Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 32

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 32
32 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR Mikið hefur verið rætt um IPA-styrki ESB og deilt um hvort Ísland sé í aðlög- unar- eða umsóknarferli. Fréttablaðið skoðaði gögn í málinu og fékk skýringar frá ESB og utanríkisráðuneyti. Ekki verður annað séð en að Alþingi hafi samþykkt hugsanlega aðlögun vegna umsóknarinnar, þótt ráðu- neytið reikni ekki með slíku. Alþingi ákvað einnig að sækja ætti um styrki frá ESB til þýðinga. Evrópusambandið veitir hugsanleg- um aðildarríkjum sínum fjárhags- og sérfræðiaðstoð til að geta staðið undir umsóknarferlinu og til að búa ríkið undir aðild að bandalaginu. Þessi aðstoð heitir IPA, Instrument for Pre-accession Assistance. Íslendingum býðst að þiggja þessa styrki ásamt öðrum hugsan- legum aðildarríkjum: Albaníu, Bosníu og Hersegóvínu, Kósóvó, Króatíu, Makedóníu, Svartfjalla- landi og Tyrklandi. Mörg þessara ríkja hafa raunar þegið styrkina árum saman. Áður höfðu álíka styrkir farið til þeirra tólf landa sem gengu í sam- bandið 2004 og 2007. En þegar að því kom reyndust þessi lönd ekki öll undirbúin fyrir aðild að ESB, þegar þau gengu inn. Með IPA-fyrirkomu- laginu, sem fest var í sessi 2006, átti að koma í veg fyrir að slíkt end- urtæki sig. Þetta mun hafa verið hugsað með gagnkvæma hagsmuni hugsanlegra aðildarríkja í huga sem og ríkjanna sem fyrir voru í sambandinu, þannig að innganga nýrra ríkja skapaði ekki vandræði fyrir þau. Styrkirnir eru nú hluti stækkunar stefnu ESB og væru í boði fyrir Norðmenn líka, ef þeir myndu sækja um aðild. Styrkirnir eru óaftur kræfir, hvort sem af aðild verður eða ekki. Styrkirnir eiga að aðstoða ríkin við umbætur í stjórnmála- og efna- hagslífi og á öðrum sviðum, kemur fram á heimasíðu ESB: „Þær umbætur sem nauðsynlegt er að fari fram vegna aðildar að ESB eru einnig til þess gerðar að bæta líf borgaranna í ríkjunum sem njóta góðs af styrkjunum. Lykil sjónarmið aðstoðarinnar eru að styðja við stjórnmálalegar um bætur, sér í lagi stofnanauppbyggingu, að styrkja landslög í sessi, mannréttindi, vernd minnihlutahópa og þróun borgara- legs samfélags.“ Andstæðingar ESB-aðildar á Íslandi hafa líkt þessum greiðslum við mútur, sem kunnugt er. Að ESB vilji kaupa Íslendinga til aðildar. „Sérlega ógeðfellt,“ sagði Ögmund- ur Jónasson, núverandi dómsmála- ráðherra, til að mynda í Frétta blað- inu, eftir að heyrðist að Íslendingar gætu sótt í þessa sjóði, og talaði þar fyrir mörg skoðanasystkin sín. Seinna líkti hann stöðu Íslendinga við frumbyggja Norður-Ameríku í Morgunblaðinu, svo frægt varð: „En ekki mun standa á styrkveitingum – svona rétt meðan verið er að tala okkur til. Hið sama gæti hent okkur og indíána í Norður-Ameríku. Þeir töpuðu landinu en sátu uppi með glerperlur og eldvatn.“ Aðildarandstæðingar segja aðild- arferlið vera umfangsmeira en gefið var til kynna þegar Alþingi sam- þykkti að sækja um aðild. Þetta sé aðlögun frekar en „könnunar- viðræður“. Afstaða ESB og stjórnsýslan ESB vill að Ísland verði fullbúið til að gangast undir þær skyldur og njóta þeirra kosta sem fylgja því að vera aðildarríki, til dæmis að það geti tekið við og endurdreift styrkj- um á réttan hátt, ef til þess kemur að það verði hluti af sambandinu. Þetta kallar á ákveðnar breytingar. Staðlar ESB, til dæmis í stjórnsýslu, eru aðrir en staðlar Íslands. Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, segir í tölvuskeyti: „Ef Ísland ákveður að gerast aðildarríki þarf það að fara eftir lögum ESB frá fyrsta degi aðildar á sama hátt og önnur ESB-ríki, nema samkomulag náist um sérstakar undanþágur í aðildarviðræðum.“ Framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt að Íslendingar fái IPA- styrki og hefur verið miðað við 4,3 milljarða króna, litlu minna en nú stendur til að skera niður í heilbrigð- ismálum. En fyrst þarf að sækja um styrkina og svo þurfa öll aðildar- ríkin að samþykkja sameiginlega áætlun Íslands og framkvæmda- stjórnarinnar um í hvað styrkirnir eiga að fara. Það gerist ekki fyrr en í febrúar. Utanríkisráðuneytið segir að meginhluti aðstoðarinnar verði nýttur í að styrkja íslenska stjórn- sýslu, svo hún sé í stakk búin til að takast á við aðild að ESB, en íslensk stjórnsýsla þykir ekki sérlega burð- ug um þessar mundir, eins og lesa má í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis. Með styrkjum og sér- fræðiaðstoð á meðal annars að efla faglega áætlanagerð til lengri tíma séð. Fram kemur í samnings- ramma ESB og Íslands að íslensk stjórnsýsla þurfi að starfa vel og vera stöðug, byggð á skilvirku og óhlutdrægu opinberu kerfi og sjálf- stæðu og skilvirku dómskerfi. Þar er og minnst á innlenda hagsmuna- árekstra, en framkvæmdastjórn ESB hefur gert þá að umræðuefni, í ljósi smæðar íslenska kerfisins og náinna tengsla viðskipta- og stjórn- málalífs. Dæmi um kostnaðarsöm verk- efni sem fylgja viðræðunum eru þýðingar. Styrkja á þýðingarmið- stöð utanríkisráðuneytisins með mannafla og tækjabúnaði og koma á námi í túlkun, af og á íslensku. Háskóli Íslands hefði þar hönd í bagga en þar á bæ hefur líka verið rætt um að bjóða embættis- mönnum upp á nám í stjórn- kerfi ESB, til að búa þá undir samningaviðræður. Sérstaklega þarf að undirbúa stjórnsýsluna fyrir þátttöku í atvinnu- og byggðaþróunarsjóði ESB. Gera skal áætlun um að styrkja verk- efni á öllu landinu. Þá á að undir búa þátttöku í félags- og vinnu- markaðssjóði ESB, gera áætlun um að styrkja verkefni til að „efla íslenskan vinnumarkað og vinna gegn atvinnuleysi“, segir ráðuneytið. Í þessu felast ýmsar aðgerðir til að draga úr brottfalli úr skóla og mennta ófaglærða á vinnu- markaði. Þetta markmið byggir á yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga 2007, segir ráðuneytið, enda sé leitast við að tengja IPA-styrkina við „viðfangs- efni og vandamál sem eru á döfinni óháð ESB-aðild“. Sérstaða Íslands Þar sem Ísland hefur tekið þátt í Evrópusamrunanum í sextán ár, allt frá samþykkt EES, segja margir að sömu viðmið þurfi ekki að gilda um landið og gilda um ríki Austur- Evrópu, Ísland þurfi ekki að sanna, með sama hætti og þau, að það geti staðið undir aðildinni. Frétta- blaðið spurði Timo Summa sendi- herra álits á þessu: „Staða Íslands er vissulega ólík stöðu svokallaðra „nýrra“ aðildar ríkja, þegar þau hófu viðræður. Viðræðurnar taka mið af aðstæðum hvers hugsanlegs