Fréttablaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 98
66 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson ★★★
Tónlist: Ýmsir syngja Jóhann G ★★
Johann G in English
Jóhann G. Jóhannsson
Fínn þverskurður
Það ætti að vera skylda fyrir alla þá
sem hyggjast hasla sér völl í dægur-
laga- og popptónlist að kynna sér verk
og texta Jóhanns G. Jóhannssonar.
Allavega ættu þeir að fara í masterclass
hjá Jóhanni og heyra hvernig ofur-
smellurinn Don‘t Try to Fool Me varð til
en lagið er ein besta dægurfluga sem
flögrað hefur um á öldum ljósvakans.
Fyrri safnplatan, Johann G in English,
er kærkomin fyrir yngri kynslóðina sem
langar að hlusta á nýrri og eldri lög tónlistarmannsins án þess að þurfa leita
dyrum og dyngjum að gömlum diskum. Nýju lögin eru sem fyrr haganlega
samin, útsetningarnar eru áreynslulausar, þetta er vandað heldrimannapopp
þar sem ekki er reynt of mikið á hlustandann með tilraunastarfsemi. Eldri
lögin hafa auðvitað sannað tilverurétt sinn og lifa góðu lífi enn í dag.
Á seinni plötunni reyna nokkrir valinkunnir listamenn við lög Jóhanns og
útkoman er náttúrlega misjöfn eins og gengur og gerist með slíka diska.
Ung söngkona, Sigrún Vala, stendur sig vel, sem og djasssöngkonan Stine
August. Fönksveitin Jagúar stendur fyrir sínu með lagið Money Can‘t Buy
You Love og þá er einstaklega skemmtilegt að heyra í hinni fornfrægu
hljómsveit Bo Halldorsson Band sem samkvæmt bókinni var stofnuð fyrir
tónleikaferð Björgvins um Rússland 1982. Diskurinn verður hins vegar
leiðigjarn til lengdar og Jóhann G. mætti skoða það í fúlustu alvöru að fá
einhverjar af hinum nýju stjörnum, listamenn á borð við Hjálma, FM Belfast,
Retro Stefson og Diktu, til að leika lögin sín. Freyr Gígja Gunnarsson
Niðurstaða: Johann G in English er tvískipt safn þar sem flutningur Jóhanns
sjálfs stendur upp úr. Ábreiðudiskurinn er hins vegar ekki nógu spennandi
eins og slíkum diskum hættir oft til að verða.
Sambíófeðgarnir Björn Árnason, rekstrarstjóri nýja bíósins, og Árni Samúelsson tóku
á móti gestum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sambíóin opnuðu nýtt bíó í
Egilshöll sem er talið vera
með þeim glæsilegustu í
Evrópu. Góðir gestir mættu
í opnunarhófið sem var
haldið á fimmtudagskvöld.
Eftir hófið var gaman-
myndin Due Date sýnd og
var góður rómur gerður að
ræmunni og hinum glænýju
bíósölum.
Stórglæsilegt bíó
Guðlaugur Þór Þórðarson og Ágústa
Johnson mættu í opnunarhófið.
Sigfús Sigfússon, María Sólveig Héðins-
dóttir og Vigfús Þór Árnason voru
brosmild í Egilshöll.
Útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson
og Guðmundur Pálsson kíktu í bíó.
Magnea Snorradóttir og systurnar Kristín
og Ingunn Helgadætur voru á meðal
gesta.
Sveinbjörn Tómasson, Tómas Tómasson
og Sigurður Sveinbjörnsson skoðuðu
nýja bíóið.
TAKTU VEL Á MÓTI SÖLUFÓLKI OKKAR
K
R
A
FT
A
V
ER
K