Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 22
22 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Fyrir hálfum öðrum áratug stóð heimsbyggðin frammi
fyrir voðaverkum á Balkanskaga.
Myndir birtust af grindhoruðum
föngum í Bosníu og skýrt var frá
skipulögðum hópnauðgunum.
Heimurinn sagði: við sátum þegj-
andi hjá Helförinni – slíkt gerist
ekki meir.
Um svipað leyti voru voðaverk
framin í Afríkuríkinu Rúanda,
þar sem gerð var tilraun til að
útrýma minnihlutahóp Tútsa.
Heimurinn hreyfði hvorki legg
né lið en þegar líkin höfðu verið
talin var viðkvæðið enn: Og þetta
aldrei aftur.
Þjóðarmorðingjarnir í Rúanda
flúðu inn í Kongó og ekki leið á
löngu þar til það land logaði í átök-
um. Um tíma herjuðu átta innrás-
arherir Afríkuríkja á Kongóbúa.
Lítið lát hefur orðið á þeim átök-
um og fimm og hálf milljón hefur
látið lífið og tvö til fimm hundruð
þúsund hefur verið nauðgað.
Heimurinn sagði ekki meir í
Bosníu, en efndir hafa verið litl-
ar. Álíka fjöldi hefur látið lífið í
Kongó og búa í Danmörku en samt
hefur verið látið nægja að senda
tiltölulega fámennar sveitir frá
vanþróuðum ríkjum undir fána
Sameinuðu þjóðanna til landsins.
Þó var þess minnst á dögunum
að áratugur er liðinn frá því að
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti ályktun 1325 til höf-
uðs kynferðislegu ofbeldi í hern-
aði. Vesturlönd börðust fyrir sam-
þykki þeirrar ályktunar en hafa
hins vegar verið ófáanleg til að
að leggja friðargæslu það lið sem
nauðsynlegt er í Kongó sem ann-
ars staðar. Vesturlönd hafa gagn-
rýnt friðargæsluliða frá þriðja
heims ríkjum réttilega fyrir að
þess eru dæmi að varðmenn frið-
arins hafi sjálfir gerst sekir um
kynferðislegt ofbeldi gagnvart
þeim sem þeir áttu að vernda.
Friðargæsluliðið í Kongó reynd-
ist heldur ekki hafa bolmagn til að
stöðva öldu kynferðislegs ofbeldis
þegar nærri þrjú hundruð – bæði
konum og körlum var nauðgað á
dögunum, ekki allfjarri stöðvum
liðsins í austurhluta landsins.
Samkvæmt umboði Öryggis-
ráðsins ber friðargæsluliðinu að
efla stjórnarher Kongó. Margot
Wallström, sérstakur erindreki
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna sem fjallar um ofbeldi
gegn konum, komst hins vegar
að því nýlega í Kongó að stjórn-
arherinn gerist ekki síður sekur
um kynferðislegt ofbeldi en upp-
reisnarmenn og landflótta Hútúar
frá Rúanda.
Þetta eru óþægilegar staðreynd-
ir fyrir Vesturlandabúa, sem ekki
hafa verið sparir á að senda lið til
að skakka leikinn í olíuauðugum
ríkjum Miðausturlanda, en eru
ófáanlegir til að ljá máls á aðgerð-
um til að hrinda ályktun 1325 í
framkvæmd.
Það er því ekki nema von að
sænskir kvikmyndagerðarmenn,
sem fjallað hafa um nauðganir
sem vopn í stríði, hafi komist að
þeirri niðurstöðu að í Kongó ríki
í raun stríð gegn konum.
Sameinuðu þjóðirnar á Íslandi
og félög tengd þeim munu í
vetur gangast fyrir kvikmynda-
sýningum um alþjóðamál sem
eru í deiglunni í samvinnu við
Bíó Paradís í Reykjavík. Það er
við hæfi að fyrsta myndin sem
sýnd verður 8. nóvember, er ein-
mitt afrakstur starfs hinna fyrr-
nefndu sænsku kvikmyndagerðar-
manna um stríðið gegn konum og
sameiginlega reynslu kvenna í
Kongó og Bosníu. Að lokinni sýn-
ingu munu sérfræðingar reyna að
svara þeim spurningum sem kvik-
myndin vekur.
Hvort þeim verður svara auðið,
verður að koma í ljós, því eins og
kongóski læknirinn og handhafi
mannréttindaverðlauna Samein-
uðu þjóðanna Denis Mukwege
orðar það í myndinni: þá eru engin
orð til sem geta lýst þeim hryll-
ingi sem kongóskar konur hafa
gengið í gegnum í þessu mann-
skæðasta stríði sem háð hefur
verið í heiminum frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar.
