19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 32
Stýrimannaskólinn
Byrjaði til sjós
15 ára
Sigrún Svavarsdóttir.
Rætt við
Sigrúnu Svavarsdóttur
stýrimann
Vélskólinn
Til bóta ef konum
fjölgaði í skólanum
í Vélskólanum er kvenmanns-
fæðin enn meiri en í Stýrimanna-
skólanum. Aðeins ein kona hefur
lokið námi frá Vélskólanum,
Guðný Lára Petersen, sem er 23
ára, en hún útskrifaðist vorið 1978.
„Guðný Lára var alltaf topp-
nemandi og gekk vel á öllum próf-
um,“ sagði Bogi Arnar Finnboga-
son á skrifstofu Vélskólans. Aðeins
ein stúlka, Rannveig Rist, er nú við
nám í skóianum, en hún stundar
jafnframt nám í vélaverkfræði við
Háskóla Islands. Bogi taldi það
yrði til bóta ef konum fjölgaði í
skólanum.
30
Engar horfur eru á verulegri
fjölgun kvenna í sjómannastéttinni
á næstunni. Sigrún Svavarsdóttir
frá Djúpavogi, er fyrsta konan sem
lauk farmannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum, en það var vorið
1979. Þrjár stúlkur hafa verið við
Ég fór fyrst til sjós 15 ára, á
handfæri með pabba sem var með
trillu yfir sumarið, en annars er
hann ekki sjómaður, sagði Sigrún
Svavarsdóttir, þegar blaðamaður
19. júní hringdi í hana snemma í
maí, þar sem hún var við störf sín í
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.
17 ára byrjaði ég svo sem háseti á
fiskiskipum og á þeim var ég þar til
ég fór í Stýrimannaskólann 20 ára
gömul. Haustið 1979 varð ég stýri-
maður á Jóni Guðmundssyni, 125
tonna báti frá Djúpavogi, á reknet-
um. Vorið 1980 slasaðist ég, svo ég
varð að fara í land, en þá var ég
komin á annan bát. Um seinustu
áramót byrjaði ég í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar, en ég fer á
sjóinn alveg á næstunni. Ég hef
nám í skólanum í vetur. Inntöku-
skilyrði í Stýrimannaskólann eru
grunnskólapróf og 24 mánaða sigl-
ingatími. Það tekur 2 ár að ljúka
fiskimannaprófi og 3 ár að ljúka
farmannaprófi.
áður verið á varðskipi, var háseti á
v/s Tý sumarið 1978. Á varðskip-
unum eru allir í eins manns klefum
og allur aðbúnaður mjög góður.
Það besta sem ég hef kynnst til sjós.
Fínir kallar
Viðhorfin eru ólík úti á landi.
Fyrir austan er alltaf slæðingur af
stúlkum á sjó og það þykir sjálf-
sagt. Hérna fyrir sunnan er meira
spekúlerað í því hvort maður er
karl eða kona. Sumum finnst það
kannske svolítið skrýtið fyrst að fá
kvenmann um borð, en eftir
nokkra daga hafa þeir vanist því og
maður verður einn af hópnum.
Þeir sem ég hef verið með til sjós
hafa verið upp til hópa fínir kallar.
Fyrirmyndir
í f jölskyldunni
Rætt við
Guðnýju Láru Petersen
vélstjóra