19. júní


19. júní - 19.06.1981, Síða 9

19. júní - 19.06.1981, Síða 9
„Þetta er eln þeirra kvenna sem ég dái,“ segir Vlgdís um önnu Klemenzdóttur í Laufási. Myndin er tekin á níræðisafmæli önnu, 19. júní 1980. viðurkenna, að þessi viðleitni mín kostaði það, að mér var á stundum nokkuð heitt! Allur matur í veislu, sem ég hélt í Kaupmannahöfn, var líka fluttur héðan að heiman. Þar var ég sem gestgjafi líka í íslensk- um skautbúningi í fyrsta sinn, síðan ég varð forseti. Hann var tákn Islands og þess sem íslenskt er gagnvart Dönum.“ — Áttirðu samvinnu um þetta við íslensk fyrirtæki? Vigdís í íslenska skautbúnlngnum, sem móðir hennar baldýraði á yngri árum. , Já, mér var sýndur mikill höfð- ingsskapur og rausn í þessum efnum. Bændasamtökin gáfu pels- inn, sem ég var í við komuna til Kaupmannahafnar og allan kjöt- mat í veisluna, sem ég hélt. Ýmis fyrirtæki létu sníða og sauma á mig annan fatnað. Þetta var allt hannað sérstaklega. Ég mátti ekki vera í nákvæmlega þeim flíkum, sem byrjað er að fjöldaframleiða, heldur fatnaði sem verið er að hanna. Ég get sagt með sanni, að útflutningsfyrirtækin öll og iðnaðurinn, hafi í þessu staðið með mér í einu og öllu — og þannig vil ég líka hafa það í öðrum þeim heimsóknum sem á döfinni eru.“ — Hvert ferðu næst? „í október fer ég til Noregs og í bígerð er einnig ferð til Svíþjóðar. Svo er þess að geta, að Ingiríður, móðir Margrétar Danadrottning- ar, er væntanleg í heimsókn hingað. Hún á góðar minningar um Island og langar mikið til þess að koma aftur. Þess vegna bauð ég henni hingað sem einkagesti mínum, þegar ég var í Kaup- mannahöfn í vetur. Því miður getur ekki af því orðið nú í sumar, en vonandi verður það þá næsta sumar. Hún minnist með mikilli hlýju ferðar sinnar hingað árið 1938. Þá sigldu þau hjónin — hún og Friðrik — frá Reykjavík vestur um og til Akureyrar og fóru þaðan að Mývatni. Nú dreymir hana um að sjá Austfirðina. Líkast til verður ferð hennar þess vegna þannig háttað, við við stöllur munum valsa mest um á Austfjörðunum. En það er fleira á döfinni hjá mér en utanferðir. I sumar — þann 10. júlí — verð ég á landsmóti ungmennafélaganna á Akureyri og mig langar mikið til þess að geta verið eitthvað um kyrrt á Norður- landi.“ Með kjólfald drottningar í kjöltunni Það var komið fram undir há- degi, búið úr kaffibollunum, og næsti gestur Vigdísar farinn að bíða frammi í forskrifstofunni, svo að tíðindamaður 19. júní bjóst til þess að þakka fyrir sig og kveðja. „En það gerast nú líka spaugileg atvik í heimsóknum eins og þeirri sem ég fór til Danmerkur,“ sagði forsetinn um leið og hún bjóst til að fylgja mér til dyra. „Þannig var, að í veislunni, sem Danadrottning hélt mér, flutti ég að sjálfsögðu ræðu. Rétt áður en ég átti að standa upp til þess að halda ræðuna, rann munnþurrkan mín á gólfið. Ég vildi auðvitað reyna að Framhald á bls. 46.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.