Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 48

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 48
 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR2 þrisvar, en nú er allt að verða fallegt aftur og snjór sestur í jökulinn,“ segir Óskar, sem um helgar vinnur ýmis útistörf sem til falla. „Ég sæki í útiverk og alltaf nóg að stússa, en ef ekki getur maður alltaf rekið girðingarstaurana aðeins lengra niður eða hert betur á gaddavírnum. Þess á milli skrifa ég í næði og innblæstri umhverfisins þar sem alltaf er eitthvað gott að sjá, hvort sem það eru nágrannar mínir við heyskap eða útiverk, því hér er allt annar þankagangur og snúningur á hlut- unum,“ segir Óskar sem á dögun- um gaf út smásagnasafnið Ég sé ekkert svona gleraugnalaus. „Fólkið í sveitinni og fólk í kringum mig alls staðar verður að yrkisefni og þótt ég geti víst ekki viðurkennt að í sögunum lifni við ákveðnar persónur koma fyrir prestar, sóknarnefndarfólk, bændur og búalið alls konar,“ segir Óskar leyndardómsfullur. „Þetta er græskulaust og von- andi eitthvað gaman. Sumar sög- urnar eru beinlínis alvarlegar, en hinar næstum hreinræktuð gaman- semi. Ég hef alltaf haft áhuga á sérkennum fólks og sækist ekki í að umgangast þá sem eru líkir sjálfum mér,“ segir Óskar, sem var fréttastjóri DV fyrir kvart- öld og blaðamaður á námsárum sínum í lögfræði, en gerðist síðar forstjóri Hagkaups, Vodafone og Tryggingamiðstöðvarinnar. „Ég saknaði blaðamennskunn- ar ekkert sérstaklega en viður- kenni að þykja mjög gaman að henni. Það var kannski helsta ástæðan fyrir því að mig lang- aði að atast í þessu Moggamáli, en skáldskapurinn tengist því þó ekki. Sem útgefandi Mogg- ans sameina ég áhuga á stjórn- un og blaðamennsku, og finnst mjög gaman þótt á brattann sé að sækja, en erfiðleikarnir eru ekki óyfirstígan legir og út af fyrir sig er ögrun í því.“ thordis@frettabladid.is Óskar segir sveitina veita sér innblástur. Borgartúni 24 105 Reykjavík Sími: 585 8700 www.madurlifandi.is Borða, biðja, elska námskeiðið með Eddu Björgvins og Bjargeyju Aðalsteinsdóttur. Meiri lífsgleði, húmor og hlátur, minni streita, betra mataræði, máttur hugleiðslu, hreyfing, meiri kærleikur og betra líf. Námskeið fyrir allar konur sem vilja auðga líf sitt af gleði og heilbrigði. Þriðjudaginn 9. nóvember frá kl. 18:00 til 21:00. í fræðslusal Maður lifandi Borgartúni 24. Innifalinn léttur kvöldverður í anda borða, biðja, elska. Skráning í síma 585 8701 eða gg@madurlifandi.is Verð aðeins kr. 2.900.- Spennandi námskeið kr. 19.900 Úlpur, kápur, hattar, húfur Rauðarárstígur 10 Sími: 562 4082 www.yggdrasill.is Heilbrigð skynsemi Veldu lífrænt í jólabaksturinn Margir af helstu gítarsnillingum landsins koma fram á gítarveislu Bjössa Thor í Salnum í kvöld. Fjölbreytt tónlist mun hljóma í Salnum en undirtónninn verður bítla- tónlist í tilefni af 70 ára afmæli Johns Lennon. Allar nánari upplýsingar á salurinn.is. „Við erum himinlifandi glöð og hamingjusöm með þennan nýja veg um Hófaskarðsleið, okkur finnst við vera orðinn hluti af miklu stærra samfélagi. Því höldum við hátíð þessa helgi undir heitinu