19. júní


19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 36

19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 36
Árni Sigfússon: ÓSK FORELDRA ER ÓTVÍRÆÐ HENNIBER AÐ SINNA / slendingar fagna öllum nýjum þjóðfélagsþegnum af heilum hug. En þótt þjóðfélagið taki brosandi á móti þeim, þ.á m. stjórnmálamenn, þá hafa of fáir enn gert sér grein fyrir þeirri samræmingu sem nauðsynlegt er að verði til þess að foreldrar geti búið börnum sínum sem best uppvaxtarskilyrði. Þjóðfé- lagið gerir ráð fyrir því að foreldrar leggi hart að sér við að eignast þak yfir höfuðið, það nánast krefst þess að báðir foreldrar afli tekna utan heimilis og barnseignaraldur kvenna setur fjölskyldum einnig tímaskorð- ur. Á sama tíma og fjölskyldan stækk- ar eru því félagslegar og fjárhagslegar aðstæður hvað verstar. Þjóðfélaginu ber skylda til að bæta þessar aðstæð- ur. Þótt dagvistarstofnanir séu um margt æskilegar, er ljóst að fyrstu 2-3 æviárin þarfnast börnin hvað mest umhyggju foreldris en síður félags- skapar jafnaldranna. Á þessum árum er því mjög brýnt að foreldri eignist raunhæfan valkost um að geta dvalið heima með barn sitt. Vissulega reyna stjórnvöld að stuðla að þessu. Fyrir forgöngu sjálfstæðismanna var fæð- ingarorlofið lengt, og verður 5 mán- uðir um næstu áramót. Þá hefur ríkis- stjórnin sem nú situr aukið barnabæt- ur og nema þær líklega um 2.4 milljörðum króna á þessu ári. Tvö- faldar bætur greiðast til barna undir 7 ára aldri. En barnabætur dreifast hins vegar til barna upp að 16 ára aldri og verður þá í raun lítið úr 2.4 milljörð- um króna fyrir hvern einstakling. Ég tel brýnt að við hugum að veru- legri aukningu barnabóta fyrstu æviár barnsins, þannig að þær gefi foreldri hinn raunhæfa valkost um að vera heima með barni sínu. Við 2-3 ára aldurinn þurfa foreldrar að eiga þann eðlilega valkost að barn þeirra dvelj- ist í félagsskap annarra barna hjá dag- mæðrum, á leikskólum eða dagheim- ilum fram að skólaskyldualdri. Upplýsingar um skort á dagvistar- plássum hér í Reykjavík eru oft mjög misvísandi. Samkvæmt upplýsingum stjórnar Dagvistar barna um 2-6 ára börn í dagvistun í desember 1987 voru 40.5% þessa aldursflokks í leikskól- um, 16.9% á dagheimilum, 2.1% á einkareknum dagheimilum, 4.3% á dagvistarstofnunum sjúkrahúsa og 9.2% hjá dagmæðrum. Þetta gefur til kynna að 73.3% reykvískra barna á Góð brauð góð heilsa að ógleymdum kökum og tertum aldrinum 2-6 ára hafi þessi dagvistar- úrræði. Skráning barna þar sem for- eldrar nota sín eigin úrræði er auðvit- að ekki talin hér með. Á biðlistum stjórnar Dagvistar barna eru um 23.3% þessa aldurshóps. Aðeins 3.4% 2-6 ára barna eru því ekki skráð með umsókn eða einhver úrræði hjá Dagvist barna. Þessar tölur gefa okkur ótvírætt til kynna að lang stærstum hluta 2-6 ára barna bjóðast einhver dagvistarúr- ræði. Tölurnar gefa einnig til kynna að nánast allir foreldrar þessara barna í Reykjavík hafa lagt inn um- sókn um dagvistun fyrir börn. Ósk foreldra um dagvistun fyrir börn sín, hvort sem slíkt verði framkvæmt af sveitarfélaginu eða öðrum aðilum, er ótvíræð. Henni ber stjórnmálamönn- um að sinna. Við 5 ára aldurinn þarf að sam- ræma framboð skólanna, bjóða heil- steypta námsskrá og samfelldan skóladag í grunnskólum. Úrræðin eru allmörg, en þau þarf að samræma og það krefst sam- ábyrgðar heimila og þjóðfélagsins alls. Þessi úrræði kosta mikið fé. Ef barnabætur eiga að hækka upp að 3 ára aldri svo þær bjóði raunhæfan val- kost fyrir foreldra, er kostnaður ríkis ekki undir 1.3 milljörðum kr. ofan á það sem nú er greitt. Samfelldur skóladagur kostar annað eins. Þessi aukning nemur varla undir 2.5 mill- jörðum króna eða um 4% af fjárlög- um ríkisins fyrir þetta ár. En það er dýrkeyptara fyrir Islend- inga að eignast ekki nýja þjóðfélags- þegna, hvernig sem á það er litið. Tekjuleiðir til framkvæmda eru aðal- lega þrjár: auknir skattar, aukin af- notagjöld, eða samdráttur á öðrum sviðum opinberrar þjónustu. Svo „einfalt" er það. Okkar er ábyrgðin. ss Bergstaöastræti 13- 101 Reykjavík-Sími: 13083 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.