19. júní - 19.06.1988, Qupperneq 15
BÖRN 2 - 6 ÁRA í REYKJAVÍK,
DESEMBER 1987
ÖNNUR BÖRN 3,4%
Á DAGHEIMILUM 16.9%
sérmenntaðs fólks í uppeldismálum
og búa þeim þau uppeldisskilyrði er
efli persónulegan og félagslegan
þroska þeirra."
Fjölgun dagvistarrýma
Meirihluti barnaheimila utan
Reykjavíkur sem reist eru
fyrir 1973 eru byggð af
kvenfélögum og á Akur-
eyri af barnavinafélagi. Eins og kom-
ið hefur fram, þá tóku ríki og sveitafé-
lög við stofnkostnaði dagheimila. A
árunum 1975—1985 tók dagvistunar-
þjónusta að breiðast út um landið og
hefur náð til stöðugt fleiri sveitarfé-
laga. Sem dæmi um þetta má nefna að
á árinu 1977 var dagvistunarþjónusta
veitt í 41 sveitarfélagi og voru dagvist-
arheimili á landinu alls 106. Árið 1980
veittu 58 sveitarfélög þessa þjónustu
og voru heimilin orðin 134. Á árinu
1984 var dagvistunarþjónusta í 61
sveitarfélagi og fjöldi dagvistarheim-
ila orðinn 168.
í lok síðasta árs voru starfandi á
vegum Reykjavíkurborgar alls 30
dagheimili, 14 skóladagheimili og 29
leikskólar.
Dagheimili eru ætluð börnum á
aldrinum 3ja mánaða til 6 ára. Lang-
flest þeirra barna sem fá inni á dag-
heimilum eru börn einstæðra for-
eldra, næst að fjölda koma börn
námsmanna. Tíundi hluti dagheimil-
isrýma er ætlaður börnum giftra for-
eldra, en eru í raun nýtt að meirihluta
fyrir börn starfsmanna dagheimil-
anna. Skóladagheimili eru ætluð
skólabörnum 6-10 ára, og fá ein-
göngu börn einstæðra foreldra þar
inni. Leikskólar eru ætlaðir börnum á
aldrinum 2ja til 6 ára til dvalar hálfan
daginn. Er hlutfall leikskólarýma í
Reykjavík, miðað við heildarfjölda
barna á þessum aldri, rúmlega 40%.
Á vegum Dagvistar barna er starf-
andi sálfræði- og sérkennsludeild,
sem hefur á að skipa sálfræðingum,
talkennara, sérmenntuðum fóstrum
og þroskaþjálfum. Verkefni deildar-
innar er einkum fólgið í uppeldislegri
ráðgjöf fyrir starfslið heimilanna og
foreldra barnanna. Þá hefur deildin
umsjón með sérþjálfun fyrir þau börn
sem þess þurfa.
í byrjun þessa árs starfaði 351 dag-
móðir í tengslum við dagvistarþjón-
ustu Reykjavíkurborgar, og voru
samtals 1278 börn í gæslu hjá þeim.
Einstæðir foreldrar eiga rétt á niður-
greiðslu daggjalda hjá dagmæðrum. í
desember 1987 voru greidd niður dag-
gjöld fyrir 392 börn. Námsflokkar
Reykjavíkur hafa séð um að halda
námskeið fyrir dagmæður í samráði
við félag dagmæðra og umsjónar-
fóstrur við daggæslu barna á einka-
heimilum.
Reykjavíkurborg rekur og fjölda
gæsluvalla í hinum ýmsu hverfum
borgarinnar, og sóttu þá um 204 þús-
und börn á síðasta ári.
I Reykjavík eru starfandi samtök
foreldra barna í dagvist. Eru þau opin
foreldrum allra barna á leikskólum,
dagheimilum, skóladagheimilum og
hjá dagmæðrum. Samtökin eiga full-
trúa í stjórn Dagvistar barna og eru
umsagnaraðili um opinberar ráðstaf-
anir er varða foreldra barna í dagvist.
Of lítiö framboö
/
ársskýrslu 1987 um dagvistun
barna á vegum Reykjavíkur-
borgar, kemur fram eftirfarandi
um nýjar umsóknir.
í lok ársins 1987 voru 590 börn á
biðlista eftir dagheimili og eftir leik-
skóla 1311 börn. Fjöldi barna í
Reykjavík á aldrinum 0-5 ára, 1. des-
ember 1987, var 8482, og fjöldi barna
2-5 ára var 5793. Á sama tíma biðu
147 börn eftir vistun á skóladagheim-
ili.
Þrátt fyrir að dagvistarrýmum hafi
fjölgað jafnt og þétt á undanförnum
árum, er langt frá því að þörf fyrir
dagvistun sé uppfyllt. Eru ekki líkur á
að takist að framfylgja 10 ára áætlun
Reykjavíkurborgar um uppbyggingu
dagvistunarþjónustu 1981-1990,
þannig að í lok þess tímabils verði
nægileg dagvistunarrými fyrir hendi í
Reykjavík. Sarna er að segja um 10
ára áætlun frá menntamálaráðuneyt-
inu um byggingu dagvistarheimila
fyrir sama tímabil. Þá hefur reynst æ
erfiðara að fá fóstrumenntað fólk til
starfa á dagvistarheimilum og jafn-
framt hafa mannaskipti orðið tíðari á
hinum síðari árum.
í Uppeldi, blaði Foreldrasamtak-
anna í Reykjavík, sem út kom í byrjun
þessa árs segir: „Kraftar foreldranna
síðasta ár hafa beinst að því að vekja
athygli á ófremdarástandi sem ríkir í
dagvistunarmálum í Reykjavík og
benda á leiðir til úrlausnar. í því sam-
bandi hafa samtökin bent á aðrar
leiðir í dagvistun en borgarrekna
dagvist; dagheimili rekin af foreldr-
urn, atvinnurekendum, húsfélögum,
einum sér eða í samvinnu við borgar-
yfirvöld. Samtökin vilja hefja störf
fóstra til virðingar og skapa þeim sess
meðal annarra uppeldisstétta, svo
sem kennara."
Hclstu hcimildir:
Barnavinafélagid Sumargjöf 50 ára. Reykjavík
1974.
Erla Þóröardóttir. „Félagslegar aðstæður
kvenna".Konur hvad nú? Samstarfsnefnd í lok
kvennaáratugar S.Þ. og Jafnréttisráð. Rvk.
1985.
Ársskýrslur um dagvistun barna á vegum
Reykjavíkurborgar.
Umsóknir um dagvistun
Nýjar umsóknir 1980 1983 1987
Dagheimili 588 700 847
Skóladagheimili 59 60 222
Leikskólar 1291 1250 1255
Fjöldi dagvistarrýma
1980 1983 1987
Dagheimili 927 1082 1183
Skóladagheimili 170 207 269
Leikskólar 1181 2059 2499
15