19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 34

19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 34
Reykjavík meðan ég var að leita að íbúð og barnið var fyrir norðan á meðan. Ekkert gekk þótt ég væri búin að senda fjölmörg tilboð og ég var að því komin að gefast upp og fara aftur norður, en þá bauð einn skólabróðirinn mér að búa hjá sér og konu sinni í Vogunum meðan ég biði eftir að úr rættist. Ég var heppin því áður en vikan var liðin hafði ég fengið þessa ibúð. Það tóku mér allir svo vel í skól- anum og hafa verið mjög hjálpleg- ir, bæði kennarar og nemendur, svo ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Þeir hvöttu mig að fara í skólann Ég vann í fiski í Hrísey í eitt ár áður en ég byrjaði í skólanum, og þar vaknaði áhuginn. Mágur minn, sem er útibústjóri KEA í Hrísey og einnig frystihússtjórinn, sem er aðeins 25 ára og sjálfur út- skrifaður úr Fiskvinnsluskólanum, hvöttu mig mjög til að fara í skól- ann. Mig langaði heldur ekki að vinna allan daginn við að skera fiskinn án þess að vita eiginlega nokkuð um hann. — Að vísu hafði ég einnig áhuga á íþróttakennara- skólanum, en þar er heimavist og útilokað að vera með barn. — Ég var búin að vera tvo vetur í Menntaskólanum á Akureyri svo að ég get lokið fiskiðnaðarmanns- prófi á einu og hálfu ári fyrir utan starfsþjálfunina. Þá kom mamma að norðan Ég hafði safnað peningum í Hrísey og mér hefur tekist að bjargast af eigin rammleik fram að þessu. Við í Fiskvinnsluskólanum eigum kost á námslánum, en ég hef ekki þurft á því að halda. Foreldrar mínir hafa lofað að hlaupa undir bagga ef með þarf, og það fer nú að líða að því. Ég var svo heppin að koma telpunni í einkapössun hjá afar góðri konu, sem einn skólabróður- inn benti mér á. Þegar telpan fékk flensuna í vetur og upp úr henni bronkitis og lungnabólgu, missti ég 7 daga úr skólanum — mátti 32 reyndar ekki missa nema 5, því það er 90% mætingarskylda í verklega náminu — en skólastjórinn veitti mér undanþágu þessa 2 daga. Þá kom mamma að norðan til að passa telpuna og ’ hún var hér í hálfan mánuð til þess að ég þyrfti ekki að hætta í skólanum. Framtíðarmöguleikar Það er ekki þakklátt starf að vera verkstjóri, maður verður að hafa áhuga á starfinu og treysta sér út í það. Maður hefði gott af því að vinna aftur sem verkamaður áður en maður byrjar í verkstjórn. Ég hef einnig mikinn áhuga fyrir að verða eftirlitsmaður, en hef enga möguleika á því af þvi að ég er með barn. Eftirlitsmenn ferðast um landið og hafa eftirlit með framleiðslu húsanna — þeir starfa hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og Sambandinu. Það væri gaman seinna að verða frystihússtjóri og athuga hvað maður gæti, en fyrst vildi ég vinna með góðum manni og fá þjálfun. Mörg frystihús eru rekin öðruvísi en ætti að vera. Ég sé sannarlega ekki eftir að hafa farið í Fiskvinnsluskólann. Ég get ekki gert upp á milli hvað mér finnst skemmtilegast að læra því mér finnst þetta allt jafn gaman. KW. bEH'ftF IWE*. flLLAft DftuBWl... KlttbTPl 5ÖSÍÖ EÉ. fift pciw ífeCL ftdftKft S.frMi.... Fólkið þarf að finna að störf þess eru metin Þóra Pétursdóttir. Rætt við Þóru Pétursdóttur fisktækni Þóra Pétursdóttir, verkstjóri í frystihúsi Kaupfélags Hornfirð- inga, eina konan sem lokið hefur framhaldsnámi frá Fiskvinnslu- skólanum, er 25 ára gömul og Reykvíkingur að ætt. Við náðum tali af Þóru, þegar hún kom suður í vor til að sitja aðalfund og ráðstefnu um tölvu- mál á vegum Fiskiðnaðar, félags þeirra sem útskrifast hafa frá Fisk- vinnsluskólanum, matsmanna og verkstjóra. Það vekur athygli að á aðalfundinn mættu 46, þar af 4 konur — en eins og allir vita eru konur í meirihluta i fiskvinnslunni. Miklar breytingar í vændum Tölvurnar munu hafa víðtæk áhrif, segir Þóra. Tölvuvæðing er í undirbúningi hjá Kaupfélaginu á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.