19. júní - 19.06.1981, Page 50
Jafnréttismál rædd af kappi. Þátttakendur eru, taldir frá vinstri: Jónína, Guðríður, Kristín, Erna,
Guðlaug, Ásdís, Lára, Valgerður og Guðrún.
Rabbfundur á
Hallveiefarstöðum Í:
Ásdís v
I aprílbyrjun hittust fulltrúar frá
Kvenréttindafélagi Islands, Rauð-
sokkahreyfingunni og Jafnréttis-
hreyfingunni á Akureyri, ásamt
Guðríði Þorsteinsdóttur, formanni
Jafnréttisráðs til spjalls á Hall-
veigarstöðum. Hugsanleg sam-
skipti milli þessara hreyfinga og svo
Jafnréttisráðs voru rædd á þessum
fundi, — og fleiri mál. Frá Akur-
eyri voru Valgerður Bjarnadóttir,
félagsráðgjafi og Lára Ellingsen,
skrifstofumaður. Kristin Ástgeirs-
dóttir, blaðamaður, Guðlaug
Teitsdóttir, kennari og Erna
Indriðadóttir, fréttamaður voru
frá Rauðsokkahreyfingunni og frá
KRFÍ Guðrún Gísladóttir, bóka-
vörður, Jónína Guðnadóttir, rit-
stjóri og undirrituð. Umræður
voru mjög líflegar, en fundinum
var ekki ætlað að fremja nein stór-
virki — varla voru þau vandamál
sem við blasa í jafnréttismálum
krufin til mergjar. 1 frásögn af
þessu spjalli hef ég kosið að tengja
hana í samfellt mál og ég vil taka
48
það fram að allir fundarmenn voru
virkir í umræðunum.
Ráðgjafarnefnd Jafnréttisráðs
Um það var rætt, að viðburðir í
starfi KRFÍ og Rauðsokka hefðu
stundum borið upp á sama dag og
sama tíma. Voru fundarmenn al-
mennt á þeirri skoðun að samráðs
væri þörf að einhverju marki, að
því leyti að hvort félagið léti hitt
vita af því með nokkrum fyrirvara
hvenær meiriháttar viðburðir eins
og ráðstefnuhald eða opnir fundir
væru á dagskrá. Benti Guðríður
Þorsteinsdóttir á nýskipaða nefnd,
sem starfar á vegum Jafnréttisráðs
og er skipuð fulltrúum meðal ann-
ars frá KRFÍ og Rauðsokkum.
Þessi nefnd gæti haft þá þýðingu
að miðla upplýsingum um starf-
semi ráðsins og ekki síður um
starfsemi félaganna.
Áhugamannafélög
Fram kom í umræðum, að á
Kvennaráðstefnu S. Þ. í Kaup-
mannahöfn í sumar hafi það verið
mál manna að starf áhugamanna-
félaga um jafnréttismál væri mjög
mikils virði. Og eins og nú er búið
að Jafnréttisráði þá væri ljóst að
hlutverk þessara félaga hér á landi
væri stórt. Áðurnefnd ráðgjafar-
nefnd gæfi félögunum í Reykjavík
möguleika á að styðja við starf
Jafnréttisráðs og Jafnréttisráði
jafnvel möguleika á að styðja við
félögin. Hvert hlutverk hreyf-
ingarinnar á Akureyri verður, ætti
eftir að koma í ljós, enda er hún
næsta ný af nálinni.
Þær sem tjáðu sig um störf
hreyfinganna í Reykjavík ræddu
um að á skorti að hinn almenni
félagsmaður væri virkur í félags-
starfinu og að hvorugt þessara fé-
laga hefði mikið fé til ráðstöfunar.
Starfsemi þeirra gæti verið um-
fangsmeiri, en sú gagnrýni hefði
komið fram að lítill slagkraftur
væri í starfseminni og að kanna
mætti hvort nýjar baráttuaðferðir
gætu reynst vænlegri en þær sem