19. júní


19. júní - 19.06.1981, Side 10

19. júní - 19.06.1981, Side 10
Björg Einarsdóttir. Lákaði vel andinn Grönn, fíngerð, björt yfirlitum og kvik í hreyfingum kemur við- mælandi minn til móts við mig, þegar mig ber að garði hjá henni. „Þú lætur ekki standa á þér“, segir hún, en við höfðum komið okkur saman um viðtalstíma og blaðamaður 19. JÚNÍ vissi af reynslu að öldruðu fólki er ekki um að bíða. Við erum stödd að Lynghaga 10 á heimili Jóhönnu Egilsdóttur. Tilefni heimsóknarinnar er, að þessi verkalýðsleiðtogi, eldheita kvenréttindakona og elsti félagi í Kvenréttindafélagi Islands er senn tíræð. Á síðastliðnu ári kom út bókin „Níutíu og níu ár“, þar sem Gylfi Gröndal færir í letur frásagnir Jóhönnu úr ævi hennar og starfi. Eins og stíll bókarinnar ber með sér, er Jóhanna hispurslaus og kemur beint að efninu. Og óþarfi er að gera sér upp tæpitungu við öldunginn, hún er fullkomlega með á nótunum — man liðna tíð og fylgist með í nútímanum. Jóhanna er beðin að segja frá kynnum sínum af KRFl, en hún er heiðursfélagi þess; hvernig daglegt líf hennar sé; hvort henni þyki betur hfað en ólifað og annað er í hug hennar kemur og hún kýs að komi fram. KRFÍ með Bríeti í broddi fylkingar — Ég gekk í Kvenréttindafél- agið árið 1909, tveimur árum eftir að það var stofnað og það var fyrsta félagið, sem ég gekk í. Við vorum fjórar konur, sem leigðum hjá Magneu Bergmann á Lindar- götunni og hún hvatti okkur til að ganga í KRFÍ. Við gengum allar inn á sama fundi. Mér líkaði vel að koma á mannamót. Réttindi kvenna til jafns við karla, kosningaaréttur og kjör- gengi voru aðalbaráttumál okkar. Konur voru meðhöndlaðar eins og illræðismenn, en þeir hafa ekki kosningsrétt. Fundir voru fremur fámennir, en tíðir og oftast heima hjá Bríetu í Þingholtsstræti 18. Þar kynntist ég mörgum eftirminnilegum konum eins og Kristínu Guðmundsdóttur í Gróðrastöðinni, Guðrúnu og Ragnhildi Pétursdætrum úr Engey og Jónínu Jónatansdóttur, er síðar varð fyrsti formaður Verka- kvennafélagsins Framsóknar, sem stofnað var 1913 að tilhlutan KRFÍ. Styrkur KRFÍ hefur alltaf verið að það er þverpólitískt — þar vinna konur úr öllum flokkum saman að sameiginlegum mark- miðum. Það er fágætt, en afar mikilsvirði og því má ekki glutra úr höndum sér. KRFÍ með Bríetu í broddi fylk- ingar beitti sér fyrir framboði kvenna við bæjarstjórnarkosning- arnar 1908 og unnu frægan sigur, þegar allar konurnar fjórar á list- anum komust inn. Síðar komu stéttarfélögin til sögunnar með framboðslista og þá kusu verkakon- ur með þeim, en þetta var áður en eiginleg flokkaskipan komst á. Bríet hafði brennandi áhuga

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.