Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 93
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2010 61
Bækur ★★★★
Furðustrandir
Arnaldur Indriðason
Vaka-Helgafell 2010
Erlendur rannsóknarlögreglumað-
ur, söguhetjan í flestum sakamála-
sögum Arnaldar Indriðasonar, er
merkileg týpa. Afdaladrengur að
austan með dimmar sorgir á bak-
inu og lifir hálfur í fortíðinni. Í
Furðuströndum er hann á heima-
slóðum, í eyðibýlinu sem eitt sinn
var æskuheimili hans og þar sem
harmurinn dundi yfir. Hann er
einn, hefur ekkert samband við
fólkið sitt eða samstarfsmenn í
borginni og fer upp á eigin spýt-
ur að garfa í hvarfi konu á Eski-
firði árið 1942. Hún er talin hafa
horfið á heiðinni í aftakaveðr-
inu sem hópur breskra hermanna
lenti í fyrir austan í janúar 1942,
en Erlendur, með sína áráttu fyrir
mannshvörfum, á erfitt með að
kyngja þeirri skýringu. Um leið
er sagan lýsing á hverfandi heimi,
rannsóknin fer fram í skugga
byggingar álvers og Kárahnjúka-
stíflu og sá heimur sem Erlendur
og fólkið sem aðild á að glæpnum
tilheyrir er um það bil að
deyja út. Dauðinn er óhugn-
anlega nálægur bæði í eig-
inlegri og óeiginlegri merk-
ingu og má eiginlega segja
að ásamt Erlendi sé hann
aðalsöguhetja bókarinnar.
Formið er hér annað
en fyrr hjá Arnaldi, lengi
framan af er ekki einu
sinni ljóst hvort nokkur
glæpur hefur verið fram-
inn en þeim mun betur farið í
saumana á löngu liðnum samskipt-
um fólks í plássunum fyrir aust-
an. Inn á milli koma kaflar sem
við könnumst við úr fyrri bókum;
Erlendur einn með hugsunum
sínum um hvarf bróðurins, ein-
manaleikann og sektarkenndina,
en hér eru þeir mun betur útfærð-
ir og falla betur inn í frásögnina.
Óblíð lífsbaráttan og átökin við
náttúruöflin eru ekki einkaharm-
ur hans heldur örlagavaldur í lífi
allra sem við sögu koma.
Frásögnin stigmagnast eftir
því sem Erlendi miðar áfram með
rannsóknina á hvarfi konunnar
og eigin harmi og fer undir lokin
alveg að mörkum hrollvekjunnar.
Spennan skapast ekki eingöngu af
því að fleiri púslbitar falli á sinn
stað í rannsókn máls-
ins heldur ekki síður
af þróuninni í sögu
Erlendar sjálfs og glímu
hans við drauga fortíð-
innar. Þeir lesendur
sem saknað hafa Erlend-
ar í síðustu bókum fá hér
næstum yfirskammt af
honum, sjá inn í kviku og
komast kannski að fleiru
um hann en þeir kærðu
sig um að vita.
Furðustrandir eru metnaðarfullt
verk og betur stílað en fyrri bækur
höfundarins. Þetta er Arnaldur
eins og hann gerist bestur, jafnvel
betri. Fantavel byggð breið skáld-
saga um ástir og örlög fólks í litlu
sjávarþorpi um miðja síðustu öld
og minnir á köflum á þjóðfélags-
breytingaskáldsögur þess tíma.
Kæmi ekki á óvart þótt næstu verk
Arnaldar yrðu á allt öðrum nótum
en sakamálasögurnar sem hann
hefur skrifað undanfarin fjórtán
ár. Friðrika Benónýsdóttir
Niðursstaða: Fantavel byggð breið
skáldsaga sem minnir á þjóðfé-
lagsbreytingaskáldsögur fyrri tíma.
Arnaldur eins og hann gerist bestur,
jafnvel betri.
Útskryppi utan alfaraleiðar
Davíð Örn Halldórsson mynd-
listarmaður opnar í dag einka-
sýninguna Faunalitir í Gallerí
Ágúst við Baldursgötu í Reykja-
vík. Þetta er önnur einkasýn-
ing hans í gallerínu, en árið 2008
setti hann upp sýninguna Absalút
gamall kastale.
Davíð Örn Halldórsson útskrif-
aðist frá myndlistadeild Lista-
háskóla Íslands árið 2002. Hann
hefur verið ötull myndlistar-
maður og á að baki fjölda sýn-
inga, bæði hérlendis sem erlend-
is, hefur kennt við Listaháskóla
Íslands og unnið að hönnun fyrir
hljómsveitirnar Múm, Hjálma og
Hjaltalín ásamt því að koma að
sviðsmynda- og kvikmyndagerð.
Sýningin verður opnuð klukkan
16.
Davíð Örn í
Gallerí Ágúst
DAVÍÐ ÖRN Opnar sýningu í Gallerí
Ágúst í dag.
.
10 R.
R.
hálsi 3 -
110 R.
..
Kl. 14 Matthías Birgir Nardeu óbóleikari
og Krisztina Kalló Szklenár organisti
Hugvekja, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
Kl. 14.30 Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópransöngkona
og Antonia Hevesi píanisti
Hugvekja, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
Kl. 15 Martial Nardeu flautuleikari
og Krisztina Kalló Szklenár organisti
Hugvekja, sr. Hans Markús Hafsteinsson
Kl. 15.30 Ellen Kristjánsdóttir söngkona
og Tómas Eggertsson organisti
Aðgangur er ókeypis og fólki frjálst að koma og fara að vild.
Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar eru til sölu við Fossvogskirkju.
Kópavogskirkjugarður, Hólavallagarður og Gufuneskirkjugarður
eru opnir að venju.
Reykjavíkurprófastsdæmi og
Kirkjugarðar prófastsdæmanna
Þau voru ljós á leiðum okkar
Tónlistardagskrá við kertaljós
í minningu ástvina
sunnudaginn 7. nóvember 2010 í Fossvogskirkju