Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 80
48 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Á slóðum Darwins er heiti
ljósmyndasýningar sem
stendur nú yfir í Te&Kaffi í
Eymundsson í Austurstræti.
Á sýningunni eru myndir
af lífríki Galapagoseyja,
meðal annars af risaskjald-
böku, sæeðlum, sérstæðum
jurtum og fallegu landslagi.
Myndirnar eru allar tekn-
ar af Hafdísi Hönnu Ægis-
dóttur í fimm vikna rann-
sóknarleiðangri sem hún
fór í til eyjanna fyrir rúm-
lega þremur árum. Hafdís
Hanna er plöntuvistfræð-
ingur og starfar sem for-
stöðumaður Landgræðslu-
skóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna
Sýningin er haldin í til-
efni af útgáfu bókarinnar
„Arfleifð Darwins: Þróun-
arfræði, náttúra og menn-
ing“ sem nýverið kom út á
vegum hins íslenska bók-
menntafélags en Hafdís
Hanna er einn ritstjóra bók-
arinnar og skrifar í hana
kafla um lífríki eyja.
Sýningin stendur yfir
til 23. nóvember en fleiri
myndir má sjá á síðunni
flickr.com/photos/hafdis-
hanna
Eðlur og skjaldbökur frá Galapagos
Sæeðlurnar á Galapagoseyjum hafa misheitt blóð. Á morgnana sleikja
þær sólina á svörtum hraunklöppum þangað til líkamshiti þeirra er
orðinn nógu hár til að þær geti stungið sér í svalan sæinn.
Fundarröðin Heilabrot og huggulegheit
á kaffihúsinu hefst að nýju á morgun
klukkan 11 á Bláu könnunni á Akur-
eyri. Aðstandendur þessa mannfagnað-
ar eru Félag áhugafólks um heimspeki,
Hug- og félagsvísindadeild Háskólans
á Akureyri og Bláa kannan.
„Samkomurnar hafa frá upphafi
verið vel sóttar og mikil umræða í
gangi að loknum inngangserindum
málshefjenda. Það er von okkar og trú
að komandi kaffisamsæti verði hvati
heimspekilegra vangaveltna, spurninga
og tilrauna til svara,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Dagskráin í nóvember er á þessa
leið:
7. nóvember fjallar Þórgnýr Dýr-
fjörð um Fáfræði, fordóma og and-
lega örbirgð. Hinn 14. nóvember fjall-
ar Róbert Jack um Réttlæti og þann 21.
nóvember flytur Valgerður Dögg Jóns-
dóttir erindið Geðveik mannréttindi.
Hinn 28. nóvember fjallar Gunnar
Gíslason um Skólann og samfélagið –
Samfélagið og skólann.
Allir eru velkomnir á fyrirlestrana.
Eftir þá verða umræður og spurning-
um um lífið og tilveruna velt upp.
- rat
HEIMSPEKIKAFFI Sunnudagar í
nóvember verða tileinkaðir heim-
speki á Bláu könnunni.
Heilabrot og huggulegheit
Ástkær sambýliskona mín, móðir
okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
María Stefanía
Björnsdóttir
Lækjasmára 2, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 8.
nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á líknarstofnanir.
Aðalsteinn Guðlaugsson
Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir Bjarni Ragnarsson
Eiríksína Kr. Hafsteinsdóttir Óskar Sverrisson
Guðný Hafsteinsdóttir Jóhann Sveinsson
Sigurður Hafsteinsson Svava Aldís Viggósdóttir
Júlíus Geir Hafsteinsson Margrét Guðmundsdóttir
Þröstur Hafsteinsson Hrafnhildur Karlsdóttir
Sólveig Aðalsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, sonur og bróðir,
Sigurður Magnús Jónsson
viðskiptafræðingur,
Tjaldanesi 3, Garðabæ,
lést á heimili sínu mánudaginn 1. nóvember sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
11. nóvember kl. 13.00.
