Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 34
34 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Féll 28 metra Sprungan
var um 30 metra djúp, 130
sentimetrar á breidd efst og
þrengdist er neðar dró.
Umfangsmikil aðgerð
Línurnar sem björgunarsveitarmenn sem festu í sig voru
tryggðar í jeppa umhverfis sprunguna. Alls tóku 120 björg-
unarsveitarmenn þátt í björgunaraðgerðunum auk ferða-
félaga á svæðinu. Þrír björgunarsveitarmenn sigu niður í
sprunguna og einn úr hópi ferðafélaga mæðginanna.
LA
NG
JÖ
KU
LL
Geitilandsjökull
AKRANES
VAR FJÓRA TÍMA NIÐRI Í SPRUNGUNNI
Sprungan sem mæðginin féllu í var á vestanverðum Langjökli. Björgunarfélag Akraness ók sem leið lá að
fjallaskálanum Jaka þar sem þyrla Landhelgisgæslunn-
ar flutti félaga úr sveitinni að slysstað. Slysið varð rétt
fyrir klukkan eitt en klukkan fimm var drengnum bjarg-
að af 27 metra dýpi úr 30 metra sprungunni.
Á syllu í 2 tíma
Samferðamaður
mæðginanna
stóð með kaðal
um sig miðjan
hér á þessari
hálfgerðu syllu í
2 tíma og ræddi
við drenginn til
að halda honum
vakandi. Hér var
sprungan um
80 sentimetrar á
breidd.
Samvinna Félagi Þórðar
kom fyrir kastara til að lýsa
fyrir ofan hann og sá um
samskiptin við þá sem voru
uppi á jöklinum meðan á
björgunarstörfum stóð.
Tróð sér eins langt
og hann gat Þórður
giskar á að sprungan
hafi verið um 16 til 20
sentimetrar á breidd
þegar hann var kominn
eins langt og hann gat.
Breiddin á blaðsíðu
í Fréttablaðinu er 28
sentímetrar.
27 metra dýpi Dreng-
urinn sat fastur á um
27 metra dýpi og þurfti
krafta 4 karlmanna uppi
á sprungubrún til að
losa hann þegar Þórður
hafði náð að vefja bandi
um fótinn á honum.
1 metri
Þ
að var klukkan eitt 30.
janúar að útkall barst
til björgunarsveita á
suðvesturhorni lands-
ins vegna mæðgina er
fallið höfðu í sprungu
á Langjökli. Þórður Guðnason, 28
ára nemi og sjúkraflutningamað-
ur á Akranesi, var búinn að setja
sig í stellingar fyrir leik íslenska
landsliðsins í undanúrslitum á EM
í handbolta. Stuttu síðar var hann
þó kominn af stað ásamt félögum
sínum á Akranesi og óku þeir rak-
leiðis sem leið lá að fjallaskálanum
Jaka sem er við rætur Langjökuls.
TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, var þar á staðnum og flutti Þórð
og félaga hans upp á jökul.
Gerði sig kláran í þyrlunni
„Í fluginu gerði ég mig kláran til
að síga niður og setti á mig klifur-
belti. Þyrlan lenti með okkur 200
metra frá slysstað og við fylgdum
hjólförum að honum. Veðrið var
fínt, sólin skein. En reyndar sáum
við ekki hvernig sprungur lágu í
jöklinum. Við hugsuðum þó ekki
um það heldur bara um að koma
okkur beint á slysstað. Þar fest-
um við okkur í öryggislínur, sem
ekki er hægt að gera við þyrluna
því þær fjúka upp og lenda í þyrlu-
spöðunum.“
Undanfarar frá Reykjavík komu
fyrstir á staðinn með TF-Líf á
undan Björgunarfélagi Akraness
og öðrum sveitum af svæðinu,
og var einn félagi úr henni þegar
farinn niður í sprunguna. Strax
var ákveðið að Þórður yrði næst-
ur niður. Jeppi var notaður sem
trygging og svo festi hann sig í
klifurbelti og brjóstbelti sem er
læst saman á bringunni.
Hugsunin með þessum tveimur
beltum er annars vegar að minnka
álag á bak og magavöðva og að
veita aukið öryggi þegar sigmað-
urinn þarf að snúa sér við, eins og
tilfellið var í þessari björgun. Þá
veitir brjóstbeltið meiri tryggingu
því alltaf er hætta á að klifurbeltið
renni af manni sem snýr á hvolfi,
nema hann sé tryggður í brjóst-
belti líka.
„Á um 15 metra dýpi í sprung-
unni var maður, sem þau [sam-
ferðamenn fjölskyldunnar] höfðu
slakað sjálf niður í sprunguna með
kaðli sem bundinn var um hann.
Hann átti að reyna að ná sam-
bandi við mæðginin. Nokkuð sem
allir myndu sennilega gera í neyð.
Fyrsti björgunarmaðurinn festi
manninn betur en hann stóð á hálf-
gerðri syllu sem var þarna um það
bil miðja vegu í sprungunni.“
Maðurinn hafði haldið drengn-
um vakandi með því að ræða við
hann á rólegu nótunum, þar til
Þórður tók við því hlutverki, sem
var auðvitað afar mikilvægt við
þessar aðstæður.
Björgunarsveitarmaðurinn, sem
fyrstur varð niður, og ferðafélagi
mæðginanna biðu svo eftir því að
Þórður kæmi böndum á konuna,
sem lá ofar drengnum. Þegar það
Bjargvætturinn í Langjökli
ÞÓRÐUR GUÐNASON Var um klukkustund á hvolfi við björgun úr sprungu á Langjökli í janúar síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þórður Guðnason
vann björgunarafrek
þegar hann náði sjö ára
gömlum dreng úr 30
metra djúpri sprungu á
Langjökli síðasta vetur.
Sigríður Björg Tómas-
dóttir hitti þennan 28
ára gamla Skagamann
sem hefur verið tólf
ár í björgunarsveit á
Akranesi.
FRAMHALD Á SÍÐU 36
Þórisjökull
Ok
Eiríksjökull