Núna fer ég norð- ur,“ segir Halldóra Gunnarsdótt- ir, menningar-og ferðamálafull- trúi Langanesbyggðar. Halldóra segir kvenþjóðina hafa tekið forskot á sæluna með konukvöldi á Eyrinni en í dag komi yfirmenn samgöngumála fljúgandi norður í morgunsárið, opni veginn formlega og klippi á borða klukkan ellefu á áningar- stað í Hófaskarði. Á eftir sé kaffi- boð að Hnitbjörgum á Raufarhöfn fyrir alla sem vilja. Stór jólamarkaður verður opn- aður í íþróttahúsinu á Þórshöfn um hádegið og stendur fram á kvöld. „Þetta þýðir að við þurf- um miklu minna að fara út fyrir bæinn til að versla, því fjölmarg- ir eru með álitlegan söluvarning og sumir koma langt að,“ segir Halldóra. Hún rekur hugmyndina til atorkusamrar konu í atvinnu- málanefnd. Annar markaður verður svo í gömlu sundlauginni á Þórshöfn á vegum Styrks, sem er framtak nokkurra kvenna, að sögn Halldóru. „Þær selja bækur, belti, leikföng, fatnað og notaðar vörur af ýmsu tagi og afrakstur- inn nota þær til að styrkja ein- hverja sem eiga í erfiðleikum á svæðinu. Þarna er bara náunga- kærleikurinn að verki,“ lýsir Hall- dóra og segir líka gaman að fá líf í gömlu sundlaugina. „Laugin er nærri höfninni enda var hún í byrjun hituð upp með affallsvatni af frystihússvélunum. Við erum að hengja söguna af þessu merka fyrirbæri upp á veggi hússins.“ Smalahundakeppni á Ytra-Lóni er eitt af atriðum á dagskránni. Hún hefst klukkan eitt og er öllum opin. Austurlandsdeild Smalahundafélags Íslands held- ur hana. Píanótónleikar Þórarins Stef- ánssonar klukkan 18 teljast einn af hápunktunum. Þeir verða í Þórshafnarkirkju sem Halldóra segir frábært tónlistarhús. „Þór- arinn fann nótur með íslenskum útsetningum í Þjóðarbókhlöð- unni sem hann telur að aldrei hafi verið leiknar áður,“ segir hún. „Hann vissi af góðum flygli hér og ákvað að koma.“ Héraðsmót HSÞ í knattspyrnu verður haldið í fyrsta skipti á Þórhöfn á morgun. Skjálftasetr- ið á Kópaskeri er opið í tilefni hátíðarinnar, einnig Gljúfrastofa í þjóðgarðinum í Ásbyrgi og gamla Sauðaneshúsið. gun@frettabladid.is Hátíðin Núna fer ég norður Íbúar Þórshafnar á Langanesi og nágrennis fagna því um helgina að nýr vegur úr vestri inn í byggðar- lagið verður opnaður. Við það styttist aksturstími þangað um klukkutíma. Vegurinn liggur um Hófaskarð. „Þetta þýðir að við þurfum miklu minna að fara út fyrir bæinn að versla,“ segir Hall- dóra um markaðinn í íþróttahúsinu, sem hún er hér að undirbúa. MYND/GRÉTA Margir kunnir listamenn af Suður- nesjunum taka þátt í jólamark- aði með handverksvörur í Svarta pakkhúsinu í Reykjanesbæ í dag. Listamenn í fremri sal verða sjálf- ir til staðar og kynna sínar vörur og í þeim innri verða handunnar gjafavörur til sölu. Þá verður heitt á könnunni og piparkökur í boði hússins. Þeim sem kaupa gjaf- ir í nóvember býðst að skrá sig í lukku- pott Svarta pakkhúss- ins og verða þrír vinnings- hafar dregnir út 4. desember. Markaðurinn verður hafður opinn í dag frá klukkan 13-17. Jólastemning í Svarta pakkhúsinu HANDVERKSMARKAÐUR VERÐUR HALDINN Í REYKJANESBÆ Í DAG. Framhald af forsíðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.