aðildar- ríkis fyrir sig, en markmiðið verður að vera að hvert aðildarríki sé vel undirbúið, daginn sem það gengur í sambandið,“ segir Summa. Hann bætir þó við að ná megi þessu mark- miði á ýmsan hátt. Of snemmt sé að segja hvenær gagnlegt verði fyrir Ísland að taka ákveðin skref í undir- búningi sínum fyrir aðild. Aðlögunarferlið Allir sem kynna sér upplýsingar ESB um stækkunarmál geta séð að sambandið veitir aðstoð til að umsóknarríki geti tekið upp reglur ESB. Því er ekki leynt að stuðning- urinn miðar að samfélagslegum og efnahagslegum breytingum og að hraði umbóta sé nátengd- ur hraða aðildar- ferlisins. Utanríkis- málanefnd Alþingis var enda meðvituð um að aðild- arviðræð- ur hefðu í för með sér ákveðna aðlögun að ESB, þegar hún ritaði álit vegna umsóknarinnar. Í álitinu segir að „sérstök áhersla [sé] lögð á að ríki hafi í raun upp- fyllt tiltekin viðmið varðandi hvern og einn kafla áður en samningar um þá eru opnaðir og einnig áður en þeim er lokað. Í þessu felst að sem minnst er gefið af frestum til að uppfylla skilyrðin áður en köfl- um er lokað heldur er þeim ekki lokað fyrr en ákveðnum markmið- um er náð í framkvæmd og með innleiðingu löggjafar í viðkomandi ríki. Slíkt er að sjálfsögðu óháð þeim aðlögunartíma og undanþágum sem kann að semjast um.“ Nema samið verði um annað hefur Alþingi því samþykkt að hugs- anlega þurfi að breyta lögum, áður en aðildarsamningur verður lagð- ur í þjóðaratkvæðagreiðslu, því það verður ekki gert fyrr en allir kaflar samningsins eru frágengnir. Fram kemur í álitinu að meiri- hlutinn sé ekki fullviss um hvernig haldið yrði á þessum málum í tilviki Íslands. Landið uppfylli líklega skil- yrði sem tengjast EES og Schengen- samstarfi og ætti því að sleppa við mikla vinnu við greiningu á hvern- ig löggjöf ESB og Íslands samræm- ist á þeim sviðum. En annað gæti gilt í fjölmörgum málum, svo sem „landbúnaðar- og sjávarútvegsmál- um, dóms- og innanríkismálum, gjaldmiðilsmálum, skattamálum, byggðamálum, tollamálum, utan- ríkismálum, öryggis- og varnarmál- um, fjárhagsmálefnum, stofnunum og öðrum atriðum“, segir þar. Utanríkisráðuneytið segir í tölvuskeyti til blaðsins að vand séð sé að forsendur séu fyrir ESB til að „krefjast aðlögunar á löggjöf á þeim sviðum sem eftir standa áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram“ heldur sé „ætlað að ítar- legar og nákvæmar áætlanir um aðgerðir muni verða fullnægjandi til að loka köflum og klára aðildar- samning“. Fyrirkomulag aðildar- viðræðna skapi möguleika til þess að skilyrði séu sett sem tefja opnun og lokun kafla. Líkur á því minnki eftir því sem viðræðurnar eru betur undirbúnar. Í fyrrgreindu áliti er tilgreint að landslag ríkisfjármála gefi lítið svigrúm til aukinna fjárútláta vegna ESB-umsóknar. Búast megi við að einstök ráðuneyti þurfi að styrkja starfsemi sína tímabundið, sérstaklega sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneyti og iðnaðarráðu- neytið. Miðað er við að þetta kosti minnst 100 milljónir. Annars stað- ar segir að kostnaður utanríkisráðu- neytis af umsókninni verði á þremur árum 800 milljónir en að með hag- ræðingu megi minnka hann talsvert. Leiða má líkur að því að þörf fyrir sérfræðiaðstoð sé nú