19. júní - 19.06.1981, Page 14
ÍSLENSK FATAHÖNNUN
Eva Vilhelmsdóttir
— fatahönnuður
Umsjón og texti: Katrín Pálsdóttir
Vigdís Finnbogadóttir forseti
Islands klæddist m. a. fallegum
fatnaði úr íslenskri ull, þegar hún
heimsótti Dani í byrjun þessa árs.
í tengslum við heimsóknina var
haldin sýning á íslenskum ullar-
vörum bæði í Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi. Islenski fatnaðurinn
vakti óskipta athygli, enda má
segja að hann hafi sjaldan eða
aldrei fengið meiri og betri aug-
lýsingu.
Það var Eva Vilhelmsdóttir
fatahönnuður, sem hannaði þann
fatnað sem forsetinn okkar
klæddist. Eva lauk námi frá list-
iðnaðarskóla, Skolen for brugs-
kunst, í Kaupmannahöfn árið
1972. Aðaláherslan í náminu var
lögð á listrænt og fallegt útlit fatn-
aðarins, en einnig kynntist Eva vel
öllum hliðum fataframleiðslu þau
fjögur ár sem hún var við nám í
Kaupmannahöfn.
12
Eftir að námi lauk hefur Eva
meira og minna unnið fyrir fram-
leiðendur ullarfatnaðar. Hún hef-
ur starfað hjá Álafossi undanfarin
ár.
Eva er meðlimur í Textílfélag-
inu og Gallerí Langbrók og hefur
tekið þátt í samsýningum félag-
anna. Hún hefur skrifað um tísku
og fatahönnun fyrir Tískublaðið
Líf og var um skeið kennari við
fataiðnaðardeild Iðnskólans í
Reykjavík.
Hér á síðunum eru sýnishorn af
þeim fatnaði, sem Eva hefur
hannað fyrir Álafoss og einnig
teikningar hennar af ullarfatnaði
þeim sem Vigdís Finnbogadóttir
klæddist í Danmerkurheimsókn-
inni.