Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2010, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 06.11.2010, Qupperneq 74
42 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR A uðvitað er ég er mjög ánægður með að við skulum vera að opna núna, því þetta hefur tekið dágóðan tíma. Fyrir tveimur árum vorum við einung- is sjö eða átta vikum frá opnun þegar allt hrundi. Félagið sem var að byggja húsið, Nýsir, fór á haus- inn og Landsbankinn tók það yfir, og samningar við Landsbankann tóku töluverðan tíma. En svo fór þetta aftur af stað í vor og hefur í raun tekið okkur um hálft ár að klára það sem hefði bara tekið tvo mánuði þegar allt var í blóma,“ segir Árni Samúelsson, sem lengi hefur verið kallaður bíókóngur Íslands. Sambíóin opnuðu í gær spánnýtt bíóhús í Egilshöllinni og telur Árni það vera í hópi þeirra glæsilegustu í Evrópu og jafnvel í gervöllum heimi. „Þetta er að minnsta kosti eitt það fullkomnasta og flottasta bíó sem ég hef séð, og hef ég nú séð þau mörg. Tjaldstærðin í sal 1 er 200 fermetrar, sem er á við góða íbúð, og í sal 3 er tjaldið stærra en gengur og gerist með stærstu salina í flestum öðrum kvik- myndahúsum í Reykjavík. Sætin eru einnig þægileg og afar full- komnar stafrænar þrívíddarvél- ar í öllum sölum, sem hægt er að stjórna hvaðan sem er í heiminum. Segjum til dæmis að ég sé stadd- ur í Los Angeles, eins og ég er oft, þá gæti ég hæglega ýtt á takka og þá kæmi hlé hér í Egilshöll,“ segir Árni og hlær. Bíóaðsókn eykst í kreppu Tækninýjungar hafa haft í för með sér miklar breytingar á afþreying- ariðnaðinum og nú er svo komið að flestir sem áhuga hafa geta halað niður bíómyndum af internetinu á fremur einfaldan hátt. Árni segir þessa þróun síður en svo hafa haft neikvæð áhrif á aðsókn í bíóhús, í það minnsta hér á Íslandi. „Íslendingar hafa alltaf farið mikið í bíó og ég get nefnt sem dæmi að síðasta ár var eitt það besta sem við höfum upplifað varðandi aðsókn. Sama má segja um árið í ár. Það er reyndar gömul og ný saga að þegar kreppur skella á eykst aðsókn í kvikmyndahús að sama skapi. Eins er með leikhús- in, veitingastaðina og hljómleika. Ég hef nú farið í gegnum þrjár kreppur í þessum bransa, þótt þessi sem nú stendur yfir sé vit- anlega sú versta, og það hefur sýnt sig að fólk þarf alltaf að lyfta sér upp. Að fara í bíó er ódýr skemmt- un og alveg dásamlegt hvað Íslendingar hafa mikinn áhuga á kvikmyndum,“ segir Árni. Egilshöllin nýtt flaggskip Árni segir fyrirtæki sitt standa á tímamótum þessa dagana þar sem kvikmyndahúsið í Egilshöll taki nú við af Bíóhöllinni í Álfabakka sem flaggskip Sambíóanna: „Ég hef alltaf kosið að reka þetta sem fjölskyldufyrirtæki því þannig hefur það gefist best. Björn sonur minn er sá færasti í hönnun kvik- myndahúsa hér á landi og hefur hannað bíóið í Egilshöll nánast frá grunni. Alfreð sonur minn sér um rekstur allra hinna bíóanna, hér í Álfabakka, Kringlunni, Akur- eyri, Selfossi og síðast en ekki síst Keflavík, þar sem þetta byrjaði nú allt saman. Afi Guðnýjar, kon- unar minnar, opnaði bíó í Kefla- vík árið 1945. Ég ætlaði aldrei að verða viðriðinn þennan bransa en það æxlaðist þannig að bróðir kon- unnar minnar, sem átti að taka við bíóinu í Keflavík, lést í umferðar- slysi á Reykjanesbrautinni árið 1967. Þess vegna tók ég við og er enn að, öllum þessum árum síðar. Svona eru nú örlögin stundum.