19. júní


19. júní - 19.06.1981, Page 33

19. júní - 19.06.1981, Page 33
Ég valdi Vélskólann aðallega til að prófa jeitthvað nýtt, sagði Guðný Lára i símaviðtali við 19. júní. Eftir að ég lauk gagnfræða- prófi frá Kvennaskólanum langaði mig ekki að halda áfram í menntaskóla — vildi heldur fara út í atvinnulífið. Mér fannst samt gaman að læra í Kvennó — hafði mestan áhuga fyrir íslensku og sögu. Annars hef ég nóg af fyrirmynd- um í fjölskyldunni — pabbi og afi, maðurinn minn, sem ég kynntist reyndar í Vélskólanum, og tengdapabbi — eru allir vélstjórar. Vélstjóranámið einnig miðað við vinnu í landi Inntökuskilyrði í Vélskólann eru grunnskólapróf og 17 ára lág- marksaldur. Ekki er krafist sigl- ingatíma eins og í Stýrimanna- skólanum, enda er vélstjóranámið ekkert síður miðað við vinnu í landi. Það tekur fjóra vetur að fá full réttindi, en síðan til að fá fyllstu réttindi sem fyrsti vélstjóri á skip- um af ótakmarkaðri stærð, þurfa menn að vinna tvö ár á verkstæði og ljúka sveinsprófi í vélvirkjun. Þá hefur maður líka betri möguleika á vinnu í landi. Námið er ekki lík- amlega erfitt, en það er mikil vinna við teikningar og skýrslugerðir. Vélstjórastarfið hæfir jafnt konum sem körlum. Hef verið að spá í að komast á sjó í sumar Námið er hagnýtt og ég hef komist í vinnu tengda því. Meðan ég var í skólanum var ég á Bakka- fossi eitt sumar, aðstoðarmaður í vél. Sumarið eftir að ég kláraði skólann vann ég austur á Irafossi, en fannst starfið of rólegt. Þá vann ég tæp tvö ár hjá LÍÚ við inn- flutning á vélavarahlutum. Haust- ið 1980 gerðist ég kennari við Vél- skólann — hafði reyndar kennt þar stundakennslu áður — en ég hef verið að spá í að komast eitthvað á sjó í sumar. Fiskvinnsluskólinn Fjöldi innritaðra og útskrifaðra nemenda frá Fiskvinnsluskólanum árin 1971—1980 Innritaðir nemendur Konur Karlar 38 161 19% 81% Fiskvinnsluskólinn tók til starfa árið 1971, en hann er til húsa í Hafnarfirði. Skólinn útskrifar fisk- iðnaðarmenn og fisktækna. Að loknu eins árs undirbúnings- námi ljúka nemendur fiskiðnaðar- mannsprófi eftir eins og hálfs árs bóklegt og verklegt nám í skólan- um auk 9 mánaða starfsþjálfunar. Fiskiðnaðarmenn hafa réttindi sem verkstjórar í frystihúsum og matsmenn. Fisktæknanámið tekur síðan eitt og hálft ár til viðbótar og að því loknu geta fisktæknar tekið við stjórn frystihúsa eða haldið áfram Útskrifaðir fisktæknar Konur Karlar 1 33 3% 97% námi í Háskólanum eða Tækni- skóla Islands. í námi við fiskiðndeild skólans voru í vetur 13 konur og 34 karlar en í tæknadeild 11 karlar. Konum hefur farið fjölgandi í skólanum seinustu árin, en fyrsta árið innrit- aðist engin kona. Eina konan sem útskrifast hefur sem fisktæknir er Þóra Pétursdótt- ir, verkstjóri á Höfn. Af töflunni má sjá að hlutfalls- lega fleiri konur hverf frá námi. Einnig taka stúlkur skólann oft á lengri tíma vegna barneigna og annarra frátafa. Útskrifaðir fiskiðnaðarmenn Konur Karlar 15 166 11% 89% Allt jafn gaman Hulda Amstelnsdóttir. Rætt við Huldu Arnsteinsdóttur nema í Fiskvinnsluskólanum Léttur og óþvingaður andi ríkti á kaffistofunni þar sem nemendur voru í mat. Hulda er 21 árs, en gæti verið 16 eftir útliti að dæma. Þegar ég spurði hvort námið væri erfitt, gall við í einum félaganna: „Það er varla erfitt fyrir toppnemandann.“ Það kom sem sagt í ljós að Hulda hafði fengið A í öllu á jólaprófinu. Hulda Arnsteinsdóttir frá Stóra Dunhaga í Hörgárdal í Eyjafjarð- arsýslu býr ásamt 3ja ára dóttur sinni að Miðvangi 41, stærstu blokkinni í Hafnarfirði, sem er 8 hæðir og gengið inn í íbúðirnar af svölum. Þótt hún hafi búið þarna í allan vetur, þekkir hún engan í húsinu með nafni nema húsvörð- inn. En íbúðin er ágæt og Hulda prísar sig sæla að hafa fengið þarna inni. Þekkti engan Ég þekkti engan í Hafnarfirði þegar ég kom suður og byrjaði í skóanum sl. haust. Því bjó ég í þrjár vikur hjá vinkonu minni í 31

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.