvænta.
„Þetta var bara einn slæmur
leikur og alls enginn heimsendir.
Það besta væri að vinna Þjóðverja
í næstu tveimur leikjum og skilja
þá eftir. Austurríki er með gott lið
og það er engin skömm að því að
tapa fyrir því á útivelli. Hins vegar
var alger óþarfi að spila eins og við
gerðum. Það er þó gott að það gerð-
ist í þessum leik en ekki á HM [í
Svíþjóð í janúar]. Þar getum við
bætt fyrir þessi mistök.“
Hann ætlar að koma tvíefldur til
baka. „Ég mun nota þetta á réttan
hátt til að berja mig áfram. Ég hef
alltaf þurft að hafa mikið fyrir öllu
í lífinu.“ eirikur@frettabladid.is
Var treyjunni til skammar
Björgvin Páll Gústavsson missti sjálfstraustið í landsleiknum gegn Austurríki og
segir að það sé í fyrsta sinn sem það gerist á ferlinum. Hann ætlar að nota mót-
lætið sem áskorun til að bæta sig og á erfitt með að bíða eftir næsta landsleik.
BJÖRGVIN PÁLL Fann sig illa í leikjunum gegn Lettlandi og Austurríki.
MYND/DIENER/NINA MANHART
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Gran-
ada unnu sinn fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni
um síðustu helgi eftir að hafa tapað fyrstu fjórum
leikjum sínum. Jón Arnór þurfti að ganga í gegnum
mótlæti og veikindi í upphafi tímabilsins en er allur
að koma til.
„Síðasti leikur var alveg ofboðslega mikilvægur
og við sýndum flottan karakter í leiknum með því að
koma til baka eftir að hafa lent 17 stigum undir,“ segir
Jón Arnór, sem var með 15 stig í leiknum þar sem
hann hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum.
„Við spiluðum náttúrlega við Valencia, Bar-
celona og Caja Laboral, þrjú af toppliðunum,
í fjórum fyrstu leikjunum. Það var ekki að
hjálpa okkur og það var því ekkert ótrúlegt að
við skyldum tapa á móti þeim liðum. Við vorum
því ekkert að stressa okkur mikið á því að við
værum búnir að tapa fyrstu fjórum leikjunum.
Þetta er samt farið að líta miklu betur út hjá
okkur,“ segir Jón Arnór.
„Ég er búinn að vera nokkuð sáttur við síð-
ustu tvo leiki en ég var lélegur á undir-
búningstímabilinu og í fyrstu þremur
leikjunum,“ segir Jón Arnór. Skýr-
ing er komin á því af hverju hann
skoraði ekki stig á 22 mínútum í
fyrsta leik tímabilsins en hann
spilaði leikinn fárveikur.
„Ég vaknaði um nóttina fyrir
Valencia-leikinn, var flökurt og
kominn með bullandi hita. Ég
spilaði leikinn og byrjaði inni á. Ég held að ég hafi
aldrei spilað jafnmargar mínútur þegar ég hef spilað
svona illa. Þá loksins fékk ég að spila helling þegar
ég var að skíta upp á bak. Ég var alveg örmagna eftir
leikinn og svo var ég svo rosalega veikur á heimleið-
inni. Ég var slæmur í átta daga og missti mörg kíló.
Ég var lengi að ná mér upp úr því,“ segir Jón Arnór,
sem þurfti meðal annars að fara á spítala til að fá
næringu í æð.
„Mér líður mjög vel núna og er búinn að vera góður
í síðustu tveimur leikjum,“ segir Jón en hann er
búinn að hækka stigaskor sitt í fjórum leikjum
í röð.
„Hlutverkið er svipað og í fyrra og ég er sátt-
ur við það. Ég kem inn af bekknum og er að
spila svipað margar mínútur og í fyrra. Varnar-
hlutverkið er mjög stórt hjá mér og svo skýt ég
boltanum þegar ég fæ opin skot. Ég reyni bara
að skjóta eins mikið og ég get á þessum tíma
sem ég fæ,“ segir Jón Arnór í léttum tón. Hann
leysir Coby Karl af í liðinu en Coby er
sonur George Karl, þjálfara Denver
Nuggets.
Granada á útileik á Menorca um
helgina og þar segir Jón Arnór
að liðið eigi að vinna. Hvort hann
bæti stigaskorið sitt enn frekar á
bara eftir að koma í ljós. - óój
Jón Arnór Stefánsson hefur hækkað stigaskorið sitt í fjórum leikjum í röð:
Þetta lítur miklu betur út
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Baldur Ingimar Aðal-
steinsson er genginn í raðir nýliða
Víkings í Pepsi-deild karla. Hann
gerði tveggja ára samning og
kveður nú Val eftir sjö ára dvöl á
Hlíðarenda.
„Mér fannst kominn tími á að
róa á önnur mið,“ sagði Baldur.
„Svo höfðu Víkingar samband og
mér leist vel á það sem þeir höfðu
fram að færa. Félagið ætlar sér
stóra hluti. Mér fannst kjörið að
hoppa á það tækifæri og taka þátt
í því sem er fram undan þar.“
Baldur er þriðji nýi leikmaður-
inn sem Víkingar hafa fengið til
sig en fyrir voru þeir Björgólfur
Takefusa og Pétur Georg Mark-
an komnir til félagsins. „Þar að
auki eru margir ungir og efnilegir
strákar hjá félaginu sem og reynd-
ir leikmenn eins og Helgi Sigurðs-
son. Það er góð blanda og þetta er
flott lið.“
Baldur kom við sögu í sautján
leikjum með Val í sumar, skoraði í
þeim þrjú mörk og segist vera laus
við öll meiðsli. „Ég held að ég hafi
farið til sjúkraþjálfara alls fjórum
sinnum allt árið. Ég lenti í veseni
árið 2008 þegar ég þurfti að fara í
tvær aðgerðir vegna rifins liðþófa
en ég er í góðu lagi núna.“
Baldur er einn fárra leikmanna
sem hafa afrekað að vera Íslands-
og bikarmeistari með tveim-
ur liðum. Það gerði hann með ÍA
(Íslandsmeistari 2001 og bikar-
meistari 2003) og Val (2007 og
2005). - esá
Baldur Aðalsteinsson kominn til nýliða Víkings:
Góð blanda hjá Víkingi
VÍKINGUR Baldur Aðalsteinsson er genginn í raðir Víkinga í Fossvoginum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
140milljónirMILLJÓNIR
13 Réttir =ÉTTIR
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
ÚRV.D.
1. D.
Man. Utd. – Wolves
Birmingham – West Ham
Blackburn – Wigan
Blackpool – Everton
Fulham – Aston Villa
Sunderland – Stoke
QPR – Reading
Watford – Nottingham
Barnsley – Leicester
Coventry – Leeds
Doncaster – Millwall
Norwich – Burnley
Sheffi eld Utd. – Ipswich
140.000.000
28.500.000
22.800.000
47.500.000
ENSKI BOLTINN 6. NÓVEMBER 2010
44. LEIKVIKA
(13 R.)
(12 R.)
(11 R.)
(10 R.)
Nú er potturinn orðinn
ennþá stærri. Vertu með
og tippaðu fyrir kl. 14
í dag, laugardag.
SÖLU LÝKUR 6. NÓV. KL. 14.00
1 X 2
TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS