Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 78
6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR46
timamot@frettabladid.is
„Það verður engin afmælisveisla enda
held ég aldrei neinar slíkar. Það er
bara regla,“ segir Jakob Ragnar Möll-
er sem verður sjötugur á morgun og
ákvað að skella sér til útlanda með eig-
inkonunni Margréti Hvannberg af því
tilefni. Viss skýring er á því af hverju
hann heldur aldrei afmælisveislur.
„Þegar ég varð tíu ára fannst mér ég
ekki fá nógu mikinn frið til að sinna
bókum sem ég fékk í afmælisgjöf, held-
ur var ætlast til að ég héldi gestum
mínum selskap. Ég taldi tíma mínum
betur varið í hitt. Þar með hætti ég að
halda afmælisveislur.“
Jakob Ragnar Möller fæddist á Hóla-
torgi 2 þann 7. nóvember 1940. „Sumir,
þar á meðal ég, kalla þennan mánað-
ardag dag hinnar dýrðlegu október-
byltingar því rússneska byltingin fór
fram þann dag, samkvæmt okkar tíma-
tali,“ segir hann. „En Jón Arason var
líka hálshöggvinn þennan mánaðar-
dag þannig að honum tengjast bæði
harmrænir og jákvæðir viðburðir, án
þess að ég telji nú hina dýrðlegu okt-
óberbyltingu sérlega jákvæða. Það er í
raun bara fæðing mín sem fellur í þann
flokk.“
Hólatorgið er við hornið á kirkju-
garðinum við Suðurgötu og Landakots-
túnið er þar steinsnar frá. „Þegar ég
man fyrst eftir mér sem var í stríðs-
lok þá var mjög mikið af barnafólki í
hverfinu. Landakotstúnið, sem varla
sést nokkur lifandi maður á núna, var
ein iðandi kös af krökkum allan dag-
inn, alla daga frá vori til hausts. Svo
breyttist það á tiltölulega fáum árum,“
rifjar Jakob upp. „Afi minn hafði látið
byggja þetta hús á Hólatorginu en svo
flutti ég tíu ára gamall með foreldr-
um mínum niður á Ægissíðu í hús sem
þau byggðu með föðurbróður mínum
og konu hans.“ Hverjir voru foreldrar
Jakobs? „Þau voru Brynhildur Skúla-
dóttir húsmóðir og Ingólfur Möller
skipstjóri,“ upplýsir hann. „Pabbi var
skipstjóri í áratugi á millilandaskipum,
lengst á Jöklunum, Drangajökli, Lang-
jökli, nýjum Drangajökli og Hofsjökli,“
bætir hann við.
Jakob kveðst hafa farið hefðbundna
leið í skóla og telur upp Landakots-
skóla, Melaskóla, gagnfræðaskól-
ann við Hringbraut sem nú er eigin-
lega Hagaskóli og Menntaskólann í
Reykjavík. „Ég varð stúdent 1960,
fór síðan í lagadeild HÍ og útskrifað-
ist þaðan 1967. Ég var ekkert að flýta
mér,“ segir hann brosandi og segir
starfsævina að mestu leyti hafa skipst
í tvennt, í tuttugu ár hjá Íslenska álfé-
laginu og frá 1991 til dagsins í dag við
lögmannsstörf. „Ég var einn af eigend-
um Logos lögmannsþjónustu en gekk
út úr félaginu um áramótin 2006/2007
og hef starfað á vegum Logos síðan og
geri enn.“
Tómstundaiðkun Jakobs er síðasta
umræðuefnið. „Ég hlusta á tónlist,
spila golf á sumrin og les mikið allt
árið. Svo fylgist ég með fótbolta, bæði
á velli og í sjónvarpinu og horfi líka
á golf í sjónvarpinu – en það er nán-
ast það eina sem ég horfi á. Að vísu er
það ekki alveg rétt því ég horfi stund-
um á Útsvar, stundum á Spaugstofuna
og stundum á Gettu betur, en einung-
is ef Menntaskólinn í Reykjavík er að
keppa.“
gun@frettabladid.is
JAKOB RAGNAR MÖLLER: VERÐUR SJÖTUGUR Á MORGUN
Heldur aldrei upp á afmælin
Bolsévíkar veltu ríkisstjórn Rússlands úr sessi með
valdaráni undir forystu Vladimírs Leníns 7. nóvem-
ber árið 1917. Bolsévíkarnir og bandamenn þeirra
tóku yfir ríkisbyggingar og aðra mikilvæga staði
í höfuðborginni Petrograd og á aðeins tveimur
dögum höfðu þeir myndað nýja ríkisstjórn undir
stjórn Leníns.
