Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 84
Niðurstaða: Skemmtileg og fræðandi bók.
Katrín Sigríður Steingrímsdóttir BÓKMENNTIR
Af hverju fórstu í söngskóla?
„Það var bara af því að mér
fannst svo gaman að syngja.
Það kom bara ekkert annað
til greina en að læra meira og
verða betri í söng. Ég byrjaði í
söngskólanum hjá Maríu þegar
ég var átta ára.“
Langaði þig að verða fræg
þegar þú varst lítil? „Nei, það
hefur aldrei verið aðalatriðið að
verða fræg. Mig langaði bara
að geta gert það sem mér finnst
gaman.“
Hvað varstu gömul þegar þú
söngst fyrst opinberlega? „Ég
var alveg rosalega ung, ég bara
man það ekki. En í fyrsta skipti
sem ég man eftir var í Perlunni
í söngvakeppninni Jabbadabba-
dú, þá var ég átta ára.“
Hver er uppáhaldssöngkonan
þín? „Þær eru nú svolítið marg-
ar, sko. En Celine Dion er ofar-
lega á listanum og svo hefur
Ellý Vilhjálms alltaf verið
íslenska fyrirmyndin
mín.“
En uppáhaldssöngv-
arinn? „Það eru mjög
margir sem ég er
rosahrifin af, til
dæmis Páll Rós-
inkrans og Frið-
rik Ómar.“
H v o r e r
skemmti-
legr i Ingó
eða Alex-
ander Rybak?
„ Ég þek k i
ekki Alexand-
er nógu vel til
að geta svarað því,
hitti hann bara úti í
Eurovision, en Ingó er
í sérstöku uppáhaldi hjá mér
og mér finnst hann æðislega
skemmtilegur.“
Hvernig tilfinning var að vita
að margar milljónir væru að
horfa á þig í Eurovision? „Ég
reyndi nú að spá sem minnst í
það. Það er langbest að ímynda
sér bara að á bak við linsuna sé
enginn nema fjölskyldan þín,
annars verður maður alltof
stressaður.“
Er skemmtilegt að vera svona
fræg? „Ég horfi nú ekki á sjálfa
mig sem einhverja fræga mann-
eskju sko. Ég er bara venjuleg
manneskja sem er svo rosalega
heppin að geta unnið við tónlist
og það sem mér finnst skemmti-
legt.“
Heldurðu að þú syngir einhvern
tíma aftur í Eurovision? „Það
getur bara vel verið. Það er allt
opið.“
Hvað ertu að gera núna? „Ég
er bara að syngja, til dæmis
verður brjálað að gera hjá mér
í kringum jólin. Ég verð bæði
að syngja á Jólagestum Björg-
vins Halldórssonar og líka á
rosalega stórum tónleikum úti í
Svíþjóð.“
Hvað myndirðu ráðleggja
stelpum sem langar til
að verða söngkonur?
„Ekki missa sjónar á
draumnum þínum
og vertu dugleg
að æfa þig. Það
skiptir öllu
að gefast
ekki upp og
halda í von-
ina. Þetta
er erfið -
ur bransi og
það hleypir
þér enginn inn í
hann svona einn,
tveir og tíu.“
fridrikab@frettabladid.is
52 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
ÞAÐ SKIPTIR ÖLLU MÁLI
AÐ GEFAST EKKI UPP
Jóhanna Guðrún hefur sungið opinberlega síðan hún var átta ára. Henni finnst hún
samt ekki vera fræg heldur venjuleg stelpa sem er svo heppin að vinna við tónlist.
Ingó er í sér-
stöku uppá-
haldi hjá mér og mér
finnst hann æðislega
skemmtilegur.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
LEIKSÝNINGIN
FÍASÓL verður
sýnd í Þjóð-
leikhúsinu alla
helgina. Hægt
er að nálgast
miða á sýninguna á
www.midi.is og er
aðgangseyrir 1.650
krónur.
Í TENGSLUM VIÐ SÝNING-
UNA Ormurinn ógnarlangi í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi verður börnum á öllum
aldri boðið að taka þátt í
smiðju goðanna, þar sem Ilmur
Stefánsdóttir leiðbeinir. Fjöl-
skyldusmiðjan er á sunnudag-
inn og stendur frá 14-16.
FJÖLSKYLDU- OG HÚS-
DÝRAGARÐURINN er opinn
alla helgina frá 10 til 17. Nýjasti
meðlimur Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins er kolkrabbinn
Geirþrúður.
„Pálína!! Kenndir þú litla bróður þínum öll þessi ljótu og
dónalegu orð?“ spurði mamma reiðilega. „Nei mamma mín,“
svaraði Pálína hneyksluð, „ég kenndi honum bara orð sem
mætti alls ekki segja!“ Sendandi Kristel Elva Þórðardóttir
Hvernig brenndi drekinn sig á hendinni?
Hann hélt fyrir munninn þegar hann geispaði.
Konan: Eftir hverjum ert þú skírður Hans?
Hans: Eftir spænska kónginum.
Konan: En hann heitir ekki Hans.
Hans: Jú, Hans hátign.
WWW.SKOLAVEFURINN.IS er náms- og fræðsluvefur. Þar er
líka hægt að finna leiki, sögur, tónlist og fróðleik á krakkasíðunni.
„Mér finnst bókin mjög
skemmtileg. Ég hef sjálf
komið til Flateyjar og
mér finnst bókin lýsa
Flatey einstaklega vel
og öllu sem er hægt
að gera þar,“ segir
Katrín Sigríður Stein-
grímsdóttir, nemandi
í Melaskóla, eftir að
hafa lesið bókina
Flateyjarbréfin eftir Kristjönu
Friðbjörnsdóttur.
„Bókin fjallar um Ólafíu
Arndísi sem eyðir einu sumri
í Flatey á Breiðafirði með
fjölskyldu sinni. Í fjölskyldunni
eru mamma, pabbi, hún og
Kristján, litli bróðir hennar. Þau
búa fyrir ofan kaffihús sem for-
eldrar hennar reka um
sumarið. Þar kynnast
þau krökkum og lenda
í ýmsum ævintýrum
sem Flatey býður upp á.
Mér finnst höfundinum
takast vel að blanda
saman skemmtilegri en
alvarlegri aðalpersónu.“
Katrín heldur að bókin
verði vinsæl í jólapakk-
ann í ár fyrir krakka sem hafa
áhuga á ævintýrabókmenntum
og vilja fræðast um Flatey.
„Oft geta skemmtilegar bækur
innihaldið fróðleik sem þessi
bók gerir á einstaklega góðan
hátt. Ég mæli með henni og
hvet sem flesta til að lesa þessa
frábæru bók.“
Flateyjarbréfin
krakkar@frettabladid.is
HITT OG ÞETTA
...ég sá það á Vísi
Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna allt sem þú þarft að
vita um útilegur, tjöld, svefnpoka, vindsængur, prímusa, kassagítara,
grillsósur – eða bara eitthvað allt annað. Leitaðu að efni úr
Fréttablaðinu og af Vísi. Það eina sem þarf er leitarorð.
Vísir er með það.
„Útilega“