Fréttablaðið - 06.11.2010, Page 110
78 6. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
PERSÓNAN
Bíl kvikmyndagerðarmannsins
Heimis Sverrissonar var stolið
fyrir utan heimili hans á Njáls-
götu á miðvikudaginn var. Bíllinn
er grænn Benz af árgerðinni 1979
og því um antíkgrip að ræða.
„Ég var nýkominn heim eftir
tökur og lagði bílnum fyrir utan
húsið. Tveimur klukkustundum
síðar var hann horfinn. Vitni sagð-
ist hafa séð tvo menn í mjög annar-
legu ástandi brjótast inn í bílinn og
keyra niður Njálsgötuna og beint
í flasið á tökuliði kvikmyndarinn-
ar Gauragangs. Þeir keyrðu beint
aftan á einn trukkinn sem töku-
liðið var með og héldu svo glæfra-
akstrinum áfram. Sem betur fer
slasaðist enginn,“ segir Heimir.
Hann eignaðist bílinn fyrr í
sumar og hefur síðan þá eytt mikl-
um tíma í að gera bílinn upp og því
er þetta fyrst og fremst mikið til-
finningalegt tjón fyrir Heimi. „Við
notuðum bílinn við tökur á mynd-
inni Djúpinu í sumar og ég keypti
hann í kjölfarið af Þorsteini Bach-
mann leikara. Þetta er rosalegur
kaggi og í góðu ástandi þannig að
ég vil gjarnan fá hann aftur. Hann
er það sérstakur að það ætti ekki
að vera hægt að rúnta um bæinn
á honum án þess að eftir honum
verði tekið,“ segir Heimir, sem
biður fólk um að hafa augun opin
og gera lögreglu viðvart sjái það
bílinn einhvers staðar á ferð. „Ég
veit að hann er klesstur að fram-
an núna eftir áreksturinn við töku-
lið Gauragangs, annars vona ég að
hann sé nokkurn veginn í heilu
lagi,“ segir hann að lokum. - sm
Frægri Benz-bifreið stolið
FLOTTUR BÍLL Bíllinn er af árgerðinni
1979 og telst því vera hálfgerð antík.
Hann var notaður við tökur á kvikmynd-
inni Djúpinu í sumar. FÓRNARLAMB ÞJÓFA Benz-bifreið
kvikmyndagerðarmannsins Heimis
Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili
hans á miðvikudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Heimildarmynd um harðkjarnasveitina
Mínus verður fyrsta mynd stofnkvölds kvik-
myndaklúbbsins Arnarhreiðursins, sem
hefur aðsetur í Bíó Paradís. Myndin þótti það
umdeild á sínum tíma að hún átti aldrei að
koma fyrir augu almennings og er því sveipuð
eins konar goðsagnakenndum ljóma. Myndin
verður sýnd á miðvikudag klukkan 20.30.
Grímur Þórðarson, umsjónarmaður Arnar-
hreiðursins, segist hafa vitað af myndinni í
mörg ár og þótti kjörið að hefja göngu klúbbs-
ins með látum. Leikstjórar myndarinnar eru
Frosti Runólfsson og Haraldur Sigurjónsson
og fylgdu þeir Mínusmönnum eftir á árunum
2001 til 2005.
„Þetta er án efa ein svæsnasta heimildar-
mynd um íslenska hljómsveit sem gerð hefur
verið. Það var sumt í myndinni sem þurfti að
fjúka því það var svo svaðalega bannað börn-
um, en þrátt fyrir það er myndin enn eins
mikið „sex, drugs and rock ‘n‘ roll“ og hugs-
ast getur,“ segir Frosti. Inntur eftir því hvort
meðlimir sveitarinnar séu sáttir við sýning-
una svarar Frosti því játandi. „Hefði Grímur
spurt okkur fyrir þremur árum hvort hann
mætti sýna myndina hefðum við hiklaust sagt
nei. Strákarnir hafa þroskast það langt frá
þessu núna að þeim er sama þótt hún sé sýnd.
Nú geta þeir litið á þetta sem bernskubrek
sem hægt er að hafa gaman af.“
Miðasala er þegar hafin á sýninguna og
kostar 1.000 krónur og gildir hér orðtakið
fyrstir koma fyrstir sjá. Hægt er að nálgast
miða í Bíó Paradís og á midi.is. - sm
Goðsagnakennd Mínusmynd sýnd á ný
Í ARNARHREIÐRINU Grímur Þórðarson, umsjónar-
maður Arnarhreiðursins, ásamt Frosta Runólfssyni og
Haraldi Sigurjónssyni, leikstjórum heimildarmyndarinn-
ar um Mínus. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Guðmundur Gunnarsson
Starf: Sjónvarpsmaður og kynnir í
Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Aldur: 34 ára.
Fjölskylda: Ég er í sambúð með
Kristjönu Millu og á eitt barn.
Búseta: Kópavogur.
Stjörnumerki: Oftast er ég vog, en
stundum er ég meyja.
Guðmundur verður kynnir í Söngva-
keppni Sjónvarpsins á móti Ragnhildi
Steinunni Jónsdóttur.
„Þessi stormur í kringum bókina
er nýr og góður kafli í lífi konungs-
ins. Það kæmi mér ekki á óvart ef
Karl Gústaf verði laus og liðugur
áður en langt um líður,“ segir Sig-
ríður Klingenberg spámiðill.