meiri en þegar Alþingi sótti um aðild, því Bænda- samtökin hafa neitað að leggja til aðstoð sína við ferlið. Utanríkisráðuneytið bendir á að IPA snúist að miklu leyti um sér- fræðiaðstoð. Títtnefnt meirihluta- álit gangi út frá því „að íslensk stjórnvöld myndu hafa sér til halds og trausts erlenda ráðgjafa sem hafa reynslu á þessu sviði […] Af þessu verður ekki annað ráðið en að ljóst hafi verið að leitað yrði eftir sérfræðiaðstoð erlendra aðila í umsóknarferlinu og beinlínis til þess ætlast“. Í fylgiskjali með áliti utanríkis- nefndar segir að leitað verði til ESB um að styrkja þýðingarnar, en um annað virðist gengið út frá því að kostnaðurinn falli á íslenska skatt- borgara. Það er pólitísk ákvörð- un sem ráðherrar VG standa nú frammi fyrir hvort þiggja skuli þessa utanaðkomandi aðstoð. Alþingi útilokaði ekki aðlögun FRÉTTASKÝRING: Hvað felst í IPA-styrkjum ESB og aðildarviðræðum Íslands? Klemens Ólafur Þrastarson klemens@frettabladid.is IPA-styrkir eiga að auðvelda umsóknarríkjum samvinnu við ýmis verkefni, svo sem milli sérfræðinga og opinberra starfsmanna. Meðal annars milli stofnana umsóknarríkisins og evrópskra stofnana svo sem Endurreisnar- og þróunar- banka Evrópu, Fjárfestingabanka Evrópu og Evrópska seðlabankans. Að bæta eða mynda getu fjárhagsstofnana umsóknarríkisins. IPA-styrkir eiga einnig að stuðla að umræðu í samfélaginu, sem er hluti af áðurnefndu markmiði um þróun borgaralegs samfélags. Í því felst að stutt er við frumkvæðisrétt almennra borgara (e: civic initiative). Einnig á að styrkja fólk til að heimsækja stofnanir ESB til að bera saman bækurnar, auka þekk- ingu og ræða um góðar venjur, væntanlega í stjórnsýslu. Þá er minnst á styrki til borgaralegra samtaka. Heimild: Heimasíða ESB um stækkunarmál Stuðla að samfélagslegri umræðu Ákvörðun um IPA-styrki til landsins verður ekki tekin fyrr en í febrúar 2011, en á yfirliti um IPA-styrki ESB vegna ársins 2010, á heimasíðu ESB um stækkunarmál, er þegar minnst á Ísland einu sinni. Það er vegna upplýs- inga- og samskiptaáætlunar ESB og segir þar að markmið styrksins sé að auka vitund um kosti og áskoranir yfirstandandi stækkunar ESB gagnvart ríkjum Balkanskaga, Tyrklandi og Íslandi, með því að gera helstu hagsmuna- aðila, kynningaraðila og atvinnufólk í fjölmiðlun að þátttakendum í henni. Einnig á að stuðla að samskiptum milli fólks, svo sem með ferðalögum. Styrkina á að nota til að halda ráðstefnur, málstofur og námskeið. Þessir styrkir eru hugsaðir fyrir fólk í núverandi aðildarríkjum, og er einnig ætlað að byggja upp jákvæða ímynd „stækkunarríkja“ með menningar- eða íþróttaviðburðum. Með öðrum orðum er þetta styrkur til áhrifafólks innan núverandi aðildarríkja, til að gera aðild umsóknarríkja eins og Íslands eftirsóknarverðari í augum borgara ESB. Heimild: Heimasíða ESB um stækkunarmál Bæta ímynd umsóknarríkisins Hvað segir ESB um IPA-styrkina? AÐILDARUMSÓKN SAMÞYKKT Ísland tekur á ári hverju, og hefur tekið síðustu sextán ár, upp fjölmörg lög Evrópusambandsins í gegnum EES og má því segja að landið sé í stöðugri aðlögun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖGMUNDUR JÓNASSON TIMO SUMMA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.