Ríkisstjórn Leníns samdi frið við Þýskaland,
þjóðnýtti iðnaðinn og úthlutaði landi en við upphaf
ársins 1918 háði hún blóðugt borgarastríð við
fylgismenn keisaraveldisins. Um 1920 voru keisara-
sinnarnir sigraðir og 1922 voru Sovétríkin stofnuð.
Við dauða Leníns, snemma árs 1924, var lík
hans smurt og því komið fyrir í veglegu grafhýsi
við Kreml í Moskvu. Borgin Petrograd var nefnd
Leníngrad honum til heiðurs. Í dag heitir borgin St.
Pétursborg.
Jósef Stalín barðist fyrir því að verða arftaki
Leníns og tók við af honum sem leiðtogi Sovétríkj-
anna.
ÞETTA GERÐIST: 7. NÓVEMBER 1917
Valdarán framið í Rússlandi
RAGNAR ÁSGEIRSSON ráðunautur (1895-1973) fæddist þennan dag
„Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænagjörð.“
1632 Svíar sigra her keisarans í
orrustunni við Lützen en
konungur þeirra Gústaf
2. Adolf féll.
1796 Dómkirkjan í Reykja-
vík er vígð eftir átta ár í
byggingu.
1921 Minningarhátíð er hald-
in í Landakotskirkju til
heiðurs Jóni Ögmunds-
syni, fyrsta biskupi á
Hólum, átta öldum eftir
dauða hans.
1954 Veitingahúsið Naustið er
opnað í Reykjavík.
1975 Sex Pistols leika á
sínum fyrstu tónleikum í
menntaskóla í London.
1983 Þorsteinn Pálsson er
kjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins næstur á
eftir Geir Hallgrímssyni.
1985 Bandarískir fjölmiðlar
segja frá því að Ronald
Reagan hafi samþykkt
vopnasendingu til Írans.
Merkisatburðir
LÖGMAÐURINN Jakob R. Möller Les mikið allt árið og fylgist með fótbolta bæði á velli og í
sjónvarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Svavar Bergmann
Indriðason
Eyrarvegi 27, Selfossi,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
mánudaginn 1. nóvember, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. nóvember kl. 13.00.
Jónína Valdimarsdóttir
Bryndís Ágústa Svavarsdóttir Gestur Jens Hallgrímsson
Sigurður Bergmann Svavarsson Þorbjörg Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi
og langafi,
Nikulás Már Nikulásson
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum 30. október sl. Útför hans
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hans.
Þóra Þorvaldsdóttir
Már Viðar Másson Margrét Ólafsdóttir
María Erla Másdóttir Ingólfur Sigurðsson
Þorvaldur Tómas Másson Ulla Britt Jakobsson
Nikulás Úlfar Másson Þorbjörg Sóley Ingadóttir
Halla Þóra Másdóttir Ágúst Kárason
Hafsteinn Másson María Þorleifsdóttir
Sigríður Svala Másdóttir Óskar Dagsson
afa- og langafabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jóhanna Kristín
Hlöðversdóttir
(Dadý í Garði)
Leirutanga 43a, Mosfellsbæ,
sem lést fimmtudaginn 28. október síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju mánudaginn 8.
nóvember kl. 15.00.
Guðmundur Ebbi Pétursson
Pétur Heimir Guðmundsson Heiðveig Andrésdóttir
Magnús Snorri Guðmundsson Sunna Mjöll
Sigurðardóttir
Guðmundur Atli Pétursson
Kristín Þóra Pétursdóttir
Konur í störfum sem áður þóttu dæmi-
gerð karlastörf eru viðfangsefni ljós-
myndasýningar Önnu Maríu Sigur-
jónsdóttur, Herrar, menn og stjórar, í
Hugmyndahúsi háskólanna að Granda-
garði 2.
Á sýningunni gefur að líta 35 ljós-
myndir af ólíkum konum sem eiga það
sameiginlegt að bera starfsheiti sem
enda á herra, maður eða stjóri. Kon-
urnar voru myndaðar við vinnu sína
við sem eðlilegastar aðstæður og fylg-
ir setning frá hverri konu með mynd-
unum. Verkefnið er tileinkað Vigdísi
Finnbogadóttur en í ár eru liðin 30
ár frá því að hún var kjörin forseti og
varð þar með fyrsti þjóðkjörni kven-
forseti heims.
Sýningin er opin virka daga milli 9
til 17 og um helgar frá 13 til 17. Hún
stendur til 14. nóvember í Hugmynda-
húsinu.
Endurspegla breyttan tíðaranda
VIÐ STÖRF Konurnar voru myndaðar við vinnu sína. MYNDIR/ANNA MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR