19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 13

19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 13
Jónu Guðjónsdóttur, sem lengi var varaformaður minn í verka- kvennafélaginu og tók við for- mennskunni af mér. Á hverju sumri bjóða þær í verkakvennafélaginu mér dvöl í Ölfusborgum og barnabörn min keppast um að fara þangað með mér. Aldrei friður nú til að starfa að góðum þjóðmálum — Verkföll voru áður beittasta vopnið til að ná fram undirstöðu- réttindum fólks, en nú er aldrei friður til að starfa að góðum þjóð- málum fyrir verkföllum og hótun- um. Mér eru minnisstæðir menn eins og Haraldur Guðmundsson og Jón Baldvinsson. Ég hafði miklar mætur á þeim báðum, en við Jóna unnum mest samán. Maður lærir mest á samstarfi við mætar mann- eskjur og ég vil ekki meta fólk eftir pólitískum lit, heldur eiginleikum og baráttuaðferðum. Það er lítill vegur í því að beita aðstöðu, völd- um og áhrifum eingöngu sjálfum sér til framdráttar. Ég tel að aldrei megi taka persónulega hagsmuni fram yfir heildarhag. Eg kynntist Auði Auðuns, þegar ég var í launabaráttunni og borg- armálunum og mér féll vel að starfa með henni. Ég varð hálf- hissa, þegar hún fór að vitna í mig í útvarpsviðtali í fyrra og sagði eitt- hvað á þá leið, að svo mikið hefði hún lært af Jóhönnu Egilsdóttur að meta ekki fólk eftir pólitískum línum, heldur manngerð. Þarna þótti mér meistarinn farinn að lúta lærisveininum. Betra lifað en ólifað — Hvort betra sé að lifað en ólifað, spyrð þú. Já, hvað hefur maður gert gott með því að lifa? Ég segi aðeins þetta — stórir hópar láta gott af sér leiða og reynast þjóðfélaginu þarfir og yfirskyggja hina, sem miður gengur. Kýs ekki konu aðeins af því að hún er kona — Að lokum Jóhanna, hvað segir þú um hugmyndina um tímabundin forréttindi konum til handa, eins og kveðið er á um í frumvarpi sem Jóhanna Sigurðar- dóttir hefur flutt á Alþingi? Hvort sem frumvarp Jóhjönnu verður samþykkt eða ekki, þá skapar það umræðu og hún getur leitt til þess að úrbætur finnist. En ég kýs ekki konu aðeins af því að um konu er að ræða. Val mitt ræðst af áliti minu á hæfni fólks fyrst og fremst, án tillits til hvort karl eða kona á í hlut. Samtalinu fleygði fljótt fram, við komumst að efninu umbúða- laust og ekki sáust þreytumerki á hinni öldnu kempu eftir tveggja klukkutíma óslitnar samræður um heima og geima. Aðeins brot að því er hér fest á blað — það á ekki allt erindi, sagði Jóhanna. Þessi heimsókn færði blaða- manni heim sanninn um að það eru ekki alltaf æviárin, sem marka aldurinn. Það er óskapa veður út af mér, segir Jóhanna, um daginn voru þeir með útvarpsviðtal. En mér þykir vænt um að heyra frá Kvenréttindafélaginu, þetta er baráttufélag. Það var komið borð á konfekt- kassa, sem Jóhanna tók fram af tilefninu og kaffið, sem átti að duga henni fram á kvöldið var langt til drukkið. En eftir situr djúp tilfinning fyrir því að hafa mætt merkisbera mannúðar og mannréttinda, sem þrátt fyrir hnjask í hita augnabliksins, þegar hæst hóaði í baráttunni fyrir bættum kjörum, hefur varðveitt heiðríkju hugans. f hópl þingkvenna 1957. Adda Bára Slgfúsdóttir, varaþlngm. nóv. 1957, Jóhanna Egilsdóttlr, varaþingm. nóv.— des. 1957 og Ragnhildur Helgadóttir kjörin á þing 1956. 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.