“ Hér á árum áður var Árni þekkt- ur fyrir að vera með puttana í öllum þáttum reksturs kvikmynda- húsanna og vílaði ekki fyrir sér að bregða sér bak við afgreiðsluborð og skófla poppi í poka ef svo bar undir. Hann viðurkennir fúslega að hafa slakað örlítið á í vinnu eftir því sem árin hafa liðið. „Ég vinn hér daglega frá hádegi og fram til fimm eða sex á daginn, þá aðallega við að fylgjast með því sem er að gerast. Horfa aðeins yfir axlirnar á krökkunum,“ segir Árni og skellir upp úr. Á fyndnu fólki margt að þakka Bíókóngurinn segist hafa verið áhugamaður um kvikmynd- ir alla tíð og hafi gaman af flest- um tegundum bíómynda, þótt grín- og hasar myndir séu í mestu uppáhaldi. „Ef ég ætti að nefna eina mynd sem mér þykir einna vænst um þá væri það líklega Rain Main með þeim Dustin Hoffman og Tom Cruise í aðalhlutverkum. Um 80.000 manns sáu hana í bíó hjá okkur á sínum tíma og hún er ógurlega skemmtileg.“ Í gegnum tíðina hefur Árni verið iðinn við að heimsækja draumaborgina til að freista þess að krækja fljótt í söluvænlegustu kvikmyndirnar, eins og áður kom fram. „Skemmtilegast af öllu er þegar myndir sem við búumst ekki við of miklu af enda svo á því að raka inn áhorfendum. Nýlegt dæmi um slíkt er til dæmis myndin Dinner for Schmucks með Steve Carell og Paul Rudd. Paramount-fyrir- tækið vildi helst ekki láta okkur fá hana því hún hafði ekki verið sýnd neins staðar í Evrópu og þótti ekki vænleg til árangurs. En hvað gerist svo? Yfir 12.000 manns hafa þegar séð hana í bíó hér á Íslandi og Paramount-menn skilja hvorki upp né niður í þessu.“ Hann nefnir einnig myndina Funny People II frá árinu 1983, en í henni sýndi falin myndavél fólk í hinum ýmsu kostulegu aðstæðum. „Það eru líklega bestu kvikmynda- kaup sem ég hef gert. Ég keypti hana á 7.500 dollara og með fylgdi myndbands- og sjónvarpsréttur, og þegar sýningum lauk höfðu 52.000 manns séð hana í bíó. Það má segja að Bíóhöllin í Álfabakka eigi Funny People margt að þakka, því með tekjunum af myndinni kláruðum við afborganirnar af þessu húsi.“ Fylgir byggðinni Þegar Árni opnaði Bíóhöllina í Álfabakka árið 1982 var mynd- bandsvæðingin að ryðja sér til rúms hér á landi og margir spáðu því að lítil framtíð væri í bíóbrans- anum. Árni segir einnig marga hafa verið hissa á þeirri ákvörðun að byggja svo stórt hús í útjaðri borgarinnar, en þá voru flest bíó- húsin staðsett í miðbænum. „Þá voru 20.000 manns í Breið- holtinu og húsið varð strax mjög vinsælt. Það má líkja því við það sem við erum að gera í Egilshöll núna. Það búa nú um 40.000 manns í námunda við húsið í Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ og jafnvel Akranesi, en núna tekur einungis um 25 að keyra þaðan og niður í Egilshöll. Byggðin færist sífellt utar og við fylgjum henni,“ segir Árni Samúelsson. Fólk þarf alltaf að lyfta sér upp Árni Samúelsson, sem gjarnan er nefndur bíókóngur Íslands, opnaði í gær nýtt kvikmyndahús í Egilshöll sem hann segir vera eitt það glæsilegasta í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Kjartan Guðmundsson spjallaði við hann um nýja flaggskipið og fyndna fólkið. ÞESSIR STÓRU „í gegnum ferðir mínar um heiminn vegna sambanda í kvikmyndaiðnaðinum hef ég hitt heilan helling af þessum frægustu leikurum. Einna best kynntist ég Jon Voight, sem kom hingað til lands á okkar vegum árið 1990. Hann borðaði meðal annars íslenskar pönnukökur í eldhúsinu heima hjá okkur og talar enn um það þegar við hittumst,“ segir Árni, sem hér sést ásamt téðum Voight árið 1990, með Guðnýju og John Travolta árið 1982 og Sylvester Stallone árið1983. 1982 BÍÓHÖLLIN 1987 BÍÓBORGIN 1996 KRINGLUBÍÓ 2004 SAMBÍÓIN SELFOSSI OPNA 2006 EGILSHÖLL - SKÓFLUSTUNGA FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI „Þeir voru margir sem vildu kaupa fyrirtækið af okkur fyrir nokkrum árum þegar allt var í blússandi gangi, en við vildum ekki selja,“ segir Árni Samúelsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.