Allt fór á hvolf í Svíþjóð í vikunni
þegar upplýst var um svall Karls
Gústafs Svíakonungs og framhjá-
höld í nýrri bók. „Silvía drottning
er glæsileg kona en þau eru bara of
ólík til að geta verið saman. Það er
mín skoðun og ég held að þau séu
bæði komin á ákveðinn vendipunkt
í sínu lífi. Ég held að maður eigi
samt að taka öllum þessum sögum
sem koma fram í bókinni með fyrir-
vara,“ segir Sigríður Klingenberg
enn fremur, en hún átti góðar
stundir með Karli Gústaf þegar
hann var staddur hér á landi í ágúst
við veiðar með góðum hópi manna.
Meðal annars spáði hún fyrir kon-
ungi og var með honum í einkateiti
á skemmtistaðnum Austur.
„Konungurinn er með mjög góð-
leg augu og það sá til dæmis aldrei
á honum vín. Vinkona mín hringdi
í mig í vikunni og sagði mér frá að
ég hafði rétt fyrir mér, Svíakon-
ungur er kominn inn á nýjan kafla
í sínu lífi,“ segir Sigríður. Bókin
sem um ræðir er ekki skrifuð með
samþykki Karls Gústafs og lýsir
honum sem partíljóni og kvenna-
manni miklum. Meðal annars eru
frásagnir af kynlífspartíum þar
sem konur voru beinlínis fluttar á
milli til að halda konungi og vinum
hans félagsskap.
En koma þessar lýsingar af
Karli Gústaf Svíakonungi Sig-
ríði á óvart eftir að hafa eytt með
honum dágóðum tíma? „Ég má ekki
tjá mig mikið um þetta enda er það
ekkert sérstaklega smart. Ég get
sagt að hann var prúður prins á
SIGRÍÐUR KLINGENBERG: SVÍAKONUNGUR VAR PRÚÐUR Á ÍSLANDI
Nýtt og gott tímabil að
hefjast í lífi Karls Gústavs
meðan hann var hér en hann var
líka hress og skemmtilegur, með
mikinn húmor,“ segir Sigríður og
bætir við að hún hafi ekkert nema
gott um konunginn að segja. Sigríð-
ur segir að hegðun Karls Gústafs
á skemmtistaðnum Austur styðji
ekki lýsingarnar af partílíferninu í
bókinni. En mundi hún lýsa honum
sem partíljóni?
„Ja, annaðhvort ertu partíljón
eða „partypooper“. Í þeim skiln-
ingi var Karl Gústaf partíljón og
hann sat með bros á vör og sama
kampavínsglasið allan tímann. Það
var fullt af konum þarna en hann
var ekkert að gefa þeim neitt sér-
stakt auga. Í mesta lagi kyssti hann
sumar á handarbakið enda mikill
séntilmaður,“ segir Sigríður og
bætir við að hún finni til með kon-
unginum. „Það eru ekki auðvelt
hlutskipti að þurfa að vera settleg-
ur allt þitt líf og vera undir vökul-
um augum almennings allan sólar-
hringinn.“ alfrun@frettabladid.is
„KONUNGURINN
ER MEÐ GÓÐLEG
AUGU“
Það kæmi Sigríði Klingen-
berg spámiðli ekki á óvart
ef hjónaskilnaður myndi
skekja sænsku konungs-
fjölskylduna á næstunni en
hún spáði fyrir Svíakon-
ungi síðast þegar hann var
hér á landi við veiðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UPP AÐ
ALTARINU
Ný ljóðabók eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur,
skyldueign einhleypra, kaldhæðinna, hamingju-
samlega giftra og vitanlega allra rómantíkera.
Fös 5.11. Kl. 20:00 6. sýn
Lau 6.11. Kl. 20:00 7. sýn
Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 12.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Lau 27.11. Kl. 20:00
Sun 28.11. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Lau 6.11. Kl. 13:00
Lau 6.11. Kl. 15:00
Sun 7.11. Kl. 13:00
Sun 7.11. Kl. 15:00
Lau 13.11. Kl. 13:00
Lau 13.11. Kl. 15:00
Sun 14.11. Kl. 13:00
Sun 14.11. Kl. 15:00
Lau 20.11. Kl. 13:00
Lau 20.11. Kl. 15:00
Sun 21.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 15:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 15:00 100 sýn.
Fös 5.11. Kl. 20:00
Lau 6.11. Kl. 20:00
Fim 11.11. Kl. 20:00
Fös 12.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Fös 26.11. Kl. 20:00
Lau 27.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 7.11. Kl. 19:00
Mið 10.11. Kl. 19:00
Sun 14.11. Kl. 19:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 26.11. Kl. 20:00
Fim 2.12. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 3.12. Kl. 20:00
Ö
U
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 14:30
Sun 28.11. Kl. 11:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 14:30
Lau 4.12. Kl. 11:00
Lau 4.12. Kl. 13:00
Lau 4.12. Kl. 14:30
Sun 5.12. Kl. 11:00
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 14:30
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Leitin að jólunum
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö Ö
Ö
Ö
U Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö U
U
U
U
U
U
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU