19. júní


19. júní - 19.06.1988, Side 4

19. júní - 19.06.1988, Side 4
FRA RITSTJORA JÓNÍNA MARGRÉT GUÐNADÓTTIR / þessum 38. árgangi 19. júníer stærstum hluta blaðsins varið til umfjöllunar um dagvistunarmál. Astæðan er bæði sú að langt er síðan þau málefni hafa sérstaklega verið tekin fyrir á þessum vettvangi og svo hitt að málefnið verður brýnna með hverju ári sem líður þegar æ fleiri konur eru á vinnumarkaði. Nýjustu tölur um at- vinnuþátttöku kvenna herma að yfir 80% séu í einhverri launaðri atvinnu en þar við bætist að heilsdagsstörf eru orðin mun algengari meðal kvenna og að atvinnuþátttaka giftra kvenna á barnseignaaldri, 20-40 ára, er liðlega 90%. Þessi þróun á sér að sönnu aðdraganda en hún hefur orðið örari á allra síðustu árum og ætla ég ekki að rekja orsakir þess hér. Hins vegar liggja afleiðingarnar í augum uppi. Þörfinni fyrir örugga dagvistun barna er hvergi nærri fullnægt. í Reykjavík njóta tæp 14% barna 5 ára og yngri dagvistunar á dagheimilum og tæp 41% barna á forskóla- aldri eru í leikskólum. A biðlistum fyrir leikskólarými voru um síðustu áramót 1311 börn, sem eru um 18% heild- arfjöldans á þessum aldri. Aðeins 7% barna 5 ára og yngri eru á biðlistum fyrir dagheimili í höfuðborginni, en reynd- ar sýna tölur ekki nema brot af eiginlegri þörf foreldra fyrir gæslu barna sinna. Þeir sem eru giftir eða í sambúð láta sér fæstir til hugar koma að skrá nöfn barna sinna á biðlista fyrir dagheimili, þar sem vitað er að forgangshóp- arnir, einstæðir foreldrar og námsmenn, sitja nánast einir að þeim sjálfsögðu réttindum barna að eiga kost á öruggu athvarfi og uppeldi sérmenntaðs fólks. Þau 10% dagheim- ilisrýma sem í upphafi voru ætluð börnum annarra en forgangshópanna eru nýtt fyrir börn fóstra og starfsfólks á dagheimilum til að laða fólk til starfa. Einu úrræði foreldra sem búa á sama heimili er að sækja um leikskólarými og reyna svo að bjarga sér sem best þeir mega þar sem þeim sleppir. Á leikskólum hagar þannig til að sækja má um vistun fyrir börn þegar þau hafa náð 1‘A árs aldri. Meðalbiðtími í Reykjavík er nær 14‘A mánuður þannig að barnið er orðið tæplega 3 ára hið yngsta þegar það kemst að. Og hvert snúa foreldrar sér þessu fyrstu þrjú æviár barnsins þegar þannig er ástatt að báðir foreldrar vinna utan heimilis? Foreldrar reyna að ráða fram úr gæsluvandanum með ýmsu móti eins og fram kemur í blaðinu. ein algengasta lausnin eru dagmæður, en láta mun nærri að þær sinni gæslu um 1300 barna í Reykjavík allt frá örfárra ntánaða gömlum. Dagmæðurnar leysa líka oftast vanda einstæðra foreldra meðan þeir bíða eftir rými á dagheimili, en það getur tekið upp undir heilt ár frá fæðingu barns og mun lengur hjá námsmönnum. Dagmæðraþjónustan eins og hún þekkist hér er auðvit- að alls góðs makleg, enda ríkti öngþveiti í gæslumálum ef hennar nyti ekki við. Margar dagmæður sinna merku upp- eldisstarfi af fyllstu samviskusemi, en það er alkunna að þjónusta þeirra getur líka verið stopul og afar misjöfn að gæðum og leiðir slíkt af sér öryggisleysi jafnt foreldra og barna. Af því sem hér hef ur verið stuttlega lýst blasir við að það ríkir í rauninni ófremdarástand í dagvistunarmálum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir þau börn sem nú er að vaxa úr grasi. Þegar skólinn tekur við börnunum 6 ára gömlum tekur svo steininn úr. Þá er þeim boðið upp á 16 tíma kennslu á viku yfir vetrarmánuðina, þegar best lætur, og götuna sumarlangt. Þrautalendingin er þá oft að annað foreldrið hættir að vinna utan heimilis, að sjálfsögðu oftast móðirin sem að jafnaði hefur lægri tekjur. En börn ein- stæðu foreldranna og þeirra sem ekki geta leyft sér þennan munað af einhverjum ástæðum eru oft á hálfgerðum hrakningi. Hér í blaðinu eru öll þessi mál reifuð frá ýmsum hliðum og vakti það ekki síst fyrir ritnefndarkonum að sýna fram á hver raunveruleiki íslenskra barna er. Það verður aldrei of oft ftrekað að dýrmætasta eign hvers þjóðfélags er fólgin í börnunum og þótt foreldrar vilji börnum sínum allt hið besta sem þau mega, eru það því miður oft börnin sem gjalda þess að báðir foreldrar þeirra vinna utan heimilis. Þjóðfélagið hefur ekki sinnt skyldu sinni við yngstu þegn- ana eins og því ber. Það eru þó viss teikn á lofti um að eitthvað kunni að rofa til í þessum efnum á næstunni. í máli þeirra stjórnmála- manna og kvenna sem blaðið leitaði til kemur glöggt í ljós að þau eru sammála í flestum grundvallaratriðum um skyldu samfélagsins til að sinna þörfinni fyrir dagvistun og lengri viðveru 6-9 ára barna í skólum. Greint er á um leiðir en takmarkið, að uppfylla brýna þörf í breyttu samfélagi, er sameiginlegt. Vonandi verður það að veruleika innan tíðar. 4

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.