19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1988, Qupperneq 51

19. júní - 19.06.1988, Qupperneq 51
Þaö er lærdómsríkt að litast um í leikfangaverslunum. Við fyrstu sýn virðast þær sem æv- intýraland, litríkt og fjöl- breytt. En viö nánari athugun geta þær orðið sent fábreytt eyðimörk, þar sem hvert svæði er óbreytanlegt og fastákveðið af hefð og rótgrónum vana. Gengið er inn í plast veröld. Pegar glýjan af litagleðinni hefur vanist sést að enn er verið að bjóða börnum að leika eftir daglegu lífi foreldranna. Matar- og kaffistell, hársnyrtipakkar handa litlum stúlkum, rakstursáhöld handa strákunum. Já, kynskiptingin er enn sterklega við lýði í hugarheimi leikfangaframleiðenda. Til frekari áherslu eru í verslunum strákadeild, stelpudeild, bangsadeild og almenn deild. Líkamsburöir og vopnaskak Strákadeildinni er skipt í tvennt: bíladeild og stríðstóladeild. Strákar eiga enn að hafa áhuga á bílum frá barnsaldri, enda séð til þess af fullorðna fólkinu sem kaupir handa þeim gjafir. Þar finnast einnig flugvélar, sérstaklega í formi módela, og yfirleitt orrustuflugvélar frá ýmsum tímum. í stríðstóladeildinni eru dökkir og ógnvekjandi litir. Þar finnum við m.a. „Masters of the Universe“ og „Centurions". „Kallarnir" og tilheyr- andi fylgihlutir eru sóttir í teikni- myndir í sjónvarpinu. Hver kall hefur fyrirfram ákveðna kosti og galla og sitt staðlaða hlutverk að auki, til þess að börnin þurfi ekki að vera í vand- ræðum með að nota hann. Það eina sem barnið þarf að gera er að rifja upp nýjasta sjónvarpsþáttinn og leika hann eftir. Gallin er að alltaf koma nýir kallar í þættina og þá verður að kaupa nýjan kall. Og foreldrar virðast ekkert vald hafa yfir þessari þróun, enda þarf til þess viljaátak, sjálfsaga, og tíma til þess að spyrna við fótum. Það sem einkennir þessa kalla sem strákum er ætlað er grundvallarhug- myndin um að hið illa afl sé líkamlegs eðlis og að hægt sé að vinna á því með vopna- og líkamsburðum. „Centur- ions“ hafa þjónustustúlku uppi í geimstöð, á vakt allan sólarhringinn til þess að geisla til þeirra vopn, sem klessast utan á þeim og gera þá ósigr- andi. Þess á milli eru þeir félagslega einangraðir, kunna ekkert á kven- fólk, og besti vinurinn er hundurinn. Hér eru landgönguliðar bandaríska hersins hafnir upp til skýja. Foreldrar hafa þá skyldu að gera sér grein fyrir þeirri innrætingu sem leikföng eru, og ákveða hvort þeir geti sætt sig við hana. Vöðvabúnt með vopn í hendi sem aðalhetja og fyrirmynd litla sonar manns er veru- leiki, sem verður að takast á við, því við erum frjáls að því að velja, og ábyrg fyrir hugmyndunum sem börn gera sér af lífinu. Pastellitir og blíöa Stelpurnar losna ekki frekar úr viðjum leikfangaauglýsing- anna en strákarnir. í þeirra horni eru pastellitirnir allsráð- andi. „My little Pony“ trónir þar hæst þessa dagana sem draumaleikfangið. Þar er sama hugmyndin með fastskip- uð hlutverk og tilgang og fylgihlutirn- ir á sínum stað. En boðskapur þátt- anna er aldeilis annar. Þegar eitthvað bjátar á lenda per- sónurnar í prófraunum sem þær verða að leysa úr. En leiðirnar til þess eru kærleikur, sáttfýsi og kænska. Þar er enginn drepinn. Og að lokum er sigr- ast á erfiðleikunum og sólin skín fag- urlega á blómum skrýddan dalinn. Þessar persónur segja hver annarri að þeim þyki vænt hver um aðra, og telja gjarnan upp kosti hver annarrar til stuðnings og uppörvunar. Ekki er ég að amast við þessum aðferðum til lausnar vandamálum, heldur hlýtur það að teljast sorglegt að mjúku gildin, sem stelpurnar eiga Grein: Sigrún Harðardóttir að æfa sig í, séu eingöngu ætluð þeim, og að ekki sé meira jafnvægi milli gef- inna sjálfsímynda stelpna og stráka. Eða hvernig fara samskipti blíðra og sáttfúsra stúlkna og vopnaskakandi árásargjarnra drengja? Með því að leyfa leikfangaframleiðendum að mata börn á hlutverkaskiptingu og hegðun eru foreldrar að varpa frá sér ábyrgð sem er þeirra og verður alltaf þeirra. Áhrifamáttur leikfanga Eða hvers konar ímynd er verið að gefa litlum stelpum af lífinu með „Barbie“ dúkk- unum? Hún er falleg, grönn, eyðir miklum tíma í föt og snyrtingu, á fallegt heimili og fallegan kærasta á fallegum bíl. Hér er verið að ýta undir Dallas ímyndina, þar sem konur eru puntdúkkur. Að öðru leyti eru í þessuni paradís- arheimunt barnanna bangsar og ann- að af því tagi, m.a. dýr úr teikni- myndaseríum blaðanna sem oft höfða meira til fullorðinna en barna. Loks eru svokölluð þroskaleikföng og kubbar. Ég leyni því ekki að ég er hrifin af kubbunt og öðru sem setja má saman með eigin ímyndunarafli, en fram- leiðendur virðast helst vilja benda börnum á, utan á pökkunum, ná- kvæmlega hvert notagildi og tilgang- ur kubbanna sé. Þá er eins og gleym- ist nauðsyn þess að örva innbyggt í- myndunarafl barnanna, en í staðinn er þeim kennt að hernta eftir sögum sem búnar eru til handa þeim. Arangurinn af þeirri stefnu sést þegar börn eru með „skemmtiatriði" í skólum sem felast í því að spila lag af segulbandi og hreyfa ntunninn og dansa sem væru þau að flytja lagið sjálf. Hér er engin sköpun á ferð. Hér kvikna ekki myndir í ímyndunarafli barnsins sem leiða til ferskrar upp- lifunar. Næst þegar þið gangið inn í leik- fangaverslun í þeirn tilgangi að kaupa gjöf, væri ekki úr vegi að íhuga vand- lega hverjar afleiðingar hlutirnir þar hafa á barnið, sem geta mótað það á fullorðins árum. Leikur er undirbún- ingur undir lífið, þess vegna skipta leikföngin miklu máli. Framtíðar samfélagið byggist á börnurn dagsins í dag og ábyrgðin er okkar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.