19. júní - 19.06.1988, Síða 21
Au-pair stúlkur geta verið ódýrasta lausnin fyrir barnmargar fjölskyldur.
sem skýrt kæmi fram hverjar skyld-
urnar væru, hvenær vinna ætti verkin
og hvenær vinnutíma lyki. Sjálf sagð-
ist hún gefa sinni stúlku frí þegar hún
kæmi heim, enda væri hún þá búin að
þrífa auk þess að gæta barnanna. Af
því hún sjálf vinnur stundum óreglu-
legan vinnutíma væri starfsdagurinn
hjá au-pair stúlkunni sinni stundum í
lengra lagi, en þá sagðist hún alltaf
bæta henni það upp með því að gefa
henni lengra frí við fyrsta tækifæri.
Þótt þau hefðu verið einstaklega
heppin með stúlku, sagði hún að það
væru því miður ekki allir.
Einnig sagði hún að það kæmi fyrir
að stúlkunum og vinnuveitendum
semdi alls ekki, en það væri ekki alltaf
stúlkunum að kenna. T.d. kæmu upp
vandamál þar sem húsmæður vildu að
stúlkurnar ynnu verkin nákvæmlega
eins og þær væru vanar að gera þau —
sem auðvitað gengi aldrei. Einnig
skapast oft óánægja, sem getur smit-
að út frá sér á ýmsa vegu, þegar stúlk-
urnar eru iðulega látnar vinna langt
fram yfir eðlilegan vinnudag.
„Þær vilja skemmta sér í frítíman-
um og stelpunum frá Færeyjum finnst
Reykjavík stórborg, full af skemmt-
unum, en til þess að þeim leiðist ekki
er gott að vera búin að kynna sér hvar
samlandar þeirra eru í vinnu og kynna
þær fyrir þeirri nýkomnu. Auðvitað
geta óhöpp komið fyrir og t.d. varð
ein færeyska stúlkan ófrísk fyrstu
helgina sem hún var hérna."
Kostirnir við að hafa au-pair stúlku
á heimilinu eru sem sagt margir. Ekki
þarf að rífa börnin á fætur fyrir allar
aldir til að keyra þau í pössun. Þau
eru allan daginn heima hjá sér, hjá
manneskju sem þau þekkja og
treysta. Kostnaðurinn er mun minni,
jafnvel þó að matarkostnaður sé
reiknaður ofan á kaupið, því að á
móti koma þrifin á íbúðinni. Nú gall-
arnir geta verið ýmsir, en flestir það
smávægilegir að kostirnir yfirgnæfa
þá — auk þess virðist þetta vera ódýr-
asta lausnin þegar um keypta heils-
dagsgæslu er að ræða.
Lyklabörn
Orðið „lyklabarn" hefur yfir
sér einhvern sorglegan blæ,
enda felur það í sér barn sem
kemur heim úr skóla og eng-
inn er heima til að opna fyrir því og
taka á móti. Yfirleitt er um að ræða
nokkuð stálpuð börn, en börn þó. Þá
hefur annað hvort ekki fengist nein
gæsla fyrir þau eftir skóla, eða for-
eldrum fundist þau orðin nógu stór til
að passa sig sjálf. En eins og við vitum
þá fer glæpum gagnvart börnurn því
miður mjög fjölgandi, eða að minnsta
kosti koma þeir margir fram í dags-
ljósið nú, og þvf hlýtur að teljast var-
hugavert að ætla mjög ungum börn-
um að vera sjálfala heima við.
Þessi lausn er þó töluvert algeng og
„lyklabörn" læra að sjá um sig sjálf,
jafnvel allt frá 7 og 8 ára aldri. Flestir
foreldrar hugsa þó eins vel um þessi
börn sín og þeim er unnt, og fylgjast
með því að þau séu komin heim úr
skóla á réttunr tíma og hvað þau hafa
fyrir stafni — og þetta gera þeir í
gegnum síma.
Flestir foreldrar eru einnig búnir að
hafa til mat sem börnin fá sér þegar
þau koma heim; smurt brauð, jógúrt
o.þ.h. Og síðan er hringt á milli til að
spyrja hvernig gangi og hvað eigi að
fara að gera. Börnunum er yfirleitt
uppálagt að þau verði að hringja og
láta vita ef þau ætla út og hvert þau
ætla. Eins hefur gjarnan verið komist
að samkomulagi við einhvern í ná-
grenninu urn að börnin megi leita
þangað ef eitthvað bjátar á. En þrátt
fyrir það og stöðugt símasamband við
börnin, þá er fæstum foreldrum rótt
að vita af börnunum einum heima, þó
ekki sé nema vegna þess að þau hafa
engan að tala við; til að segja frá að
eitthvað hefur komið fyrir í skólan-
um, skemmtilegt eða leiðinlegt, sem
þau eru jafnvel búin að gleyma þegar
foreldrarnir koma heim á kvöldin.
Þessi börn eru óneitanlega dálítið
mikið ein og úr tengslum; dálítið um-
komulaus þrátt fyrir símasambandið.
Þetta er ódýr lausn að sjálfsögðu —
þó vildu án efa allir foreldrar heldur
vita af þeim á skóladagheimili eftir að
skólatíma lýkur, þótt það kostaði eitt-
hvað, ellegar í einhvers konar at-
hvarfi ísjálfum skólanum. Athvörf að
skólatíma loknum eru að byrja að líta
dagsins ljós, en skóladagheimilin eru '
enn sem komið er eingöngu ætluð
börnum einstæðra foreldra. Hin
verða að passa lykilinn sinn.
Y5Í
;oi;vy;.ioi
MINNINGARKORT
Menningar og minningarsjóðs kvenna
eru afgreidd í:
Bókabúöinni borg, Lækjargötu 2
Lyfjabúö Breiöholts, Arnarbakka 4-6
Skrifstofu KRFÍ, Hallveigarstööum, Túngötu 14
i
W
SÁ
21