Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 38

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 38
38 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR Að brosa er fólki nauðsynlegt sem lifir og hrærist í kast- ljósi fjölmiðla enda er stund- um sagt að ekki þurfi nema eitt stykki vandað eintak af brosi til sigra heiminn. Hólmfríður Karlsdóttir er lýsandi dæmi um það. Sennilega verður langt þangað til annað eins bros muni lifa með þjóðinni. Heiðar snyrt- ir tók sem dæmi að á meðan bros Unnar Birnu Vilhjálms- dóttir bræddi þá hlýjaði bros Hólmfríðar. Í öðru sæti yfir bestu brosin var borgarstjórinn Jón Gnarr og var einkum nefnt til sögunnar að heillandi væri hversu ósymmetrískt brosið væri, einlægt og strákslegt. „Hann brosir oft út í hægra munnvikið sem gefur vísbendingu um að hann sé stundum í tómum vandræð- um en hann meini ákaflega vel með öllu sem hann gerir,“ sagði einn viðmælandi blaðsins. Anna Rakel Róbertsdóttir, fyrirsæta og hönnunarnemi, og Helga Braga Jónsdóttir leikkona vermdu báðar þriðja sætið. Einum álitsgjafanum varð að orði að þrátt fyrir að Anna Rakel hefði „auglýst vörur og þjónustu með brosinu sínu í meira en áratug þætti manni það bara vera vika“. Úr umsögn álitsgjafa: „Það er varla til annað eins „V“ og hjartalaga bros í heimi.“ „Hún brosti með öllum kroppnum!“ „Gegnum árin hefur það ekkert breyst, Hólmfríður Karlsdóttir er með besta bros allra tíma, stirnir á tennurnar án þess að photoshop komi við sögu, enda byrjaði Hófí að brosa löngu áður en photoshop kom á markað.“ R úmlega þrjátíu manns, allt fólk sem á einhvern hátt hefur starfað í kringum hinar svokölluðu opinberu persónur, tilnefndu nokkra Íslendinga sem að þeirra mati státa af frábærasta hárinu, besta brosinu og undursamlegasta augnatillitinu. Þrátt fyrir að margir hafi verið nefndir til sögunnar voru nokkrir sem sköruðu afgerandi fram úr. Frábært hár og besta brosið Um miðjan mánuðinn eru 25 ár liðin frá því að Hólmfríður Karlsdóttir var kjörin ungfrú Heimur. Af því tilefni fékk Júlía Margrét Alexand- ersdóttir fjölda fólks til að velja frábært hár, besta brosið og undur- samleg augnatillit Íslendinga. FRAMBÆRILEGASTI ÍSLENDINGURINN? Hár Ólafs Ragnars Grímssonar forseta, augnaráð Hilmis Snæs Gíslasonar leikara og bros Hólmfríðar Karlsdóttur. SAMSETT MYND/RÓSA Agnes Amalía Kristjónsdóttir, sópran söngkona og leikfimikennari Andrés Jónsson almannatengill Andri Ólafsson fréttamaður Ása Ottesen tískubloggari Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Ásta Andrésdóttir blaðamaður Bergþóra Magnúsdóttir, búningahönnuður og nemi í grafískri hönnun Björn Leifsson framkvæmdastjóri Björn Sveinbjörnsson fram- kvæmdastjóri Brynhildur Stefánía Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri og snyrtifræð- ingur Díana Bjarnadóttir blaðamaður Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas „DD Unit“ tískubloggari Elín Albertsdóttir ritstjóri Elín Arnardóttir ritstjóri Elínrós Líndal forstjóri Gísli Marteinn Baldursson borgar- fulltrúi Guðný Þórarinsdóttir prentsmiður Gullveig Theresa Sæmundsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Gunnar Þór Nilsen Andrésson ljósmyndari Halldór Högurður, skaupskrifari og þúsundþjalasmiður Heiðar Jónsson snyrtir Hermann Gunnarsson fjölmiðla- maður Jóhannes Kjartansson, grafískur hönnuður Kolbrún Pálína Helgadóttir ritstjóri Kristján Þorvaldsson blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri María Guðrún Rúnarsd. ljósmyndari Óli Hjörtur Ólafsson kvikmynda- gerðarmaður Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri Sigríður Arnardóttir, „Sirrý“, fjöl- miðlakona Þóra Sigurðardóttir rithöfundur Þórunn Högnadóttir stílisti og blaðamaður Hár Ólafs Ragnars Gríms-sonar, forseta Íslands, hefur verið eitt af hans aðalsmerkjum alla tíð og allir þeir sem reyna að herma eftir honum verða að hafa hárkollu sér til halds og trausts, annars er Ólafur Ragnar ekki Ólafur Ragnar. Hár hans þótti fallegt, „þjóðlegt“ eins og einn orðaði það, og sóma sér vel á svo hávöxnum manni. Hárið þykir líka eldast vel og standa af sér tískustrauma. Borgar- fulltrúinn Dagur B. Egg- ertsson sótti hart að Ólafi Ragnari sem kemur engum á óvart enda hár- gerð þeirra beggja þannig, þétt og mikil, að hárgreiðsl- an stendur af sér veður og vind. Þriðja sætinu deildu svo Edda Andrésdótt- ir fréttakona, sem þykir hafa þykkt hár með góðum lit, og Margrét Vil- hjálmsdótt- ir er fulltrúi eldrauð- hærðra og skoraði hátt. Úr umsögn álitsgjafa: „Herra forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sveiflu og sveip sem er ómótstæðilegur dúett. Hárið lifir af 10 metra á sekúndu, hellidembu, 30 stiga hita á megin- landinu svo ekki sé minnst á allar tískusveiflurnar sem hárgreiðslan hefur staðið af sér með glans. Klár- lega frábærasta hár Íslands.“ „Hárið á Ólafi Ragnari er sennilega einstakt í Íslands- sögunni og muna lifa með þjóðinni um ókomna tíð, án gríns. Það er mér mikil ráðgáta hvernig hann nær fram þessari einstöku skiptingu og lyftingu og það er raunar ótrúlegt að engum skuli hafa dottið í hug að spyrja Ólaf; hver er galdur- inn á bak við hárgreiðsuna? Mér f innst samt eins og Dor r it hafi tónað greiðsluna aðeins niður. Þessi voru líka nefnd: Ellý Ármanns blaðamaður. „Þykkt, náttúrulegt og vel hirt hár.“ Fanney Ingvarsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning. „Með óvenju- legan rauðan háralit. Sjaldan sem svona sítt hár er svona vel hirt. Hallgrímur Helgason rithöfundur. „Eins frábært og hár getur verið má líka ekki gleyma þeim karlmönnum sem eru þrungnir af testósteróni og fara í gegnum áratugina á skallanum með góðum árangri. Hallgrímur Helgason gefur karlmönnum með há kollvik von og sjálfsöryggi.“ ■ ÁLITSGJAFAR VORU: FRÁBÆRT HÁR BESTA BROSIÐ Þessi voru líka nefnd: Friðrika Hjördís Geirsdóttir sjónvarpskona. „Það er alltaf eins og hún sé að sjá barnið sitt í fyrsta skipti þegar hún lætur skína í settið, svo innilegt er brosið.“ Hermann Gunn- arsson fjölmiðlamaður. „Bros sem lifir af kreppu, hörmungar, hjartaáföll og skilar sér meira að segja í gegnum útvarpið.“ Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona. „Með einstaklega fallegt bros og fallegar tennur.“ Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikaranemi. „Stórt og fallegt bros sem hæfir leikara einkar vel. Smitandi og sannfærandi.“ Hilmir Snær hefur túlkað fjölbreytta og ólíka einstaklinga og beit- ir augunum óspart til að ná fram réttu hughrifunum. Baráttan í þessum flokki var ótrúlega hörð og réðst ekki fyrr en með síðustu atkvæðunum. Hilmir Snær hafði yfirhöndina á loka- metrunum með augnaráði sem var lýst með ótal fjöl- breyttum lýsingarorðum svo sem seiðandi, krefj- andi, spurult, djúpt, fag- urt, viturt og nærgöngult. Að Hilmi Snæ sótti nýjasta stjarnan í sjónvarpsheimin- um, María Sigrún Hilmars- dóttir, en augnaráð hennar þótti exótískt og dularfullt. Vigdís Grímsdóttir og Páll Óskar Hjálm- týsson veittu Maríu Sigrúnu harða sam- keppni. „Eftirminnilegasta augnaráð ævi minnar, ískalt en samt svo innilegt,“ sagði einn álitsgjafinn um augna- ráð Vigdísar. „Kattarglyrn- ur Páls Óskars eru sting- andi hressar – gulltryggja að fólk fari í stuð!“ Úr umsögn álitsgjafa: „Kyntákn leikhúsheimsins og fellur ekki af stalli sínum þrátt fyrir ógrynni ungleik- ara sem allir eru reyna að feta í fótspor hans.“ „Ótrúlega ágengt augna- ráð en samt svo blítt um leið. Leikhúsgesti líður eins og hann sé einn í salnum með honum.“ „Getur fengið hvaða íspinna sem er til að kikna í hnjánum með augnaráðinu einu saman.“ UNDURSAMLEGASTA AUGNARÁÐIÐ Þessi voru líka nefnd: Ástþór Magnússon. „Ekki áttum við bestu bankamennina og ekki varð ten- órinn okkar jafn merkilegur eftir tilkomu Google – en við eigum einn sem er bestur í heimi, Ástþór Magnússon er með undursamlegasta augnaráð í heimi, ég geri orð Siggu Beinteins að mínum og segi: „Þú gleymir aldrei þessum augum, þau skjóta rótum inni í þér um leið.“ Tinna Bergs fyrirsæta. „Ótrúlegt augnaráð, grípandi og seiðandi í senn.“ Sirrý Geirsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning. „Eitthvað svo fallega íslenskt, dreymandi og leyndardómsfullt.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.