Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 94

Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 94
62 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR Helgi Valur Ásgeirsson vill ögra fólki með sinni þriðju plötu, Electric Ladyboyland. Hann tekur upp hanskann fyrir trans- fólk og aðra sem hafa orðið út undan í samfélaginu. Þriðja plata tónlistarmannsins Helga Vals, Electric Ladyboyland, er komin út. Auk Helga kemur að plötunni fjöldi reyndra tónlistar- manna undir samnefnaranum The Shemales, þar á meðal nokkrir meðlimir Amiinu. Fjölbreyttar lagasmíðar Að sögn Helga var platan í þrjú til fjögur ár í vinnslu. „Ég var í rauninni að gera tvær plötur á sama tíma. Svo var ég í meistara- námi í blaða- og fréttamennsku þannig að maður átti erfitt með að einbeita sér að þessu. Þetta var stórt verkefni og dýrt og rosalega mikið af tónlistarmönnum að spila með mér,“ segir Helgi, sem sendi á síðasta ári frá sér rappplötuna The Black Man is God, The White Man is the Devil. Frumburður hans, Demise of Faith, kom út 2005 eftir að hann sigraði í Trú- badorakeppni Rásar 2. „Fyrsta platan mín var nánast strípuð en þetta er algjör andstæða henn- ar,“ útskýrir hann og segist engan áhuga hafa á að gera sömu plötuna tvisvar. Í þetta sinn eru blásturs- og strengjahljóðfæri áberandi og fjölbreytnin er í fyrirrúmi í laga- smíðunum. Reynir að fanga kvenlegu eigin- leikana í sér Eiginkona Helga, Jóna Hildur Sig- urðardóttir, hannaði hið ögrandi umslag Electric Ladyboyland. Þar stillir popparinn sér upp í þröng- um, gylltum latexgalla. Helgi hefur gaman af því að ögra fólki. „Ég er að reyna að fá fólk til að sætta sig við það sem er frábrugð- ið í samfélaginu. Ég vil vekja upp spurningar um kynímyndir og af hverju það er í lagi fyrir konur að gera út á kynlíf en ekki karl- menn. Af hverju konur mega mála sig en ekki karlmenn. Maður var að taka upp hanskann fyrir svarta manninn á síðustu plötu en nú er það kannski „shemale-ið“, sem er seinasti minnihlutahópurinn til að vera viðurkenndur af samfé- laginu,“ segir hann og á við trans- fólk. „Annars er maður mest að syngja um sjálfan sig. Þetta er nokkurs konar sjálfshjálparplata fyrir manneskjur sem passa ekki alveg inn í samfélagið. Maður er svolítið þannig. Maður er að reyna að fanga kvenlegu eiginleikana í sér.“ Tókst á við veikindi sín Helgi átti í andlegum erfiðleik- um eftir að hann lauk upptök- um á plötunni og þurfti að leggj- ast inn á geðdeild. Aðspurður segir hann að álagið í kringum plöturnar tvær og námið sem hann var í á sama tíma hafi haft þar sitt að segja. „Þetta er eitt- hvað sem allir geta lent í, held ég, og það eru ótrúlega margir sem lenda í þessu, sérstaklega núna.“ Hann bætir við að tónlistarsköp- unin hafi hjálpað sér við að kljást við veikindin og hvetur jafnframt þá sem eiga við andleg vandamál að stríða að leita sér hjálpar eins og hann gerði. Eins og áður segir er hinn 31 árs gamli Helgi meistari í blaða- og fréttamennsku og getur vel hugsað sér að vinna við fjölmiðla í framtíðinni. „Kannski maður fari í það þegar maður er búinn með þetta. Það var alltaf planið að gefa út þrjár plötur. Maður er alla vega búinn að ná takmarkinu sínu.“ Útgáfutónleikar Helga Vals eru fyrirhugaðir 17. nóvember. freyr@frettabladid.is Sjálfshjálparplata fyrir utangarðsfólk í samfélaginu Leikarinn Sam Worthington vonar að mistökin sem voru gerð í hasar- myndinni Clash of the Titans verði leiðrétt í framhaldinu sem er vænt- anlegt. Hinn ástralski Worthington- lék Perseus í fyrri myndinni. Hún fékk slæma dóma gagnrýnenda, en góða aðsókn eigi að síður. „Fyrri myndin var rökkuð niður en græddi samt hálfan milljarð dollara. Þegar við búum til næstu mynd ætlum við að leið- rétta mistökin úr þeirri fyrri. Ég vil til dæmis breyta Per- seusi. Aðalstjarn- an á ekki að vera nauðasköllótt.“ Vill leiðrétta mistökin 183.000 EINTÖK AF NÝJUSTU PLÖTU KINGS OF LEON , Come Around Sundown, seldust í Bretlandi í vikunni sem hún kom út. Engin plata á árinu hefur selst jafn hratt. ÖGRANDI Helgi Valur vill ögra fólki með sinni nýjustu plötu, Electric Ladyboyland. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Daniel Chartier áritar The End of Iceland´s Innocence í Bóka- búð Máls og menn- ingar milli kl. 14:00 og 15:00 á sunnudag. BLÁI HRINGURINN ALÞJÓÐADAGUR UM SYKURSÝKI 14.NÓVEMBER KAUPUM HRINGINN TIL STYRKTAR SAMTÖKUM SYKURSJÚKRA FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM Bíldshöfða - Sími 585 7220 - OPIÐ ALLA DAGA 12 ga – fyrir 25 skot. Verð: 3.490 Riffilskot. Verð: 1.090 – 50 stk. folk@frettabladid.is Ég vil vekja upp spurningar um kynímyndir og af hverju það er í lagi fyrir konur að gera út á kynlíf en ekki karlmenn. Af hverju konur mega mála sig en ekki karlmenn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.