19. júní


19. júní - 19.06.1988, Síða 59

19. júní - 19.06.1988, Síða 59
Eitt af mörgum atriðum sem fólk tók eftir og talaði um sín á milli þegar „Herra Island" keppnin stóð sem hæst voru svör herranna við spurning- um sem blaðamenn lögðu fyrir þá, en eins og allir vita sem fylgst hafa með samsvarandi keppni kvenna þá hafa svör þátttakendanna einatt þótt bera því vitni að stúlkur sem taka þátt í keppni sem þessari virðast allar hafa mjög svipuð áhugamál og framtíðar- áætlanir. Spurningunni varðandi áhugamál virðast flestar svara á þann veg að þær hafi mestan áhuga á ferðalögum, tungumálanámi og dansi — og marg- ar virðast hafa óskir um að gerast flugfreyjur eða fyrirsætur í framtíð- inni. Hér er ekki verið að alhæfa held- ur nefna ýmislegt sem einna helst einkennir svör þátttakenda í fegurð- arsamkeppni — sem hingað til hefur aðallega verið samkeppni kvenna. Þegar við aftur á móti snúum okkur að karlakeppninni, þá kemur ýmis- legt forvitnilegt í ljós — því það er ekki nóg með það að þeir virðast allir hafa svipuð áhugamál: dans, líkams- rækt og ferðalög — og að þeir svari allir nokkurn veginn á sama veg, heldur undirbúa þeir sig einnig fyrir keppnina á sama hátt og stúlkurnar, líkamsrækt og ljósaböð, enda voru verðlaunin í keppninni í sama dúr og þau sem stúlkurnar fá: Fataúttekt í tískufataverslun, tímar á sólbaðsstofu og á höfuð sigurvegarans var settur silfursleginn pípuhattur í stað glitr- andi kórónunnar sem sett er á höfuð stúlknanna. Ekki er því hægt annað að sjá en að á þessu sviði standi karl- menn fullkomlega jafnfætis konunum í jafnréttisbaráttunni. Keppendurnir um Herra ísland hafa mestan áhuga á ferðalögum, tungumálum og dansi. Þá langar marga að verða fyrirsætur eða flugfreyjur. Pólitík í fatatískunni En kannski má segja að þarna hafi verið um árangur að ræða, en hver ætli aðdrag- andinn hafi verið? Því eins og flestar konur hafa án efa tekið eftir, hefur orðið mikil breyting á útliti ís- lenskra karlmanna í heild á undan- förnum árum. Þetta þýðir ekki endi- lega að þeir séu „fallegri" en áður, en viss breyting hefur átt sér stað. í sam- tali við verslunareiganda einnar karl- mannafataverslunar í Reykjavík kom líka ýmislegt í ljós sem skýrir þessa breytingu. „Fyrir 10 árum þýddi ekkert fyrir mig að panta inn annað en grá og svört föt, annað seldist ekki,“ sagði þessi búðareigandi. „Enda var það þannig að þegar maður kom inn á skemmtistað, þá var eins og kæmi á móti manni grár veggur. Þetta voru allir karlmennirnir í gráu fötunum sínum og flestir voru með rauð bindi. Þá keyptu menn sér yfirleitt ekki jakkaföt nema á nokkurra ára fresti, nema kannski þeir sem unnu í jakka- fötum og slitu þeim þá. En sérðu úr- valið núna!“ segir hann og bendir hreykinn á fjölmargar slár, troðfullar af jökkum og buxum í gráu og svörtu, en líka rauðu, grænu, gulu, bláu, hvítu, köflóttu, röndóttu og teinóttu. „Núna er mjög algengt að menn kaupi sér tvenn jakkaföt á ári, ekki endilega af því þá vanti ný, heldur vegna þess að þá langar í þau. Ég flyt yfirleitt ekki inn nema ein föt í núm- eri, þannig að aldrei eru margir í sömu fötunum. Þetta finnst mörgum skipta miklu máli t.d. á opinberum vinnustöðum eins og Alþingi. Þar gengur ekki að maður t.d. úr Alþýðu- bandalaginu sé í nákvæmlega eins föt- um og annar úr Sjálfstæðisflokknum. Og til þess að koma í veg fyrir þetta Baðherbergisskápar heimilanna eru nú troðfullir af HANS snyrtivörum og eru ekki bara einhverjum snyrtivör- um, heldur í „réttum“ merkjum. 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.