Það stríð verður seint stöðvað
ef þagnarmúrinn verður ekki rof-
inn og sýning kvikmyndarinnar
Stríðið gegn konum er lítið skref
í þá átt.
Stríðið gegn konum sem
gleymdist að segja ykkur frá
Mjólk og fitusýrur
Nýlokið er mjólkurdegi en þá var skólabörnum gefin
léttmjólk. Í skólum og leikskól-
um þar sem ég þekki til er létt-
mjólk og léttu viðbiti haldið
að börnunum. Kálf-
ar sem aldir eru á
vítamínbættu fóðri
verða kviðsíðir og
slappir í saman-
burði við kálfa sem
ganga undir mæðr-
um sínum og verða
spengilegir og fjör-
ugir.
Hluti skýringar-
innar á þessum mun
er CLA (Conjugated
linoleic acid), olía
sem finnst einkum í
mjólkurfitu og kjöti
jórturdýra sem bíta
gras.
Fjöldi rannsókna á
mönnum hefur sýnt
fram á ágæti CLA,
einnig sem forvarn-
ar gegn krabbameini
og sykursýki.
Hægt er að kaupa
CLA í pillum og
fæðubótarefnum en
ekki er víst að þar
séu náttúruleg hlut-
föll af þeim ísómer-
formum sem til eru
af CLA.
Sama á við um
aðrar ómettaðar fitusýrur, sem
í náttúrunni finnast flestar á
cis-ísómer formi.
Við iðnaðarherðingu á olíum
(smjörlíki og djúpsteikingar-
feiti) myndast jafnt af cis- og
trans-fitusýrum. Transfitusýr-
ur valda óæskilegri fitusöfn-
un, eru áhættuþættir hjarta-
og æðasjúkdóma og taldar
ein skýringin á þeim faraldri
þeirra sem gekk yfir síðustu
kynslóðir.
Þær eru einnig taldar ein
skýringin á þeim offitufaraldri
sem geisar í t.d. Bandaríkjun-
um.
Mest er af CLA í mjólk
kúa sem bíta gras en lítið hjá
þeim sem aldar eru
á korni/kjarnfóðri
eins og algengast er
orðið í Bandaríkjun-
um í dag.
Þar er nú reynt
að draga í land með
þessa þróun og eins
eru víða transfitur
bannaðar eða skylda
að geta um magn
þeirra í matvælum.
Því er mikilvægt
að standa vörð um
náttúrulega landbún-
aðarhætti og íslenskt
kúakyn sem hefur
aðlagast aðstæðum
hér og gefur af sér
úrvals afurðir.
Börn eiga að fá að
njóta þess CLA sem
væntanlega er enn
í íslenskri mjólk, en
þeim á að halda frá
smjörlíkisneyslu.
Opinberir íslensk-
ir næringarráðgjafar
hafa mælt með létt-
mjólk og smjörlíkis-
neyslu umfram nátt-
úrulega fitu.
Hef ég ekki heyrt
þá draga í land með það, hvað
þá biðjast afsökunar á þeim
skaða sem líklegt er að það hafi
valdið.
Er ekki kominn tími til að
þeir standi fyrir máli sínu?
Mjólk
Þorvaldur
Gunnlaugsson
náttúrufræðingur
Íslenskir
næringarráð-
gjafar hafa
mælt með
léttmjólk
og smjör-
líkisneyslu
umfram
náttúrulega
fitu. Er ekki
kominn tími
til að þeir
standi fyrir
máli sínu?
Mannréttindi
Árni
Snævarr
upplýsingafulltrúi hjá
Sameinuðu þjóðunum
Það stríð verður seint stöðvað ef þagnar-
múrinn verður ekki rofinn og sýning
kvikmyndarinnar Stríðið gegn konum er
lítið skref í þá átt.
Viðskiptavinum með lán í íslenskum krónum hjá Landsbankanum stendur
til boða að lengja lánstíma eða breyta greiðslum í jafnar greiðslur og
lækka þannig mánaðarlega greiðslubyrði sína til lengri tíma.
LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000
Við tökum vel á móti þér um land allt.
Léttari greiðslur
- til lengri tíma
Lenging lánstíma
· Upphaflegur lánstími íbúða- og fasteignalána lengdur í allt að 40 ár
· Upphaflegur lánstími annarra lána lengdur í allt að 15 ár
· Fyrir alla sem vilja lækka greiðslubyrði sína
Breyta í jafngreiðslulán
· Greiðslum af láni er haldið jöfnum út lánstímann að viðbættum
verðbótum
· Fyrir þá sem eru með lán með jöfnum afborgunum
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
2
8
2