Jón Þorsteinn Sigurðsson
Jón Kr. Sveinsson
Kristján Þ. Jónsson Sveinbjörg Guðmarsdóttir
Inga Sveinbjörg Jónsdóttir
Jóna Fríður Jónsdóttir Þorsteinn Ingi Jónsson
Svala Rún Jónsdóttir Guðmundur Óli Reynisson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Vilborgar Ormsdóttur
(Vinu)
frá Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu að
Hlaðhömrum í Mosfellsbæ, starfsfólki líknardeildar
Landakots og heimahjúkrun Karitas fyrir góða
umönnun og ljúft viðmót.
Sveinn Ágúst Guðmundsson Þorbjörg Svanbergsdóttir
Sigríður Helga Sveinsdóttir Reynir Þrastarson
Guðmundur Svanberg Sveinsson Hanna Þóra
Guðbrandsdóttir
og langömmubörnin
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Edda Snorradóttir
frá Þórshöfn,
Núpalind 4, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi 28. október, verð-
ur jarðsungin frá Digraneskirkju miðvikudaginn 10.
nóvember kl. 13.00.
Þorkell Guðfinnsson
Snorri Hafsteinn Þorkelsson Björg Skúladóttir
Guðfinnur Helgi Þorkelsson Jóhanna Þorkelsdóttir
Edda Björg Snorradóttir
Elín Salka Snorradóttir
Guðrún Helga Guðfinnsdóttir
Þorkell Máni Guðfinnsson
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför föður okkar,
bróður, mágs og afa,
Þórarins Þ. Gíslasonar
Asparfelli 2, Reykjavík.
Gísli Þór Þórarinsson
Margrét Palestini
Ingibjörg Sigurrós Stumplf
Jósefína Gísladóttir Úlfar Ágústsson
Gréta Kinsley William Kinsley
og afabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og
útför ástkærrar frænku okkar,
Sigþrúðar
Guðbjartsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sóltúns, einnig
skátahreyfingunni fyrir veitta aðstoð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra Kristín Arthursdóttir
Íris Bryndís Guðnadóttir
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Þórhildur
Guðbrandsdóttir
Mosgerði 14, 108 Reykjavík,
lést á Landakoti 30. október. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 13.
Arnór G. Jósefsson
Sigursteinn Jósefsson Ólöf Hilmarsdóttir
Reynir Jósefsson Unnur Bergþórsdóttir
Ólafur G. Jósefsson Anna María Markúsdóttir
Arndís Jósefsdóttir Jón Ragnarsson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
María Sigurðardóttir
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum Hringbraut
laugardaginn 30. október, verður jarðsungin
frá Grensáskirkju fimmtudaginn 11. nóvember
næstkomandi kl. 15.00.
Konráð Ó. Kristinsson
Sigurður Konráðsson Kristín Jóhanna Harðardóttir
Halldór Konráðsson Þóra Þórhallsdóttir
Konráð Konráðsson Bryndís Hinriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Borgarleikhúsið var valið markaðs-
fyrirtæki ársins 2010 af ÍMARK og
er það í fyrsta sinn sem menningar-
fyrirtæki hlýtur verðlaunin. Í umsögn
dómnefndar er vísað til árangurs sem
náðst hefur í markaðssetningu á síð-
ustu tveimur árum og þess að haustið
2008 hafi verið lögð skýr stefna sem
fylgt hafi verið með tiltölulega litlum
breytingum. Fyrir bragðið sé leikhús-
ið orðið sýnilegasta leikhús landsins.
Alls komu 218.889 gestir í leikhús-
ið á síðasta leikári sem er met í sögu
íslensks leikhúss. Inni í þeirri tölu
eru 10.000 gestir á „Opnu húsi“ sem
allir sáu brot úr sýningum. Fjöldi
kortagesta hefur tuttugufaldast frá
því Magnús Geir Þórðarson tók við
stjórninni, úr um 500 kortum leikárið
2008/2009 í tæplega 10.000 kort á síð-
asta leikári.
Þá má geta landvinninga leikhúss-
ins erlendis en fjórar mismunandi
sýningar voru þar í gangi. Nú síðast
FAUST í samstarfi við Vesturport.
- gun
Markaðsfyrirtæki ársins 2010
BORGARLEIKHÚSIÐ Starfsfólk Borgarleikhúss-
ins er sterkur og samhentur hópur.