Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 70
10 FERÐALÖG
SÓL OG MENNING Í BRA-
DENTON OG SARASOTA
Bradenton er lítill bær rétt
fyrir sunnan Tampa-flóa í
Florida. Þar er hægt að njóta
sólar og hressingar á bað-
ströndum sem margir telja
hinar bestu á Florida. Þar er
einnig hægt að leika golf á
nítján golfvöllum.
Í Sarasota, stærstu borg
Sarasota-sýslu, sem er í um
tuttugu mínútna akstursfjar-
lægð suður frá Bradenton,
eru meðal annars leikhús,
óperuhús, ballettsýningar og
tónleikasalir fyrir þá sem eru
menningarlega sinnaðir og
langar til að gera fleira í fríinu
en flatmaga á ströndinni.
Í Bradenton og Sarasota eru
samtals um 40 verslunarmið-
stöðvar og því er þetta svæði
einnig kjörið til að versla.
Icelandair býður upp á pakka-
ferðir til Bradenton til 21. maí
2011.
GISTIHÚS MEÐ VÆNGI
Skammt frá Arlanda, alþjóðaflugvellinum í Stokkhólmi, er að finna allsérstakt gistihús þar
sem gestir sofa um borð í Boeing 747 júmbóþotu. Hún hefur verið haganlega innréttuð með
25 herbergjum, matsal og móttöku. Í hverju herbergi er að finna flatskjá, snyrtingu og sturtu
og er hægt að panta kaffi og mat um borð.
Óvenjulegasta herbergið er án efa flugstjórnarklefinn þar sem rúmin eru þétt uppi við
stjórnborðið með útsýni yfir borgarljósin og upp í stjörnubjartan himininn.
Gistihúsið er vel sótt af ferðalöngum á leið til og frá Stokkhólmi enda bara steinsnar frá
flugvellinum og í um þrjátíu mínútna akstursfjarlægð frá miðborginni.
VERÐLAUN FYRIR
HEILSUFERÐAPAKKA
Til að tryggja áframhaldandi
þróun á sviði heilsuferðaþjón-
ustu á Íslandi hefur iðnaðar-
ráðherra ákveðið að veita
tvenn verðlaun til fyrirtækja
sem skara fram úr á þessu
sviði.
Hvor verðlaun eru að upphæð
ein milljón króna og verða
veitt í desember næstkom-
andi. Verðlaunin verða veitt
fyrir áhugaverða heilsuferða-
pakka fyrir erlenda ferða-
menn.
Öllum sem bjóða upp á
heilsuferðaþjónustu er frjálst
að taka þátt að uppfylltum
þeim skilyrðum sem fram
koma á umsóknareyðublað-
inu.
Umsóknum skal skilað til
Ferðamálastofu eigi síðar en
3. desember.